Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.2000, Blaðsíða 33

Freyr - 01.01.2000, Blaðsíða 33
Feldkanínurœkt Feldkanínan Castor Rex Þetta sérstaka kanínuafbrigði varð til árið 1919 í Frakklandi þegar einn hvolpur fæddist með óvenjulegan feld. Seinna fæddist annar af gagnstæðu kyni, undan sömu foreldrum. Þegar þeir voru svo paraðir saman síðar kom í ljós að eiginleikinn hafði fest sig í sessi. Vindhárin voru jafnlöng þelinu og hafði því feldurinn silki- mjúka og glansandi áferð, sjá mynd 1. eftir Sverri Heiðar Júlíusson, kennara og ráðunaut í kanínurækt, Landbúnaðar- háskólanum á Hvanneyri 1. mynd. Mismunandi feldgerðir hjá kanínum. A. Venjulegur kanínufeldur. Vindhárin ná út yfir þelið. B. Rexfeldur, hárin standa beint út, vindhár og þel jafiilangt. Hinn réttifeldur Rex kanína. C. Rex feldur með hrokkið hár, gefur glanslausan feld. D. Rexfeldur, greinilega með lengri vindhár en þel. Kemur fyrir á baki og mölum, skemmir glansinn. þannig verða þær rólegri. Kanínum þykir óþægilegt ef einhver nálgast þær ofan frá, hafið því búrin ekki á gólfínu. Grípið hvert tækifæri sem gefst til að temja kanínumar, opna búrin, klappa þeim og kjassa. Slæmt skap erfíst, en lærist einnig! Þegar verið er að skoða kanínur, ættu þær að fá að standa á teppis- bút, þá standa þær oftast rólegar, sjá mynd 2. Högnarnir eiga að vera stað- settir fjarri læðunum. Þegar ver- ið er að hirða kanínur á gottíma ætti alltaf að sinna læðum með hvolpa fyrst því að það hindrar að lykt af högna berist með manni að læðunum, en það getur truflað og þær jafnvel farið að ganga með offorsi og rótað út úr got- kassanum. Varist of mikinn samgang milli búa og þvoið allt vel, hendur, skó og annan fatnað ef þið eruð á ferðinni. Hafið aðkeypt dýr sér til að byrja með. Hafið svo hjá þeim eina af kanínum ykkar um tíma og fylgist með því hvort hún verði nokkuð veik. Ef ekki, þá má setja þau aðfluttu inn á búið. Klippið klær kanínanna á a.m.k. 6 mánaða fresti. Kanínur er nátt- dýr, hafið því aldrei ljós í húsinu á nóttunni. Allar Rex kanínur rekja uppmna sinn til þessa pars. Þessar kanínur virðast viðkvæmari en aðrar kanín- ur. Þær þola verr að standa á neti heldur en önnur afbrigði og mér sýnist þær oft heldur styggari en loð- og holdakanínur. Til eru fjöl- mörg afbrigði af Rex kanínum en það er brúna afbrigðið, Castor Rex, sem við höfum hafið ræktun á hér á landi og gefur það verðmætustu skinnin. Almennt um hirðingu Þegar gengið er um kanínuhúsið ætti að tala blíðlega til kanínanna, 2. mynd. Hringlaga skoðunarborð, teppisbútur og kaninan stendur oftast róleg. FREYR 1/2000 - 29

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.