Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.2000, Qupperneq 41

Freyr - 01.01.2000, Qupperneq 41
1937 segir Ragnar Ásgeirsson, þá orðinn garðyrkjuráðunautur Búnað- arfélags Islands, að ekki ættu að sjást hér aðrar rófur en þær ís- lensku, rússnesku og gausku. Þær rófur voru líka einar um hituna hér- lendis á stríðsárunum að sögn Ingi- mars í Fagrahvammi í Garðyrkju- ritinu 1941. Stofnar og staðbrigöi eftir stríð Ekki skal beðið lengur með að setja fram tilgátu um uppruna þeirra stofna og staðbrigða sem við höfum undir höndum nú og höfum haft síðasta áratug. Rökstuðn-ing má að sumu leyti sækja í það sem sagt er hér að framan, en öðru verður bætt við. Eyjarófa Hún er skráð sem stofn úr Vest- mannaeyjum í tilraunaskýrslum frá Varmá árin 1952-60 og frá Garð- yrkjuskólanum á Reykjum 1981- 82. Henni fylgdi sú umsögn að hún væri ónæm gegn kálæxli, en vafi lék á því að tilraunum loknum. Hér mun þess getið til að hún sé afkom- andi Gautarófunnar. Rökstuðningur fyrir því er ekki sterkur, en einhver ástæða er fyrir því að Eyjamenn töldu henni sjúkdómsónæmið til ágætis. Eyjarófan hlýtur að hafa verið orðin blönduð öðrum stofn- um, því að ekki þótti hún fagur- sköpuð á efstu dögum sínum. Þessi stofn er nú líklega glataður. Ragnarsrófa Þar er um að ræða gömlu ís- lensku rófuna, sem svo var nefnd án skýringa frá aldamótum og fram um miðja öld. Þetta er rófan frá Schierbeck á Rauðará; að grunnin- um til Þrándheimsrófa, en gæti hafa þegið eitthvað frá öðrum. Hún fylgdi Gróðrarstöð Búnaðarfélags íslands og átti heima í Reykjavík fyrsta þriðjung aldar-innar. Hún var svo ræktuð til fræs á Laugarvatni frá 1932 allt þar til Gróðrarstöðin var flutt að Reykjum í Ölfusi 1939. Stjórnandi stöðvarinnar, Ragnar Ásgeirsson garðyrkjuráðunautur, bjó í Hveragerði frá 1944 og mun hafa haldið rófunni við þar lengi eftir það. Síðast er rófan nefnd „ís- lensk" án nánari skýringar í Mat- jurtabókinni 1949. Um það leyti var farið að reyna íslensk staðbrigði ólík henni og á árunum milli 1950 og 1960 er rófan nefnd til aðgrein- ingar í tilraunaskýrslum „íslenskur stofn frá Ragnari Ásgeirssyni.“ Frá því laust eftir 1960 hefur hún svo verið nefnd Ragnarsrófa, því að nafnið íslenska rófan virðist hafa flust yfir á einhver staðbrigði Kálfafellsrófunnar. Vegna þessa ruglings er ekki hægt að tala um ís- lenskar rófur lengur. Þær fáu útlits- lýsingar á íslensku rófunni sem er að finna í gömlum heimildum koma vel heim við Ragnarsrófuna eins og við þekkjum hana núna. I Matjurtabókinni 1949 er til dæmis sagt að kálið sé „allhávaxið“ og er það alþekkt einkenni á þessum rófustofni. Kálfafellsrófa Líkur eru á því að hér sé á ferð- inni rússneski stofninn Krasnöje selsköje, sem áður hefur komið við sögu á þessum blöðum. Þessi skoð- un er ný af nálinni og þarf því nokkum rökstuðning. Kálfafells- rófan er fyrst nefnd árið 1948. Það ár hafði Atvinnudeild Háskólans auglýst eftir heimaræktuðu gul- rófnafræi um allt land. Sýni bárust frá 12 stöðum. Eftir samanburð þessara staðbrigða voru tvö valin til áframhaldandi ræktunar, en hinum hent. Þessi tvö voru Nesrófan, en hennar verður getið síðar, og Kálfa- fellsrófan frá Kálfafelli í Fljóts- hverfi. Kálfafellsrófumar fengu þá eink- unn hjá Sturlu Friðrikssyni í Garð- yrkjuritinu 1953 að þær væm „kyn- hreinni en hinar, enda hafa þær ver- ið ræktaðar á sama stað í marga ára- tugi. Em þær mjög jafnar í öllum eiginleikum sínum.“ Þarna hefði strax átt að staldra við því að þessi lýsing minnir meira á hreinan og þaulræktaðan stofn en afrakstur sambræðslu og aðlögunar. Menn virtust þó tilbúnir að trúa hinu síð- amefnda. Gamlar tilraunaskýrslur fjalla sjaldan um útlit gulrófna. Þó em til undantekningar eins og þessi lýsing Ragnars Ásgeirssonar á rússnesku rófunum í Bún-aðarritinu 1927: „Þær em líkar næpum í laginu og eru aldrei öngóttar. Er því gott að taka þær upp, enda þótt þær séu að mestu leyti neðanjarðar. Blöðin eru ekki hávaxin, en liggja hér um bil flöt á moldinni.“ Þessu næst skul- um við líta á það hvemig Kálfa- fellsrófumar líta út á Varmá 26 ár- um síðar. Það er Sturla Friðriksson [ sem hefur orðið í Garðyrkjuritinu 1953: „Þær em dálítið hnöttóttar með meðallöngu rótarskotti, sem mjókkar jafnt niður. Rófan sjálf vex að miklu leyti niður í jarðveginum, en kálið, sem er lítið, liggur útbreitt og hylur jarðveginn í kringum róf- una.“ í hvorri lýsingu em þrjú atriði j nefnd. Fyrsta atriðið, um lögun j rófnanna, er dálítið afsleppt; ég veit til dæmis ekki, hvemig næpur era venjulega í laginu. Hin tvö atriðin í lýsingunni - lega blaða og rófur djúpt í moldu - falla nákvæmlega saman og eru þar að auki einkenn- andi fyrir Kálfafellsrófuna eins og við þekkjum hana núna. Blöðin, j sem liggja flöt á jörðinni, hef ég heldur hvergi séð á öðrum rófum. Má til viðbótar benda á það sem um útlit íslensku rófunnar, eða Ragn- j arsrófunnar, er sagt hér að framan. Ekki er líklegt að Kálfafellsrófan eigi til hennar ættir að rekja. Tvennt er enn sameiginlegt með Krasnöje selsköje og Kálfafells- rófu. Það fyrra eru bragðgæði. Sú rússneska fær þá einkunn mörgum sinnum hjá Ragnari Ásgeirssyni að hún sé bragðbesta rófa sem menn þekkja. Kálfafellsrófan er líka talin bragðbest af 20 stofnum sem rækt- aðir vom á Varmá 1952-60. Hitt atriðið er að rússneska rófan er jafnan sögð smærri en íslenska róf- an. Það kemur nákvæmlega heim við reynslu okkar á Korpu. Þar hef- ur Kálfafellsrófan alltaf verið FREYR 1/2000 - 37

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.