Freyr - 15.12.2000, Side 2
HEIMILISLÍNA
-fjármálin í öruggum höndum
® BÚNAÐARBANKINN
Traustur bauki
Heimsframleiðsla
á mjólk
Heimsframleiðsla á mjólk er um
560 milljón tonn á ári. Af því er
kúamjólk um 450 milljón tonn,
buffalamjólk um 80 milljón tonn
og geita- og sauðamjólk o.fl. það
sem eftir er. Mjólkurframleiðslan
vex um u.þ.b. 1-2% á ári, þar af í
Evrópu um u.þ.b. 0,5% en í lönd-
um í sterkri framþróun á þessu
sviði um allt að 5-6%.
í mjólkurframleiðslu á sér stað
fækkun og stækkun eininga um
þessar mundir, bæði stækkun kúa-
búa, mjólkursamlaga og fyrir-
tækja. Stærsta fyrirtæki á mjólkur-
markaðnum um þessar mundir er
„Dairy Farmers of America", þ.e.
„Bandarískir mjólkurbændur" en
það er til orðið við sameiningu
fjölda minni fyrirtækja og tekur ár-
lega á móti 15 milljón tonnum af
mjólk (sem er um 150 föld fram-
leiðsla hér á landi).
ESB. Bandaríkin, Kanada og
Nýja-Sjáland og Astralía eru stór-
tækust í framleiðslu og úrvinnslu
mjólkur í heiminum, með 50%
framleiðslunnar og 75% af heims-
markaði fyrir mjólkurvörur.
Stærðarhlutföll milli þessara landa
og svæða hafa þó verið að breytast
síðasta áratug. Þannig hafa
Ástralía og Nýja-Sjáland verið að
auka hlut sinn í heimsviðskiptum
úr 30% árið 1990 í 51% árið 1999.
Þessi þróun hefur einkum orðið á
kostnað ESB.
En jafnframt á sér stað önnur
þróun. „Ný“ lönd í mjólkurfram-
leiðslu er einkum að finna í Asíu
og Suður-Ameríku. Þar er verið
að byggja upp stórar einingar,
bæði í framleiðslu og úrvinnslu. í
þessum löndum eru það bæði er-
lendir fjárfestar og hið opinbera í
þessum löndum sem eru að leggja
fé í mjólkurframleiðslu og úr-
vinnslu til að rnæta aukinni eftir-
spum á heimamarkaði og í nálæg-
um löndum. Argentína virðist ætla
að láta til sín taka á heimsmark-
aði, Brasilía stefnir í það að full-
nægja eigin þörfum fyrir þessar
vörur og Chile eykur útflutning
sinn en flytur jafnframt inn mjólk-
urvömr. Reiknað er með að þessi
heimshluti lokist senn fyrir hefð-
bundnum útflutningslöndum
mjólkurvara.
Sama þróun á sér stað í Asíu. I
Indlandi hefur mjólkurframleiðsla
aukist mikið á síðari árum og land-
ið er farið að flytja út mjólkurduft.
Þar er buffalamjólk 80% af fram-
leiðslunni. Þá er vænst mikillar
aukningar í mjólkurframleiðslu í
Kína en nú er mjólkumeysla þar
einungis 6 lítrar á mann á ári.
(Bondebladet nr. 45/2000).
2 - FREYR 13-14/2000