Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.12.2000, Qupperneq 4

Freyr - 15.12.2000, Qupperneq 4
Islenski hesturinn er einstakur Viðtal við Ingimar Sveinsson, fyrrv. kennara á Hvanneyri Ingimar Sveinson frá Egilsstöð- um átti um árabil aðild að einu stærsta og myndarlegasta búi hér á landi en síðustu 15 árin hefur hann verið kennari í búfjárrækt á Hvanneyri og unnið þar brautryðj- endaverk í hrossarækt, bóklegri sem verklegri. Blaðamaður Freys lagði leið sína til hans á sl. hausti og bað hann fyrst að segja á sér deili. Ég er fæddur árið 1928 á Egils- stöðum á Völlum, yngstur þriggja systkina, foreldrar mínir voru Sig- ríður Fanney Jónsdóttir og Sveinn Jónsson, sem þar bjuggu. Ég gekk í bamaskóla á Völlum, sem var um það leyti oftast til húsa á Höfða á Völlum, börn ýmist gengu í skól- ann eða gistu þar en ég hafði þar sérstök fríðindi því að ég átti þá hest sem ég tamdi sjálfur og fór ríðandi á honum í skólann á hverjum degi, rúmlega 5 km leið, með heypoka fyrir aftan mig, með heyi handa hestinum meðan hann beið þar. Ég hóf skólagöngu mína 10 ára og stundum höfðum við heimiliskennara heima, sem kenndi þá líka fleiri börnum. Bamaskólan- um lauk með fullnaðarprófi sem svo var kallað um fermingaraldur. Haustið 1942 fór ég í 1. bekk Menntaskólans á Akureyri sem þá var sex vetra skóli, en eftir þriðja vetur var tekið gagnfræðapróf og þaðan lauk ég stúdentsprófi vorið 1948. Þessi sumur hefur þú svo verið við búskapinn? Já, og á uppvaxtarárum mínum vann ég geysimikið með hestum að hvers kyns verkum við búskap- inn. Þar má nefna akstur á hesta- kerrn og við jarðvinnslu. Við plæg- ingar drógu tveir hestar plóginn og jafnvel þrír í frumvinnslu á seigu og þýfðu landi. Eins var með herf- ið, það drógu 2-3 hestar eftir því hvað það var stórt og þungt. Síðan við heyskapinn voru notaðar hesta- sláttuvélar, rakstrarvélar og heyýt- ur og þær dró einn hestur oftast. Hann gekk þá meðfram múganum og fór yfir hann á víxl til að ýtan tæki heyið jafnt. Heyinu var svo mokað á bfl, sett í sæti eða dregið með ýtunni heim að hlöðu og mok- að þar inn. Það var mjög algengt um heyskapartímann að slegið var allan daginn og höfð tvö gengi af hestum til skiptanna. Hestar voru notaðir einvörðungu í búskapnum þar til fyrsti traktorinn, sem var af gerðinni Farmall A, kom upp úr 1940, og var í upphafi fyrst og fremst notaður við slátt og til að ýta saman heyinu. A tímabili voru bæði hestar og traktorar notaðir saman. Hestamir voru þá t.d. not- Ingimar Sveinsson. aðir fyrir rakstrarvélar en rakstra- vélar fyrir traktora voru þá ekki komnar á markað. Háskólanám Þú hyggur svo á frekara nám eftir stúdentspróf? Ég hafði þá hug á búfræðinámi og fór til Pullman í Washington- fylki í Bandaríkjunum, þar sem er ríkisháskóli fylkisins. Pullman er nafnið á bænum sem byggður er utan um háskólann. Þetta gerðist þannig að ég sá af tilviljun auglýs- ingu frá bandarískum sjóði, Ameri- can Scandinavian Foundation, sem styrkti menn til námsdvalar í Bandaríkjunum. Ég sótti um þenn- an styrk og fékk hann og sjóðurinn úthlutaði skóla eftir að maður hafði tilgreint hvaða nám maður vildi stunda. Þó lá endanlegt val á skóla í hendi manns sjálfs. Þetta var haustið 1948 og þama var ég við nám í 3 1/2 ár og kom ekkert heim á þeim tíma en vann á sumrin, m.a. eitt sumar hjá Camation Milkfarm nálægt Seattle sem var þá eitt þekktasta tilrauna- og kynbótabú fyrir Holsteinkýr í Bandaríkjunum með yfir 300 kýr og byggði af- komu sína einkum á sölu á kyn- bótagripum bæði í Bandaríkjunum og víða um heim. í námi mínu valdi ég búfjárrækt sem aðalgrein og nautgriparækt sem aðalfag innan hennar en auk þess svín, sauðfé og hross. Þessu námi lauk ég með Bsc. Hon. gráðu árið 1952. Varstu þá ákveðinn að fara í búskapinn heima? Já, ég var ákveðinn í því. Við stofnuðum þá félagsbú, faðir minn, Jón Egill bróðir minn, og ég. 4- FREYR 13-14/2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.