Freyr

Årgang

Freyr - 15.12.2000, Side 10

Freyr - 15.12.2000, Side 10
Nokkrar myndir sem sýna Ingimar við frumtamningu á hesti. a) Hesturinn leyfir að honum sé strokið. . b) Hesturinn látinn hlaupa. 'x,- c) Hesturinn eltir Ingimar. getur brennt fitu beint og hestur í góðri þjálfun getur notað sína eigin fitu sem orkugjafa. Vel þjálfaður hestur getur haft 50-60% meira súrefnisframboð en lítið þjálfaður hestur og brenni hann sinni eigin fitu með nægu súrefni er orkunýt- ingin mjög góð. Eg tel að þetta skýri m.a. hið geysilega úthald ís- lenska hestsins. Frumtamning hrossa Þú hefur líka kynnt þér nýjar að- ferðir við frumtamningu hesta og Italdið námskeið ífrumtamningum. Hvert er upphaf þess hjá þér? Eg hef verið að temja hross frá því ég var 10 ára gamall. Síðan, þegar ég kem hingað að Hvann- eyri, þá fer ég að kenna nemendum hrossarækt og tamningar. Árið 1993 fór ég svo á Equitana hrossa- sýninguna í Þýskalandi og þar sá ég Monty Roberts, sem er Banda- ríkjamaður og heimsfrægur tamn- ingarmaður, vera að sýna tamning- araðferð, sem hann hefur verið að þróa í 40 ár. Hún byggist á hegðun og skynjun hestsins jafnframt því að í stað þess að brjóta hestinn nið- ur og láta hann hlýða með valdi þá er hann fenginn til að koma til móts við tamningamanninn og treysta honum. Þetta er auðveldast ef til ráðstöfunar er hringgerði. Þegar ég kom svo heim þá fékk ég leyfi til að koma hér upp hring- gerði og prófa þessa aðferð við ís- lenska hesta. Það tókst mjög vel og síðan hef ég þróað hana og not- að við tamningu á yfir 900 hrossum hjá nemendum, á námskeiðum og mínum eigin hrossum og annarra. Hvert einasta þessara tryppa hefur brugðist vel við þessari aðferð og þau orðið meðfærileg og hefur verið hægt að fara á bak og ríða á þeim lausum í gerðinu strax á öðr- um degi, eftir aðeins tvær 15 mín- útna æfingar og ekkert síður á hrossum sem voru alveg ósnert fyr- ir. Eg hef fengið mikið af hrossum, sem menn voru búnir að gefast upp við, en hafa komið ágætlega út með þessari aðferð. 10 - FREYR 13-14/2000

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.