Freyr

Årgang

Freyr - 15.12.2000, Side 17

Freyr - 15.12.2000, Side 17
hann hljóp sem hraðast í sumar. Elísabet Fjeldsted kom með nýjan hlaupahest í kappreiðarnar, Kjark frá Ferjukoti, sem á næstbesta tímann í 350 metra stökki, 24,74 sek. Sylvía er með þriðja besta tímann á Kósa og Elísabet er með í 250 metra stökki og upplýsingum um úrslit sleppt. Ekki hefur tekist að ná upp staðl- aðri keppni í annað hvort 300 eða 350 metra stökki og er því keppt í hvorri sinni greininni á hestamót- um sumarsins. Sproti frá Arbakka og Aníta Aradóttir eru með tvo bestu tímana í 300 metra stökki. Besti tíminn kom á landsmótinu í Reykjavík, 21,67 sek, en sá næst- besti á stórmóti á Vindheimamel- um. Þetta er annað árið í röð sem Sproti og Aníta eiga besta tíma árs- ins í 300 metra stökki. Axel Geirs- son kom með nýjan spútník í hlaupagreinamar Leiftur frá Nyk- hól, og eiga þeir þriðja besta tím- ann, 21,84 sek., sem fékkst á lands- mótinu. Kósi frá Efri-Þverá hefur verið sigursæll á undanförnum árum og hann er með besta tíma sumarsins í 350 metra stökki, 24,34 sek. Tímann fékk Kósi 31. ágúst á einu af mörgum veðhlaupum Fáks. Stúlkur virðast vera afar grimmir knapar því að sem fyrr er sagt á Aníta Aradóttir bestu tímana í 300 metra stökki, en Sylvía Sigur- björnsdóttir var knapi á Kósa er 800 metra stökk. Gáska frá Þorkelshóli og Sigurþór Sigurðsson í besta 800 metra spretti sumarsins. 300 metra stökk. Sproti frá Arbakka náði besta tíma sumarsins í 300 metra stökki og er he'r með knapanum Anítu Aradóttur. fjórða besta tímann á Kná frá Skáney, sem einnig er nýliði í kappreiðum. 800 metra stökk Heldur hefur hallað á keppni í 800 metra stökki í sumar. Fáks- menn hafa öllu jafnan haft 800 metra stökk á dagskrá í veð- hlaupum sínum, en síðari hluta sumarsins var þátttaka ekki nægileg og ekki var keppt í greininni eftir 17. ágúst. Það er synd því að 800 metra stökk er hæfilega spennandi keppnisgrein fyrir áhorfendur. í öðrum hlaupa- greinum eru hestarnir varla komnir af stað er þeir eru komnir í mark og áhorfendur geta ekki spýtt nægilega miklu magni af adrenalíni út í blóðið til að fá fram spennusjokk. Gáska frá Þorkelshóli og Sigurþór Sigurðs- son fengu besta tíma ársins á landsmótinu í Reykjavík, 61,51 sek., og er það besti tími ársins a.m.k. síðastliðin þrjú ár. Lýsing- ur frá Brekku og Stígur Sæland eru þekkt kappreiðapar og eru með annan besta tíma sumarsins, 62,18 sek. FREYR 13-14/2000 - 17

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.