Freyr - 15.12.2000, Page 25
Sýningarhaldið
í hrossaræktinni 2000
Þátttaka
Það fór eins og spáð var í grein
með sama heiti hér í fyrra að mikill
fjöldi hrossa kom til dóms á árinu.
Alls urðu þetta 1771, dómur þar af
1578 fullnaðardómar. Munar hér
áreiðanlega mestu Landsmót í
Reykjavík sem margir höfðu löngu
sett stefnuna á. Alls voru haldnar
13 héraðssýningar víðsvegar um
landið en reyndar er það sýningar-
hald orðið í nokkuð föstum skorð-
um bæði hvað varðar staðsetningu
og tímasetningar. Vísað er til 7.
töflu um nánari fjöldatölur. Fyrsta
kynbótasýning ársins var haldin í
Víðidal og er það nokkur breyting
frá því sem verið hefur. Sýning
stóðhestastöðvarinnar hefur ávallt
verið fyrsta kynbótasýning ársins
en nú er stóðhestastöðin aflögð í
sinni mynd og því ekki lengur um
það að ræða. Sérstök vorsýning
stóðhesta á þó örugglega fullan rétt
eftir
Ágúst
Sigurðsson,
hrossa-
ræktar-
ráðunaut
BÍ
á sér og þarf að finna henni
skemmtilega og áhugaverða um-
gjörð í ljósi breyttra aðstæðna.
Starfsmenn
Sýningarhaldið er tvímælalaust
þungamiðjan í ræktunarstarfinu og
mæðir því mikið á dómurum og
öðru starfsfólki sýninganna að vel
takist til. I 2. töflu er skrá yfir
starfsfólk kynbótasýninganna
þetta árið. Tveir nýir dómarar
komu til starfa á árinu, þau
Valberg Sigfússon og Svanhildur
Hall. Þátttaka þeirra í dóms-
störfum átti sér allnokkurn
aðdraganda sem endaði með
nokkurra daga starfsþjálfun í vetr-
arlok og ströngu lokaprófi þar sem
reyndi á verklag þeirra frá ýmsum
hliðum. Má segja að þau séu full-
trúar nýrrar kynslóðar kynbóta-
dómara sem hafa auk háskólaprófs
í búvísindum góða undirstöðu-
menntun í reiðmennsku. Þegar við
bætist nokkurra ára reynsla af
kynbótadómum hjá slíku fólki
hlýtur fagmennska að vera tryggð í
þessari stétt í framtíðinni.
Niðurstöður
I ár var unnið eftir nokkuð
breyttu ræktunartakmarki og því
fróðlegt að skoða niðurstöður í
ljósi þess. Eins og menn rekur
minni til þá eru þær breytingar
fyrst og fremst nokkur uppstokkun
1. Tafla Fiöldi dóma á héraðssýninqum oa landssýninqu árið 2000
CJ E '3 3 u 3 •— C/5 CJ o c 3 u 3 — CA QJ 3 U 3 s. CJ 3 u 2 u 3 O o 3 U 3 3 u 3 3 u 3 3
— ■C xO <3 •C *o — *o W) C £ C/3 Cfl •*- Sa ■*«* C/3
'O > 'O 'O t U > u u
55 VC 55 IT) 55 3 X r- X 'sO X ITi X Tf <
Sk. Fd. Sk. Fd. Sk. Fd. Sk. Sk. Fd. Sk. Fd. Sk. Fd. Sk. Fd. Sk. Fd.
Víðidalur I í 24 24 10 8 13 7 1 9 9 2 2 0 0 0 0 59 50
Víðidalur II 2 26 23 19 14 19 15 1 75 70 35 32 34 30 18 15 227 199
Gaddstaðaflatir I 3 29 28 24 22 30 15 3 107 104 71 68 48 45 37 35 349 317
Vindheimamelar I 4 13 11 9 8 13 7 3 40 39 31 31 17 17 9 9 135 122
Húnaver 5 2 2 4 3 3 0 2 13 12 6 5 11 9 6 3 47 34
Melgerðismelar I 6 8 8 12 7 13 5 3 36 34 21 21 21 18 5 5 119 98
Borgames I 7 26 26 18 15 21 18 1 79 76 41 39 54 51 24 23 264 248
Stekkhólmi 9 3 2 4 4 1 1 1 20 19 6 6 9 9 5 4 49 45
Homafjörður 10 1 1 1 1 1 1 0 11 11 4 4 8 8 0 0 26 26
Landsmót 11 31 22 19 18 20 19 0 66 51 45 43 40 36 27 25 248 214
Vindheimamelar II 12 2 2 1 0 4 1 0 13 13 13 11 4 4 3 2 40 33
Gaddstaðaflatir II 13 7 7 0 0 1 1 0 65 63 26 25 30 29 15 11 144 136
Borgames II 14 2 2 0 0 0 0 0 6 6 2 2 4 2 0 0 14 12
Melgerðismelar II 16 1 i 0 0 1 0 0 16 15 22 20 8 7 2 1 50 44
Alls 175 159 121 100 140 90 15 556 522 325 309 288 265 151 133 1771 1578
FREYR 13-14/2000 - 25