Freyr - 15.12.2000, Síða 28
Dómsorö:
Afkvæmi Orra eru ríf meðalhross að stærð,
svipmikil en höfuðið iðulega gróft og holdugt, hálsinn
reistur en þykkur, herðar og bógalega frábær.
Prúðleiki á fax og tagl er einstakur. Bakið vel vöðvað
og lendin djúp en stutt. Afkvæmin eru hlutfallarétt en
bolur oft í dýpra lagi og síðurnar flatar. Fótagerðin er
í rúmu meðallagi; sinin öflug en sinastæði þröngt,
réttleiki stundum tæpur, en hófar frábærir að allri gerð.
Afkvæmi Orra eru framúrskarandi góð klárhross með
tölti og sum vel vökur þó hitt sé algengara. Tölt og
brokk er einstaklega taktfast, rúmt og lyftingarmikið.
Stökkið glæsilegt og ferðgott, viljinn góður og lundin
kjörkuð. Afkvæmin eru aðsópsmikil í reið. Einkenni á
afkvæmum Orra er hversu bráðþroska þau eru og
koma fljótt.
Orri er yfirburðahestur í íslenskri hrossarækt,
hann hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta
sætið.
81.1.87-020 Kolfinnurfrá Kjarnholtum 1.
Tölulegar niðurstöður:
Fjöldi dæmdra Fjöldi skráðra
afkvæma 88 afkvæma 437
Öryggi kynbótamats: 98%
Kvnbótamat: Höfuð 95 Tölt 119
Háls, herðar og bógar 104 Brokk 109
Bak og lend 118 Skeið 122
Samræmi 115 Stökk 117
Fótagerð 102 Vilji 119
Réttleiki 96 Geðslag 116
Hófar 104 Fegurð í reið 114
Prúðleiki 78 Hæð á herðar 2.9
Aðaleinkunn 121
Dómsorð:
Afkvæmi Kolfinns eru stæðileg hross en nokkuð
grófgerð. Höfuðið er stórt og gróft á mörgum afkvæm-
anna. Hálsinn er sver en þokkalega reistur, herðar háar
og bógalega góð. Bakið er breitt og lendin öflug. Þau
eru bolmikil en þó fótahá og hlutfallarétt. Fótagerð og
hófar eru sæmilegir en réttleiki í tæpu meðallagi.
Óprúðleiki á fax og tagl lýtir. Afkvæmi Kolfinns eru
mörg hver voldug ganghross og framgangan einkennist
af miklu gangrými og hressilegu fasi. Þau eru ásækin í
vilja og kjörkuð, fjölhæf og rúm, með góðum fóta-
burði.
Kolfinnur gefur afkastahross í fremstu röð, hann
hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og annað sætið.
B. Stóðhestar með afkvæmum - Fyrstu verðlaun
88.1.65-895 Gusturfrá Hóli II
Tölulegar niðurstöður:
Fjöldi dæmdra Fjöldi skráðra
afkvæma: 27 afkvæma: 168
Öryggi kynbótamats: 93%
Kvnbótamat:
Höfuð 104 Tölt 123
Háls, herðar og bógar 113 Brokk 123
Bak og lend 113 Skeið 118
Samræmi 125 Stökk 126
Fótagerð 100 Vilji 126
Réttleiki 139 Geðslag 122
Hófar 111 Fegurð í reið 121
Prúðleiki 96 Hæð á herðar -0.8
Aðaleinkunn 126
Dómsorð:
Afkvæmi Gusts eru tæplega meðalhross að stærð.
Þau eru fremur höfuðgróf en svipgóð. Hálsinn er nokk-
uð stuttur en mjúkur og vel settur. Þau eru hlutfallarétt.
Fótagerð er í meðallagi en réttleiki frábær. Afkvæmin
eru skrokkliðug og fremur hreingeng. Töltið er lyfting-
argott, brokkið rúmt og skeiðið hreint. Þau eru þjál í
lund og ágætlega viljug.
Gustur gefur fim og þjál ganghross, hann hlýtur 1.
verðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta sætið.
Gustur 88165895
Kolfinmtr 81187020
28 - FREYR 13-14/2000