Freyr - 15.12.2000, Blaðsíða 37
WorldFengur
- miðlægur og alþjóðlegur
gagnagrunnur um íslenska hestinn
WorldFengur er tölvukerfi
á netinu sem opnar að-
gang að gagnagrunni
sem inniheldur upplýsingar um ís-
lensk hross í aðildarlöndum FEIF.
WorldFengur er samstarfsverkefni
Bændasamtaka íslands og FEIF
um uppbyggingu á miðlægu
gagnagrunnskerfi sem á að inni-
halda hross af íslenskum uppruna.
I upphafi er aðeins gagnagrunnur
Bændasamtakanna, Fengur, í
grunninum. Smátt og smátt bætast
síðan við í gagnagrunninn hross
sem flutt hafa verið frá íslandi og
afkomendur þeirra. Þar með bygg-
ist upp gagnagrunnur aðildalanda
FEIF sem heita á WorldFengur.
Bændasamtök Islands hafa unnið
að smíði tölvukerfisins og gagna-
grunnsins WorldFengs á árinu
2000 og eru eigandi og umsjónar-
aðili kerfisins. Gögnin verða hins
vegar sameign þeirra landa sem
gerast áskrifendur og leggja inn
gögn. Þó að um einn gagnagrunn
sé að ræða í eiginlegri merkingu
þess orðs þá mun hvert land eiga
og bera ábyrgð á sínum hluta
grunnsins.
Þetta má betur sjá á 1. mynd.
Gagnagrunnur WorldFengs er
heildarhringurinn. Innan hvers
hluta eru síðan hross sem fæðst
hafa eða eru í viðkomandi landi.
Eignaraðild, ábyrgð, umsjón og að-
gangsheimildir skiptast á milli
landa miðað við þessa hluta
grunnsins. Þannig hefur t.d. Dan-
mörk umsjón með sínum hluta og
ber ábyrgð á að fylgt sé eftir regl-
um um skráningu. Þessu má líkja
að nokkru leyti við landamæra-
vörslu á milli ríkja þar sem eftirlit
með einstaklingum færist á milli
ríkja þegar hann flyst á milli þeirra.
eftir
Jón B.
Lorange,
forstöðu-
mann
tölvudeildar
Bænda-
samtaka
íslands
Hross komast aðeins inn í grunninn
ef hægt er að rekja uppruna þeirra
til hrossa sem flutt voru frá íslandi.
WorldFengur er smíðaður með
JDeveloper þróunarverkfæri frá
Oracle. Gagnagrunnurinn er í
Oracle 8i grunni. JDeveloper er
tiltölulega nýtt þróunnarverkfæri
sem gerir kleift að byggja upp
tölvukerfí á netinu, þannig að hið
eina sem þarf til að hafa aðgang að
því er vefrápari og tenging við
Intemetið. Notendur hafa beinan
aðgang að miðlægum gagnagrunni
- WorldFeng. Allar breytingar á
gögnum koma fram samstundis hjá
öllum notendum hvar sem er í
heiminum. Og með sama hætti og
allir notendur vinna í einum mið-
lægum gagnagrunni nota allir not-
endur nýjustu útgáfu tölvukerfisins
þar sem WorldFengur uppfærist
sjálfkrafa á netinu. Notendur þurfa
aðeins að þekkja réttu slóðina að
1. mynd. Sjá texta.
FREYR 13-14/2000 - 37