Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.2000, Blaðsíða 48

Freyr - 15.12.2000, Blaðsíða 48
alsteinsson hagyrðingur og ræðumaður kvöldsins Guðni Agústsson land- búnaðarráðherra. Knapi ársins var valinn Logi Laxdal og var það fyrst og fremst Islandsmet í 150 metra skeiði á Þormóði ramma frá Svaðastöðum á 13,62 sekúndum, sem lagði grunninn að útnefn- ingu Loga. Hann náði að auki góðum árangri í skeiðkappreiðum, kyn- bótasýningum og keppn- um á árinu. Islandsmetið var staðfest á ársþingi LH í lok október. Ræktunarmenn ársins voru þeir bræður í Kirkju- bæ, Guðjón og Ágúst Sig- urðssynir. Mikill fjöldi hrossa frá Kirkjubæjarbúinu náði fyrstu verðlaunum á árinu og þar á meðal voru tveir stóðhestar þeir Penni og Spegill. Verðlaunin afhenti Ari Teitsson formaður stjórnar Bændasamtak- anna. Umhyggja og ábyrgð Verkefninu „Umhyggja og ábyrgð“ var hrint af stað á árinu 2000 og er markmið þess að kynna íslenska hestinn fyrir grunnskóla- bömum. Farið var í samvinnu við íshesta í Hafnarfirði og fer starfið fram í hestamiðstöð þeirra, en stefnt er að því að það fari víðar um land. Kynningin fer þannig fram að krakkamir koma og dvelja hálfan dag í Hestamiðstöðinni og fá bók- lega kennslu jafnt sem verklega. titbúið hefur verið gott námsefn,i sem þau fá, og í lok dagsins fá krakkarnir viðurkenningu fyrir þátttöku. Mikill áhugi og ánægja hefur verið með þetta verkefni og standa vonir til að það geti skipað sess í skólahaldi íslenskra barna. inga. Einnig er rétt að þakka Anne Elwell á Helms Hill búgarðinum sem tók við hestunum og sá um þá fram að afhend- ingu, sem og Birgu Wild tamningakonu sem sá um þjálfun þeima og undir- búning fyrir framtíðar- starfið á Green Chimneys. Sérstakar þakkir fær Holly Nelson hjá Horses North, sem tók að sér að skoða þá staði er til greina komu og hefur verið tengiliður við Green Chimneys frá upphafi. Þessar konur tryggðu það að afhending hestanna og val á heimili fyrir þá tæk- ist vel og leystu þær vel úr þeim vandamálum er upp komu á leiðinni. Markaðsfulltrúi sótti líka sýningar og mót í Bandaríkjunum og starf- aði áfram að markaðsstarfi þar, m.a. í íslensk-amer- íska hestaráðinu sem unn- ið hefur að fjölmiðlakynn- ingu á íslenska hestinum í Bandaríkjunum. Eldra kynningarefni fé- lagsins var endurprentað á árinu og út kom nýr bæklingur á ensku um íslenska hestinn þar sem algengustu spumingum um hann er svarað. Einnig gaf Útflutnings- og markaðsnefnd út bækling á ijómm tungumálum; ensku, þýsku, ítölsku og frönsku, og var honum dreift, m.a. á Heimssýningunni í Hannover. Námsefni í tengslum við verk- efnið „Umhyggja og ábyrgð" kom líka út á árinu 2000. Tollamál I tollamálum er svipuð staða og verið hefur en þó hefur tekist að fá tolla niðurfellda af 200 hrossum til Noregs. Önnur tollamál eru óbreytt, en landbúnaðarráðijneytið ntun vera að vinna í tollamálum í Evrópu og sóttkvíarmálum í Bandaríkjunum. Hestum gefið úti. (Ljósm. Jón Eiríksson, Búrfelli). Ferðir erlendis/ kynningarefni Markaðsfulltrúi fór þrjár ferðir til Bandaríkjanna á árinu til að sinna markaðsmálum. Mest sner- ust ferðirnar um undirbúning og afhendingu hestanna Reimars og Spaða er forsetafrú Bandaríkjanna, Hillary Clinton, hafði fengið að gjöf frá íslendingum í fyrra. Hest- unum hefur nú verið valið heimili á stað sem heitir Green Chimneys og er skóli/heimili fyrir börn er hafa lent í erfiðleikum í lífinu. Mikið af dýrum er á staðnum og er það hluti af endurhæfingu barnanna að hirða dýrin, ríða út o.il. Óhætt er að segja að Reimar og Spaði hafi fengið hlýjar mót- tökur þar og tárfelldu menn yfir þessari rausnarlegu gjöf Islend- 48- FREYR 13-14/2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.