Freyr - 15.12.2000, Page 49
Hvað er meira hressandi en útreiðartúr á fögrum vetrardegi. (Ljósm. Jón
Eiríksson, Búrfelli).
Útflutningur
Fjöldi útfluttra hrossa til ein-
stakra landa er nokkuð breytilegur,
flestir minni markaðir halda sínu
nokkum veginn, auk þess sem Sví-
þjóð heldur forystunni sem helsta
útflutningslandið með 543 hross,
sem er svipað og í fyrra.
Utflutningur til Þýskalands
dregst enn saman, en þó hefur farið
þangað 361 hross það sem af er ári.
Aukning er í útflutningi til Austur-
ríkis, Belgíu, Færeyja, Kanada,
Noregs og Bandaríkjanna, en Nor-
egur og Bandaríkin eru nú í 3. og 4.
sæti yfir þau lönd sem flest hross
eru flutt til.
Fleiri hross gætu verið farin til
Bandaríkjanna en takmarkað pláss
er í sóttkví þar ytra og bíða hross
þess að komast út.
Afsetning hrossa
Staða kjötmála er góð um
þessar mundir, útflutningur jókst
á árinu óg greina menn hér aukinn
áhuga á að koma hrossum í
sláturhús. Meiri eftirspurn var eft-
ir kjöti en hægt var að koma til
móts við og var helst um að kenna
flutningsgetu okkar sem er ekki
nógu mikil.
Frampartamir eru enn vandamál
og þarf að fmna leið til að koma
þeim í verð.
Þreifað hefur verið á möguleik-
um í Sviss en þar er almenn hefð
fyrir neyslu hrossakjöts og virðist
vera góður markaður fyrir folalda-
kjöt. Gott verð er greitt fyrir
hrossakjöt í Sviss.
Gæöavottun
Fimmtán hrossaræktarbú hafa
hlotið gæðavottun á landnýtingu,
sem er hluti af gæðastjórnunarkerfi
í hrossaræktinni. Viðurkenningarn-
ar vom afhentar á ársþingi LH af
Guðna Ágústssyni landbúnaðar-
ráðherra og Sveini Runólfssyni
landgræðslustjóra. Formaður Fé-
lags hrossabænda, Kristinn Guðna-
son, fjallaði um gæðastýringuna í
ávarpi sínu þar sem hann sagði að
stefnt væri að því að gæðastýring
yrði hagkvæm, einföld, skilvirk og
síðast en ekki síst trúverðug. Einn-
ig tóku til máls Ari Teitson, for-
maður BÍ, og Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra sem kvaðst
mjög ánægður með þróun mála í
hrossaræktinni og að framtíðin
lægi í gæðastýringu, góðri meðferð
á hrossum jafnt sem landi.
Búin sem hlutu viðurkenningu
em: Hólaskóli, Kýrholt, Narfastað-
ir, Ásgeirsbrekka, Þóreyjarnúpur,
Fet, Kirkjubær, Þingnes, Hafsteins-
staðir, Lundar II, Ytra-Skörðugil,
Keldudalur, Jarðbrú, Bakki og
Litli-Dalur.
Mikill áhugi er fyrir verkefninu
og nokkuð margir búnir að sækja
um að vera með.
Átaksverkefni
Hulda Gústafsdóttir hefur verið
ráðin til að stýra Átaksverkefni í
hrossarækt sem er samvinnuverk-
efni Félags hrossabænda, Lands-
sambands hestamannafélaga, Fé-
lags tamningamanna og Bænda-
samtaka Islands og skipar hvert
félag einn mann í stjórn. Fyrir
hönd Félags hrossabænda situr
Ármann Ólafsson í Litla-Garði í
stjórn. Tvö verkefni voru sett á
oddinn. I fyrsta lagi viðurkenning
á Islandi sem upprunalandi ís-
lenska hestsins og í öðru lagi
stefnumótunarvinna og markaðs-
setning samstarfs félaganna sem
standa að verkefninu. Ráðgjafa-
fyrirtækið KGMP hefur þegar haf-
ið upphafsvinnu og skiptist það í
þrjá meginþætti; stjórnunarlegt
umhverfi, samkeppnisumhverfi og
félagskerfi hestamanna.
Ákveðið var að leigja skrifstofu
fyrir Átaksverkefnið hjá Lands-
sambandi hestamannafélaga í
Iþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Að lokum
Eins og áður hefur verið getið
hætti Hulda G. Geirsdóttir störfum
fyrir Félag hrossabænda í október
sl. og þakkar stjórn félagsins henni
gott og traust starf þann tíma sem
hún vann fyrir félagið.
Stjóm Félags hrossabænda þakk-
ar öllum hrossaræktendum, sam-
starfsaðilum sem og öðrum sam-
starfið á árinu 2000 og óskar þeim
velfamaðar á nýrri öld.
FREYR 13-14/2000-49