Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.2000, Síða 50

Freyr - 15.12.2000, Síða 50
Mat á holdafari hrossa S síðustu árum hefur orðið viðhorfsbreyting hjá bæði hestamönnum og almenn- ingi hvað varðar fóðrun og aðbún- að hrossa. Þetta kemur fram í kröf- um um bætta forðagæslu og gæða- stýringu í hrossarækt sem nú er far- in í gang. Skynsamleg fóðrun hrossa mun ævinlega byggja að miklu leyti á mati á holdafari einstakra hrossa, þar sem fóðurþarfir eru mismun- andi milli einstaklinga. Það hefur tíðkast í gegnum tíðina að taka á hrossum og fóðra samkvæmt því. Hestamenn hafa þar byggt á eigin reynslu og forfeðranna, oftast með góðum árangri en stundum hefur orðið misbrestur þar á. Nú verður hins vegar ekki hjá því komist að skilgreina og setja á blað leiðbeiningar um þetta erfiða og nokkuð viðkvæma mál, sem mat á holdafari hrossa er. Leið- beiningarnar eru ætlaðar hverjum þeim sem fóðrar hross og sem viðmiðun við forðagæslu og gæðastýringu. Það er hrossaeig- andinn eða aðili sem tekið hefur að sér að fóðra hross fyrir aðra sem er ábyrgur fyrir því að fóðr- unin sé í lagi og þarf að vera dóm- bær á hvað eru hæfileg hold á hesti. Sú ábyrgð verður ekki færð yfir á eftirlitsaðilann og framtíðar- sýnin hlýtur að vera sú að opinbert eftirlit sé ónauðsynlegt. Eftirfarandi kvarði hefur verið notaður undanfarin ár við Hóla- skóla og er hann unnin með hlið- sjón af erlendri fyrirmynd en sér- staklega sniðinn að íslenskum að- stæðum. (National Research Coun- cil 1989. Nutrient Requirements of Horses, (5th edition). National Academy Press, Washington D.C.; Pagan, J.D. (editor) 1998. Advanc- es in Equine Nutrition, Kentucky Equine Research, Notthingham University Press, UK.) eftir Guðrúnu Stefánsdóttur, kennara og Sigríöi Björnsdóttur, dýralækni í hrossa- sjúkdómum, Hólaskóla Notkun á skalanum Flest hross fá holdastig á bilinu 2-4. Sé hrossið með holdastig 2 er það í mjög slæmu fóðurástandi. Þannig hross þarf að fóðra sérstaklega, og þau geta ekki gengið úti að vetrarlagi nema þau komist í mjög gott skjól í eða við hús. Holdastig 1-1,5 eiga ekki að sjást og varða við dýraverndar- lög. Reiðhestshold eru eins og nafnið bendir til hæfileg hold á hesti f brúkun og einnig telst það holdafar viðunandi fyrir útigönguhross að vori. Hins vegar eru reiðhestshold Vinsamlega athugið að Stóð- hestaskýrsla og Fangvottorð eru jafngild og er ætlast til að umsjónar- menn stóðhesta skili ávallt inn stóð- hestaskýrslu til skráningar. Fang- vottorðið er hins vegar baktrygging hryssueigenda vegna gæða- knöpp að hausti, eigi hrossið að ganga úti yfir veturinn. Hross sem eru að fara á útigang þurfa síðla hausts að hafa gott fítulag undir húð (holdastig 3,5-4). Það virðist auka kuldaþol þeirra og gerir þau betur í stakk búin að standa af sér illviðri. Hafi hrossið holdastig 4 er það orðið vel feitt og því vel undir útigang búið. Astæðulaust er að hross séu feitari en svo. Hross sem eru með 5 í holdastig hafa haft óhóflegan aðgang að fóðri og telst það ekki góð meðferð enda getur það komið niður á heilsufari þeirra. Aðbúnaður Nú hefur tekið gildi ákvæði um hrossaskjól í reglugerð um að- búnað og heilbrigðiseftirlit hrossa frá 1999. Reglugerðin hefur verið kynnt ítarlega og nær tveggja ára aðlögunartími var veittur til að uppfylla skilyrði um hrossaskjól. Forðagæslumenn munu við komandi vorskoðun afla upplýsinga um hrossaskjól og þar sem þau eru óviðunandi verður krafist skjótra úrbóta. Sveitarstjórnum er heimilt að banna útigöngu hrossa á viðkom- skýrsluhalds ef umráðamaður stóð- hests sinnir ekki því hlutverki sínu að senda inn stóðhestaskýrslu. Þessi eyðublöð má nálgast hjá bún- aðarsamböndum eða á hrossa- ræktarvef bondi.is. Tilkynning 7/7 þátttakenda í skýrsluhaldi í hrossarækt 50 - FREYR 13-14/2000

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.