Freyr - 15.12.2000, Qupperneq 53
rekstri félaga í hestageiranum en
LH, F.hrb. og FT hafa sameinast
um skrifstofurekstur á einum stað í
Laugardal.
A árinu hefur mikið verið unnið í
því áhersluverkefni að afla Islandi
alþjóðaviðurkenningu sem upp-
runaland íslenska hestsins. Lykil-
atriði til þess hefur verið talið að
hanna miðlægan gagnagrunn um
íslenska hrossastofninn á heims-
vísu og koma á fót alþjóðlegu
skýrsluhaldi fyrir íslensk hross.
Einnig að setja sérstaka reglugerð
um þessi mál sem tryggi forystu og
áhrif íslendinga við ræktun ís-
lenska hestakynsins um framtíð og
umfram allt tryggi rétta skilgrein-
ingu á því hvað telst vera hreinn ís-
lenskur hestur. Hér hefur mikið
áunnist á árinu og ber þar hæst hinn
fjölþjóðlega og netvædda gagna-
grunn WorldFeng sem unnið var að
allt þetta ár en forritun við hann er
kostuð að stærstum hluta af átaks-
verkefninu. Hér er um að ræða net-
aðgengi að skilgreindri uppruna-
ættbók íslenska hestakynsins, auk
alþjóðlegs skýrsluhalds fyrir ís-
lensk hross. Nú þegar eru öll ís-
lensku gögnin komin á sinn stað og
hvert landið á fætur öðru að undir-
búa sig með að hlaða upplýsingum
um íslensk hross erlendis þar inn.
Sömu sögu er að segja um fyrr-
nefnda reglugerð en undirbúningur
hennar hefur staðið allt árið og
verður hún væntanlega undirrituð
af ráðherra á næstu vikum. Þá er
reyndar ekki nema hálfur sigur
unninn því að eftir er að fá hana
samþykkta hjá Evrópusambandinu
(ESB) og síðan einstökum löndum
þar sem íslensk hross eru haldin.
Gæðastýring hefur verið í und-
irbúningi og þróun á árinu á þáttum
sem taka á áreiðanleika ættar og
uppruna, landnýtingu og umhirðu.
Þessi vinna hefur verið í höndum
Bændasamtaka Islands í samvinnu
við Landgræðslu rikisins og em-
bætti yfirdýralæknis. Tilraunaút-
gáfa af öllu þessu ferli er nú í
gangi. Þegar reynsla kemur á hana
vorið 2001, en þá hafa fyrstu búin
gengið alla leiðina, kemur í ljós
hvemig markaðssetningu á þessu
verður best háttað. Kemur þá vænt-
anlega til kasta átaksins. Á t a k i ð
hefur beitt sér fyrir undirbúningi á
heildarstigun reiðkennslu frá
byrjendum til atvinnumanna á ár-
inu. Þar er í undirbúningi heildstætt
menntunarkerfi fyrir hestamenn
þar sem hvert námsstig er útfært í
hörgul og allt nauðsynlegt náms-
efni skal liggja fyrir. Fyrir tilstuðl-
an átaksins var Hólaskóli fenginn
til að vinna greinargerð um stöðu
' hestamenns^
FT
. ^SFÉLAG
HROSSABÆNDA
w
þessara mála, sérstaklega hvað
áhrærir námsefnisgerð og koma
með tillögur um vænlega vinnu-
áætlun sem miði að því að kerfi
þetta verði tilbúið sem fyrst.
Greinagerðin liggur fyrir og vinna
með útfærslu á hverju námsstigi,
gerð námsefnis og tilraunakennslu
fer væntanlega af stað á nýju ári.
Allt það sem hér hefur verið nefnt
snýst með einum eða öðrum hætti
um markaðsstarf þó svo að það sé
flokkað undir öðrum atriðum. I
verkefnalista samningsins er samt
sem áður talað um sérstakt kynn-
ingar- og markaðsátak og nokkur
atriði talin til undir þeim hatti.
Nákvæm útfærsla á þessum atriðum
bíður þess að stefnumótunarferlinu
ljúki en örugglega mun þessi þáttur
vega mikið á seinna tímabili
átaksverkefnisins. Á þessu fyrsta ári
var þó unnið í tveimur veigamiklum
málum sem tilheyra þessum mála-
flokki. Annars vegar er um að ræða
stofnun einkahlutafélagsins Lands-
mót ehf. þar sem átaksverkefnið
lagði til stofnhlutafé. Með stofnun
þessa hlutafélags er verið að stíga
mikilvægt skref til þess að skerpa á
rekstri landsmótanna til framtíðar,
auk þess sem formlega er verið að
skilgreina samstarf LH og BI um
þessi mót sem hingað til hefur í raun
verið óskilgreint. I annan stað tók
átakið þátt í stofnun einkahlutafé-
lagsins Eiðfaxa Net ásamt með Eið-
faxa ehf. og Hestamiðstöð íslands.
Hér er um að ræða það sem kalla má
eina gátt inn í samfélagið um ís-
lenska hestinn á netinu, e.k. gulu síð-
ur hestamennskunnar. Takist vel til
er ekki að því að spyija að hér er
komið öflugt tæki til markaðssóknar
íslenska hestsins á nýjum slóðum.
I 3. gr. samningsins er kveðið á
um að samningsaðilar muni leita
eftir því við stjóm Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins að sjóðurinn veiti
framlög til rannsóknarverkefna
og rannsóknartengdra viðfangsefna
sem tengjast átakinu. Rétt er að geta
þess að á árinu fór af stað afar þýð-
ingarmikið rannsóknarverkefni sem
einmitt er styrkt fyrir fé úr Fram-
leiðnisjóði, sem er sumarexem-
rannsóknin á Keldum. Þetta rann-
sóknarverkefni var að sjálfsögðu
tilkomið allnokkru fyrir tilurð
átaksins. Annað rannsóknatengt
verkefni sem fór af stað í lok ársins,
og einnig er á áherslulista átaksins
yfir rannsóknir, er uppsetning á
DNA-ætternisgreiningum út frá
blóð- og hársýnum. Þetta tengist
rannsóknarverkefni á Keldum um
erfðabreytileika innan íslenska
hrossakynsins og hlaut styrk úr
stofnvemdarsjóði íslenska hestsins.
Tilkynning
7/7 skýrsluhaldara og
áhugafólks um hrossarækt
Nánari upplýsingar um skýrslu-
hald og þar með talið gæðaskýrslu-
hald í hrossarækt má nálgast á
hrossaræktarvef bondi.is. Töflu- og
töluefni sem áður hefur verið gefið
út í ritunum Hrossaræktin I og II
birtist nú alfarið á hrossaræktavef
bændasamtakanna www.bondi.is
FREYR 13-14/2000 - 53