Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.2000, Síða 63

Freyr - 15.12.2000, Síða 63
Hestamenn ársins! sér um þetta val. Einnig voru tilnefnd ræktunarbúin Þúfa, Fet, Lækjarbotnar, Holts- múli, Vötmúli, Auðsholtshjáleiga, Þóreyjarnúpur, Hólar og Ket- ilsstaðir. Að venju var hátíðin mjög vel sótt og þótti takast afbragðs vel. Ljósmyndir: Eiðfaxi/Hulda G. Geirsdóttir. Hin árlega uppskeruhátíð hestamanna var haldin á Broadway hinn 18. nóvem- ber sl. Þar voru samkvæmt hefð til- nefndir knapar og ræktunarmenn ársins. Skeiðknapinn kunni og ný- krýndur íslandsmethafi í 150 m. skeiði, Logi Laxdal, var útnefndur knapi ársins en auk hans voru til- nefndir þeir Sigurbjöm Bárðarson, Atli Guðmundsson, Vignir Jónas- son, Hinrik Bragason, Sveinn Ragnarsson og Þórður Þorgeirsson. Það eru hestafréttamenn sem sjá um valið á knapa ársins. Titilinn ræktunarmenn ársins hlutu að þessu sinni bræðurnir Agúst og Guðjón Sigurðarsynir í Kirkjubæ en fagráð Kynbótamat í hrossarækt... Frh. afbls. 56 einn einstakur eiginleiki og hefur því ekki áhrif á kynbótamat annarra eiginleika né á kynbótamat aðal- einkunnar. Kynbótamatið á hæð á herðar er gefið upp í sentimetrum og er tölustærðin óháð mæliaðferð (band eða stöng). Kynbótamat er reiknað út fyrir alla eiginleika dómstigans, þ.e. höf- uð, háls, herðar og bóga, bak og lend, samræmi, fótagerð, réttleika, HÓfa og prúðleika á fax og tagl og kostina: Tölt, Hægt tölt, brokk, skeið, stökk, vilja, geðslag, fegurð í reið og fet og loks fyrir kynbótamat aðaleinkunnar. Rétt er að benda á að gefið er upp aðskilið kynbóta- mat fyrir vilja og geðslag þrátt fyrir að þessir eiginleikar séu nú stigaðir saman. Þetta mun væntanlega breytast á næstu ámm. Afkvœmi dœmd = D, segir til um fjölda fulldæmdra afkvæma hross- anna sem í hlut eiga. Með saman- burði á þessum dálki við síðasta dálkinn er hægt að fá hugmynd um hversu vel afkvæmi undan einstök- um hrossum skila sér til dóms. Öryggi í kynbótamati aðaleink- unnar = Ö, er gefið upp sem hundr- aðshluti (%) og segir til um hve miklar líkur em á að hið metna kyn- bótagildi (útreiknaða) sé hið raun- vemlega kynbótagildi gripsins er í hlut á. Afkvœmi skráð = A, merkir hversu mörg afkvæmi hrossið á í Feng þegar uppgjör fór fram. Tákn fremst í línum merkja: - Hrossið er dautt. # Hrossið hefur verið selt úr landi. * Um gelding er að ræða sem þó hefur verið heill um eitthvert skeið ævinnar og getið af sér af- kvæmi. FREYR 13-14/2000 - 63

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.