Freyr - 01.05.2001, Side 70
gefið á garða á innistöðu, ásamt
moði sem hlutfalli af heygjöfinni.
Heyforði búsins var ágætur að
gæðum eins og undanfarin ár.Yfir
veturinn var ánum eingöngu gefið
rúllubundið hey, en þurrhey fengu
alla bomar ær á húsi og tvílembur
eftir að þær komu út. Að jafnaði
voru 0,50 FE í kg af rúllubundna
heyinu og 0,65 FE í kg af þurrhey-
inu. Þurrefni rúllnanna var að með-
altali 72%, var lægst 67% í mars-
töðunni og hæst um 80% í janúar
og febrúar. Meðalleifar ánna á
rúlluheyinu yfir veturinn voru
6,4% eða 120 g á dag til jafnaðar.
Byrjað var að gefa fiskimjöl í byrj-
un apríl, um 40 g á dag, og
skammturinn aukinn í 60 g hjá
óbomum ám í maíbyrjun.
Bomar ær á húsi fengu þurrhey
að vild og tvflembur 200 g af
kögglaðri hápróteinblöndu. Eftir að
tvílembur komu á tún höfðu þær
frjálsan aðgang að þurrheyi og með
því var þeim gefið um 150 g af há-
próteinblöndu. Einlembum var ein-
göngu gefin rúllubundin taða en
ekkert kjamfóður. Útiheygjöf var
hætt um miðjan maí. Meðalfóður
gefið á á yfir veturinn nam alls
203,4 FE, eða 1,00 FE á dag til
jafnaðar, sem er 0,07 FE minna á
dag en sl. vetur.
Afurðir ánna
Af 467 ám, sem lifandi voru í
byrjun sauðburðar, báru 446 ær 850
lömbum eða 1,91 lambi á á til jafn-
aðar, sem er 0,01 lömbum fleira en
vorið 1998. Algeldar urðu 14 ær
Tafla 2. Meðalfóður á á
Fóður- Heyleifar FEá FEá
Mánuður dagar- Heyfóður kg /dag % Kjarnfóður g/dag dag mánuði
Þurrhey Rúllur Fiskim. Fóðurbl.
Nóvember 16 2,18 3,8 1,05 16,8
Desember 31 2,17 6,5 1,08 33,5
Janúar 31 1,57 10,4 0,80 24,7
Febrúar 29 1,76 8,6 0,93 26,9
Mars 31 2,12 5,7 0,99 30,7
Aprfl 30 2,35 6,0 1,21 36,4
Maí 31 0,62 1,11 3,9 37 89 1,05 32,2
Júní 2 0,73 28 89 0,54 2,2
Fóður alls á á 203 22,1 372,5 6,4 1,98 3,12 1,00 203,4
Tafla 3. Meðalfæðinqarþungi lamba, kg.
Lömb 2000 1999 1998 1997 1996 1995 1994 1993 1992 1991
5 fjórl. hrútar 3,26 2,82 2,91
7 fjórl. gimbrar 2,71 3,08 2,63
45 þrfl. hrútar 3,43 3,59 3,32 3,61 3,37 3,61 3,41 3,29 3,00 2,78
51 þrfl. gimbur 3,19 3,33 3,16 3,53 3,23 3,23 3,28 3,38 2,98 2,69
324 tvfl. hrútar 3,94 4,19 4,01 4,16 3,96 4,05 4,04 4,01 3,89 3,42
336 tvfl. gimbrar 3,80 3,99 3,88 3,94 3,82 3,87 3,93 3,86 3,60 3,26
38 einl. hrútar 4,52 4,90 4,73 4,86 4,78 4,80 4,86 4,82 4,61 4,30
42 einl. gimbrar 4,54 4,57 4,50 4,72 4,50 4,53 4,65 4,41 4,50 4,17
70 - pR€VR 6-7/2001