Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2001, Síða 9

Freyr - 01.11.2001, Síða 9
sem stunda nú fjamám við Hvann- eyrarskólann. Verknámið? Alveg frá stofnun var mikið verknám við bændaskólana enda þörfin mikil. Einkum liefur verið rómað hve nemendur í Olafsdal náðum góðum tökum á búsmíði. Um aldamótin 1900 höfðu þeir smíðað meirihlutann af hestvögn- um sem þá vom til á Islandi, en þeir vom raunar ekki margir. Þegar ég kom fyrst að Hvanneyri sem nemandi áttum við að vinna þar 780 tíma í verknámi. Þá fór öll vinnan fram á skólabúinu en nem- endur voru þá það margir og kenn- arar fáir að skólinn réði illa við þetta. Skömmu síðar var verknám- ið stytt um helming. Það var þó bullandi óánægja meðal nemenda með þetta nám enda var þetta ólaunuð vinna en nóg um aðra vinnu. Eg held að skólabúið hafí heldur ekki grætt á verknáminu, þó að nemendur héldu öðm fram. Vanda- málið var að það vom ekki til bú- vélar fyrir alla þessa nemendur til að læra á og búreksturinn var ekki nógu fjölbreyttur. Menn vom því látnir ganga í alls konar störf sem þeir þóttust kunna. Það dró svo smám saman úr þessu námi og það var fellt inn í bóknámstímanum og takmarkaðist að lokum við viðgerð véla, verk- nám í mjöltum, og hirðingu sauð- fjár. Þá kom fram krafa frá bænda- samtökunum um að efla þyrfti verknámið og með lögum um bú- fræðslu frá árinu 1978 var ákveðið að flytja það út til bænda og að það skyldi standa í 13 vikur. Um líkt leyti er Sigtryggur Bjömsson ráð- inn kennari að Hvanneyri og hann tók við umsjón með því. Eg og fleiri spáðum illa fyrir þessu, við töldum að nemendur myndu ekki sætta sig við þetta. Það er að vísu eitthvað um að nemendur hafi verið óánægðir og talið sig lít- ið hafa lært á þessu námi. Mikill meirihluti hefúr hins vegar verið Úrtilraunagarðinum á Hvanneyri. ánægður þegar frá hefúr liðið og talið það eðlilegan og gagnlegan hluta af búfræðináminu. Það hefur verið leitast við að nemendur fari til verknáms á nýjar slóðir, fjarri heimahögum, og oft hafa myndast varanleg vináttubönd heimafólks og verknema. Verknemar eiga að skila 40 tíma vinnuviku fyrir kennslu sem þeir njóta á búinu og uppihald. Þeir halda dagbók um störf sín og annað sem fyrir ber á bænum og þeir eiga að skrifa ritgerðir um afmörkuð efni sem tengjast búinu og sveitinni þar sem þeir eru. Ég tel að það megi þakka Sig- (Ljósm. Björn Þorsteinsson). tryggi að verulegu leyti hve vel þetta nám hefúr tekist á Hvanneyri sem hann hefur mótað manna mest. Auk þess hefúr verið kennd verk- leg vélfræði á skólanum, reyndar aðallega logsuða og rafsuða en nú er það orðið á fárra færi að fram- kvæma meiriháttar viðgerðir á bíl- um og dráttarvélum heima á bæjum vegna þess hve tækin eru orðin margbrotin. Þá hafa verið kenndar mjaltir og meðferð mjaltavéla, bú- fjárdómar og rúningur. Auk þess hafa tamning hrossa og búsmíðar, þar sem menn hafa smíðað áhöld úr jámi fyrir sjálfa sig, verið valgrein- ar. FR€VR 11/2001 - 9

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.