Freyr

Volume

Freyr - 01.11.2001, Page 15

Freyr - 01.11.2001, Page 15
ungsgrjóti og smærra grjóti í bland. Varast ber eins og hægt er að möl eða sandur berist með í garðana því að fínna efni veldur því að vatn streymir ekki eins vel í gegnum þá og garðarnir breytast í malargildrur frem- ur en búsvæði laxaseiða. Meðallíftími grjótgarða og grjótodda án lagfæringa má áætla að sé um 5 ár. Þegar grjótið er einu sinni komið á staðinn er auðvelt að nota það í nýja garða og hleðslur þegar þeir gömlu gefa sig. Það má hugsa sér að til lengri tíma litið þurfi að lagfæra að meðaltali um 20% búsvæða á ári. Þeir ijármunir, sem varið er í búsvæðagerð, eru því að skila sér að jafnaði i aukinni seiðaframleiðslu á 5 ára tímabili. Til samanburðar skilar hver seiðaslepping aðeins afrakstri einu sinni. Varast ber að líta á búsvæðagerð sem varanlega framkvæmd því að ekki er ætlunin að breyta umhverfi ánna til lengri tíma heldur að auka seiðaframleiðslu tímabundið með veigalitlum og ódýrum aðgerðum, eða endurheimta töpuð búsvæði. Tilraunaverkefni í áranna rás hafa verið gerðar til- raunir með búsvæðagerð fýrir laxa- seiði í íslenskum laxveiðiám. I flestum tilvikum hefur verið um einstök tilvik að ræða sem ekki hef- ur verið fylgt eftir eða árangur af þeim metinn. Þannig voru útbúin búsvæði í Laxá í Aðaldal af banda- rískum fiskifræðingi, Scott Weng- er, i samvinnu við heimamenn fyrir allmörgum árum og svipaðar að- gerðir voru framkvæmdar í Laxá í Skefilsstaðahreppi, Húseyjarkvisl og Grímsá í Borgarfirði. Eina áin, þar sem skipulegt þróunar- og rannsóknarátak í búsvæðagerð hef- ur farið fram yfir lengri tíma, er í Húseyjarkvísl i Skagafirði. Það verkefni hefur verið unnið í sam- vinnu veiðifélagsins, Stangveiðifé- lagsins Strauma og greinarhöfund- ar. Grjótgarðamir, sem búnir hafa verið til í Húseyjarkvísl í Skaga- firði, em nú famir að skipta vem- legu máli fyrir gönguseiðafram- leiðslu. Þegar framkvæmdir hófust veturinn 1992 - 1993 var fyrst og fremst um tilraunastarfsemi að ræða. Síðan þá hefiir markvisst ver- ið unnið að þróun búsvæðagerðar í Húseyjarkvísl og hafa orðið miklar framfarir á þessum tíma. Þéttleiki seiða, sérstaklega eldri seiða, hefur verið mjög mikill í grjótgörðunum og þau vaxið mjög vel (Bjarni Jónsson 2000, VMST-N00007). Grjótgarðamir skipta mestu máli fyrir eldri laxaseiði. Tilkoma grjót- garðanna virðist ekki hafa komið niður á seiðaframleiðslu annars staðar í ánni. Samkvæmt áætlunum dvöldu unr 1% laxaseiða tveggja ára og eldri í Húseyjarkvísl í grjót- görðunum árin 1993 - 1995, sem er óverulegur hluti. Haustið 1996 brá hins vegar svo við að um 15% (áætlað útfrá botnfleti og niðurstöð- um endurtekinna rafveiða) allra eldri laxaseiða í Húseyjarkvísl höfðust við í grjótgörðunum sem er um 18% viðbót ef litið er á seiði í grjótgörðum sem viðbót við þau seiði sem fyrir vom í ánni. Það er einnig líklegt að grjótgarðamir hafi enn mikilvægara hlutverki að gegna á vetuma en á sumrin sem skjól fýrir seiði en þá leita seiðin enn frekar í garðana (Bjarni Jónsson 1997, VF002/97). Frá því að verkefnið í Húseyjarkvísl hófst hafa verið búnir til 37 grjótgarðar sem flestir eru enn ákjósanleg búsvæði fyrir laxaseiði. Þessi tilbúnu bú- svæði telja nú samanlagt tæplega 1000 fermetra (m2) í ánni sem er mun meira en í nokkurri annarri á á Islandi. Lokaorð Sú fiskræktaraðgerð, sem mestur vaxtarbroddur er í, er búsvæðagerð. Slíkar aðgerðir em mun vistvænni en seiðasleppingar, sérstaklega þegar í hlut eiga litlir og viðkvæmir laxastofnar. íslenska landbúnaðarbyltingin og framræsla lands hefur víða orðið til þess að gera vatnsbúskap óstöð- ugri, og aukið landrof og framburð af fínum jarðvegi og möl. Við það hafa tapast búsvæði fyrir laxa og aðrar lífvemr. Tilbúin búsvæði em því ekki ónáttúmleg viðbót heldur má einnig líta svo á að verið sé að nokkm að færa aðstæður til fyrra horfs. Það er lika að aukast áhugi á því að sameina vamir gegn land- broti og búsvæða- eða veiðistaða- gerð. Sá árangur sem náðst hefur i Húseyjarkvísl hefur sýnt að bú- svæðagerð er álitlegur kostur í fisk- rækt á íslandi. pR€VR 11/2001 - 15

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.