Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2001, Blaðsíða 33

Freyr - 01.11.2001, Blaðsíða 33
4. tafla. Kjörmagn og skortsmörk fyrir nítur í grasi við mismunandi vaxtarskilyrði. Uppskeruhlutfall Enpinn N-áburður __________80_____ _____________90 _________100 Uppskera, þurrefni hkg/ha % N ÍÞE Uppskera þurrefni hkg/ha % N ÍÞE Uppskera þurrefni hkg/ha % N í ÞE Uppskera þurrefni hkg/ha % N ÍÞE 41,3 1,84 48,3 1,98 54,3 2,13 60,4 2,40 28,9 1,90 40,8 2,06 45,9 2,22 51,0 2,48 19,6 2,02 36,7 2,38 41,3 2,50 45,9 2,59 13,5 1,94 32,2 2,40 36,3 2,56 40,3 2,75 Niðurstöður byggðar á 15 vallartilraunum með níturáburð. Tilraunimar em flokkaðar eftir uppskem án níturáburðar eins og fram kemur í tveimur fyrstu dálkum töflunnar. Hvanneyri í Borgarfirði, Vind- heimum í Skagafirði og Miðgerði í Eyjafirði. Sýnin voru tekin um vor- ið fyrir áburðardreifingu og sán- ingu. Frá sýnitöku til mælinga voru sýnin geymd fryst. Mismunur á jarðvegsgerð kemur ffam í mismunandi rúmþyngd jarð- vegs. Vatnsmagn í jarðvegi fór minnkandi með vaxandi rúmþyngd. Rúmþyngd mýrarjarðvegs er lítil en sandjarðvegs og mela meiri. Þetta sést til dæmis á rúmþyngd mels og mýrar á Korpu í 1. töflu. Vatns- heldni lífrænna efna er hins vegar mikil en vatnsheldni sanda lítil. Sendinn jarðvegur hlýnar því fyrr á vorin en mýraijarðvegur og er að því leyti betur fallinn til komræktar en mýrarjarðvegur. Nýtanlegt N við sáningu (Nmin í 1. töflu) fylgdi ekki jarðvegsgerð- inni eins og hún kemur fram í rúm- þyngd og vatnsmagni í jarðvegi. Nmin var aðeins 10-11 kg/ha í mis- munandi jarðvegsgerðum á Korpu, Hvanneyri og Þorvaldseyri. Hins vegar losnar N úr lífrænum efnum á vaxtartímanum og verður þá nýt- anlegt. Sú losun fer eftir jarðvegs- gerð, það er háð magni og gerð líf- rænna efna í jarðvegi og að hve miklu leyti þau em bundin stein- efnahluta jarðvegs. Plöntuleifar frá fyrra ári og búfjáráburður hafa einnig áhrif á losun N. Þannig er losun meiri ef smári er í túni, sem plægt er upp, en verður þegar bygg er ræktað eftir bygg. Níturlosun var metin í melnum og mýrarjarðveginum á Korpu sumarið 2000 og var 67 kg/ha í mýrarjarðveginum á vaxtartíma byggsins en aðeins 36 kg/ha úr meljarðvegi, 2. tafla. Nmin var þá 23 kg/ha við sáningu í mýrarjarð- veginum í 0-30 sm dýpt. Þegar þetta er skrifað liggja ekki fyrir veðurgögn fyrir allan vaxtartímann 2001 á Korpu og því ekki unnt að meta N losun sumarið 2001 enn sem komið er. Miðað við niðurstöðurnar á Korpu sumarið 2000 felst munurinn á jarðvegsgerðum fyrst og fremst í mismunandi losun N úr lífrænum efhum á vaxtartímanum. Forsenda þess að unnt sé að nota mælingar á ólífrænu N að vori (Nmin) til þess að meta áburðarþörf er að losun úr lífrænum efnum sé jöfn frá ári til árs fyrirhveijajarðvegsgerð. Þvíverða meðalgildi Nmin að vera þekkt fyrir einsleitan jarðveg á svæði þar sem veðurfar er svipað innan svæðis og frá ári til árs. Auðnýtt N (Nmin) í efstu 30 sm jarðvegs að vori var óháð því hvað ræktað var árið á undan, 3. tafla. Sýnilegur munur er þó á vexti komsins, en ókannað er hvort ein- hver munur er á níturlosun úr plöntuleifum eftir því hver forrækt- unin var. Ástæða er til að mæla N- losunina í jarðvegsýnum frá vorinu 2001 og bera niðurstöður saman við uppskerumælingar og magn N í uppskeru. Túnræktin 1. Forði ólífræns N að vori Ráðgerðar eru rannsóknir á forða ólífræns N í jarðvegi að vori (Nmin) í ýmsum greinum jarðrækt- ar, þar á meðal túnrækt em æski- legar í framhaldi af þeim sem hafn- ar em í komræktinni. Með þeim er ætlunin að meta árleg frávik í N- þörf. Eins og í komræktinni má nýta mælingar á ólífrænu N í jarð- vegi á einsleitum svæðum til þess að meta breytilega þörf fyrir N áburð eftir ámm. 2. Heyefnagreiningar Nýlega var á Ráðunautafundi greint frá hagnýtingu heyefnagrein- inga og uppskerumats til þess að greina á milli áburðarskorts og lé- legrar nýtingar áburðar (Friðrik Pálmason 2000). Árið 1972 var gerð grein fyrir rannsóknum á fosfór og kalí í tún- grösum og grassprettu (Friðrik Pálmason 1972). í framhaldi af því vom kynntar aðferðir við leiðrétt- ingu fyrir þroskastigi og tegunda- mun. Þessar aðferðir hafa m.a. ver- ið teknar upp sem kennsluefni í áburðarfræði við Bændaskólana. Tilraunir sem stuðst var við vom gerðar á tilraunastöðvum jarðrækt- ar 1961-1969. Nýlega hefur farið fram uppgjör tilrauna á tímabilinu 1969-1973 með tilliti til þess að nýta mat á uppskem ásamt efnagreiningu við áburðarleiðbeiningar. FR€VR 11/2001 - 33

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.