Freyr - 01.08.2003, Side 6
8/7/ hlaðirm trjábolum úr grisjuninni í sitkagreniteignum frá 1961.
Mynd: Ágúst Árnason.
Kaliforníu (US Forest Service),
við stofnunina Forest Genetics
Laboratory í Placerville, en það
var ein elsta trjákynbótastöð
Bandaríkjanna. Þarna vann ég
bæði í græðireit og svo var ég í
hinum og þessum verkefnum. Sér
í lagi var spennandi að vinna að
víxlfrjóvgun og reyna að fram-
kalla ný afbrigði. Þetta var allt
unnið með handfrjóvgunum og
mest var unnið með furur. Eg var
þama á fögrum stað uppi í hlíðum
Sierra Nevada fjallanna.
Er það rétt að þú hafir aðallega
verið íþví að klifra í trjám?
Nú, fyrst vann ég sem skrifari
og teiknaði upp svæðin sem verið
var að vinna á. Svo gerðist það að
svona 30-40 m há tré og það varð
að margklifra þau. Fyrst var látinn
plastpoki yfir kvenblómin og svo
varð að fylgjast með hvenær þau
væru orðin hæfilega þroskuð. Þá
var frjóduftinu sprautað yfir þau
og svo varð að fylgjast með því og
skrá hve mörg blóm höfðu frjóvg-
ast og enn þurfti að kliffa til að
taka pokana af. Þetta var fróðleg-
ur og skemmtilegur tími, en sem
betur fer vann ég ekki við þetta
nema í takmarkaðan tíma.
En þú stefndir að því aó fara
upp til Alaska?
Jú, ég hafði alltaf mikinn áhuga
á því að komast upp til Alaska,
eins og félagar mínir sem farið
höfðu þangað áður, þeir Indriði,
Vilhjálmur og Brynjar. Fyrir
milligöngu Ffákonar Bjamasonar
komst ég í vinnu hjá fyrirtæki sem
var aðal fræútvegunaraðilinn fyrir
Skandinavíu. Framkvæmdastjóra
þess hafði ég hitt hér á Islandi áð-
ur en ég fór vestur og kannaðist
því við hann. En þetta var ekki
einfalt mál. Dvalarleyfi mitt var
útrunnið og þegar í ljós kom að ég
ætlaði ekki áfram í skóla, heldur
til vinnu, þá var tekið af mér land-
vistarleyfíð. Eg þurfti að fara þá
leið að biðja námsráðgjafa skól-
ans að skrifa upp á það að þessi
Alaskaferð mín væri óskaplega
mikilvæg fyrir sérnám mitt og
sem betur fer gerði hann það því
að annars hefði ég orðið að hverfa
ffá öllu saman.
í byrjun þurfti ég að vinna við
könglasöfnun i Washingtonríki og
það var ágætis reynsla fyrir mig.
Við sem unnum að þessu sváfum
bara á jörðinni, tjaldlaus í svefn-
pokum. í þessu var ég nokkra
daga. Dvölin í Alaska var allt í
senn ákaflega fróðleg, ævintýrarík
Stöð Skógræktar ríkisins í Hvammi í Skorradal. Stóra húsið teiknaði Gunnar
Hansson arkitekt og gaf Skógrækt ríkisins teikninguna i minningu tengda-
föður síns, Valtýs Stefánssonar, sem í rúma tvo áratugi var formaður Skóg-
ræktarfélags íslands. Mynd Ágúst Árnason.
16 - Freyr 6/2003
strákur, sem var klifrari, meiddi
sig og þá varð ég að taka við. Eg
held að ég hafí aldrei verið jafh
lofthræddur! Þetta hafa verið