Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.2003, Blaðsíða 28

Freyr - 01.08.2003, Blaðsíða 28
Tafla 6. Sundurliöaöur kostnaöur og tekjur bónda í kr./ha við skógrækt á mismunandi landgerðum miðað við núverandi verðlag og gefnar forsendur Framkvæmd \ Landgerð Mólendi Graslendi Deiglendi Framræst mýrlendi Ræktunaráætlun 150 150 150 150 Girðingar og slóðagerð 573 573 573 573 Jarðvinnsla 0 401 401 401 Nýgróðursetning (efni, vinna) 3.551 3.264 3.077 3.002 Endurgróðursetning (efni, vinna) 0 1.127 768 768 Umhirða, tafir, ýmislegt 750 750 750 750 Kostnaður umfram tekjur við 1. grisjun 414 593 736 736 Nettótekjur af 2. grisjun (85%) 40.000 57.000 52.000 1.983 Nettótekjur við lokahögg (85%) 295.000 423.000 382.000 382.000 Innri vextir timburframleiðslu 4,3 % 5,6 % 5,2 % 4,7 % þróttmikill trjágróður er þar sem jarðvegur og skjól er af skomum skammti, ekki síst ef vandað er til gróðursetningar og áburðargjafar (5,6,7,8). Það er einnig þekkt að skógur umhverfis híbýli manna veitir skjól sem t.d. má meta í fonni orkusparnaðar til húshitunar. Skógur og skjólbelti geta aukið uppskeru og skýlt búfénaði, auk þess að lengja beitartíma svo að eitthvað sé nefnt. Þetta samspil við búfjárrækt og jarðrækt er víða fyr- ir hendi en mætti gjaman skoða betur til að verðleggja ávinninginn og leita leiða til að gera hann sem mestan. Skóginum fylgir oft vem- lega aukin uppskera af matsvepp- um sem nýta má með markvissum hætti og hann er auk þess endalaus uppspretta hráefnis fyrir handverk úr tré. Skógar eru fjölsótt útivistar- svæði bæði í nágrenni þéttbýlis og eins af ferðamönnum enda sérlega notalegir áningarstaðir og henta því vel til eflingar ferðaþjónustu. Loks má nefna að endurnýjun skógar er vemlega auðveldari og ódýrari en nýskógrækt og sama gildir um skjólið sem myndast af elsta nýskóginum og gerir áfram- haldandi ræktun auðveldari. Niðurstaða Það er ljóst samkvæmt þessum útreikningum að timburskógrækt ein og sér skilar jákvæðum innri vöxtum, en að vísu ntjög lágum. Bændur sem taka þátt í lands- hlutaverkefnunum hafa aftur á móti mjög góða arðsemi af sinni skógrækt. Að því gefnu að mark- aður verði til í framtíðinni fyrir losunarheimildir gróðurhúsaloft- tegunda, eru allar líkur á góðri arðsemi af skógrækt. Þar við bæt- ast síðan önnur jákvæð áhrif, um- hverfisleg og félagsleg. Rann- sóknir á Fljótsdalshéraði sýna að skógrækt hefur jákvæð áhrif á byggðaþróun enda skapar skóg- rækt atvinnutækifæri í dreifbýlinu og má segja að með skógrækt geti bændur flutt aukavinnu heim í hlað. Það er því niðurstaða okkar að skógrækt hljóti að verða mikil- væg stoð fyrir byggð í sveitum landsins á næstu áratugum. Heimildir: 1. Arnór Snorrason 1992. Gróður- hverfaflokkun fyrir Dagverðar- eyri. Óbirt gögn. 2. Arnór Snorrason, Þorbergur H. Jónsson, Kristín Svavarsdóttir, Grétar Guðbergsson og Tumi Traustason 2000. Rannsóknir á kolefnisbindingu ræktaðra skóga á íslandi. Skógræktarritið 2000 1. tbl. 71 -89. 3. Einar Gunnarsson, Edgar Guð- mundsson og Ragnar Arnason. 1987. Hagkvæmni nytjaskógrækt- ar. í: Island 2010 - Auðlindir um aldamót. Viðaukar um veðurfars- sveiflur, sauðfjárrækt og skógrækt. Framkvæmdanefnd um framtíðar- könnun á vegum forsætisráðuneyt- is 1987. 53-91. 4. Bye, T., Choudhury, R., Hardar- son, M og Hardarson, R 2001. The ISM model. A CGE model for the Icelandic econoniy. Statistics Nor- way, Research Department, Docu- ments 2001/1, 31 bls. http://www.ssb.no/emner/0l/90/do c_200101 /doc_200101 .pdf 5. Hreinn Óskarsson 2000. Hvenær á að bera á? Tímasetning áburðar- gjafa. Tilraun frá 1998. Lýsing og fyrstu niðurstöður eftir þrjú sumur. Rit Mógilsár Rannsóknastöðvar Skógræktar nr. 1/2000. 28 s. 6. Hreinn Óskarsson, Aðalsteinn Sig- urgeirsson og Bjarni Helgason 1997. Áburðargjöf á nýgróður- setningar í rýrum jarðvegi á Suð- urlandi. 1. Niðurstöður eftir tvö sumur. Skógræktarritið 1997. 42- 59. 7. Jón G Guðmundsson 2001. Úttekt á gróðursetningum á 18 jörðum innan Héraðsskóga. Úttekt gerð 1999. Rit Mógilsár Rannsókna- stöðvar Skógræktar nr. 9/2001. 18 s. 8. Loftur Jónsson 2002. Áhrif jarð- vinnslu á vöxt og lifun sjö trjáteg- unda. Rit Mógilsár Rannsókna- stöðvar Skógrækar nr. 10/2002. 14 s. 9. Næringslivets Hovedorganisasjon, Skogbmket Landsforening, Lands- organisasjonene i Norge, Fellesfor- | 28 - Freyr 6/2003

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.