Freyr

Volume

Freyr - 01.08.2003, Page 14

Freyr - 01.08.2003, Page 14
lengd á lerki og birki (ljóskær tré), en þrír fjórðu af stofnlengd á greni (skuggaþolin tré). í þróuðum skógalöndum, þar sem skógrækt stendur á háu stigi líffræðilega og tæknilega, telst fyrsta grisjun (á ensku precomm- ercial thinning) aðeins kostnaður, þar eð of dýrt er að ná þeim viði (svonefndum smáviði) úr skógin- um. En hér á landi getur viður úr fýrstu grisjun í lerkiskógi nýst í girðingarstaura, ef hægt er að selja þá, og svo i viðarkurl ef hægt er að selja það. Greniviður er hins vegar ekki nothæfur í girðingar- staura vegna þess hve stutt þeir endast (innfluttir tréstaurar eru reyndar allir úr greni eða furu). Fiskhjallaspirur er hægt að fá úr ungum skógi af hvítgreni og rauð- greni. Svo er nú að sjá, að eitthvað verði hægt að selja af þeim á næstunni. Annars er viður úr fýrstu grisjun af greni einungis nothæfur í kurl. Síðari grisjanir nýtast að hluta til í borðvið, því meira sem skógur- inn eldist og bolir gildna. Borðvið- ur er meginafúrð ræktaðs skógar og stendur undir kostnaði við rækt- un hans. Á Norðurlöndunum nýt- ast trjábolir í borðvið niður að 13 cm þvermáli í topp undir berki, en hér á landi má hugsanlega fletta grennri bolum til sérstakra nota. í skógalöndunum nýtast toppar og grennri bolir í “massavið”, þ.e. til framleiðslu beðmis (cellulose) í pappa, pappír o.fl., að 7 cm í topp utan á berki. Útdráttur viðar úr skógi að vegi fyrir dráttarvélavagn með lyfti- krana, sem siðan flytur viðinn að vinnslustað í skóginum eða að vegi fýrir vörubíla, sem flytja hana lengra. Notað er radíóstýrt traktors- spil með einni eða tveimur troml- um, 40-50 m löngum togvírum með 5 keðjuörmum á hvorum vír, sem getur dregið jafhmargar kippur úr skóginum. Tækjakostur við skógarvinnuna hefir þróast gríðarlega síðustu ára- tugina, einkanlega eftir 1950. Tré eru nú felld að yfírgnæfandi meiri- hluta með sérhönnuðum skógar- höggsvélum, í Svíþjóð t.d. um 90% af öllu höggi, en þetta eru dýrar vél- ar, sem þurfa helst að vinna nær óslitið allt árið. Sömuleiðis eru sér- hannaðar vélar fýrir útdrátt úr skóg- inum mjög dýrar. En sífellt eru þróaðar léttari skógarhöggsvélar - jafnvel til að festa á þrítengi á venjulegum traktor - svo að þær verða teknar í notkun hér þegar grisja þarf stór svæði. Keðjusagimar hafa breyst mikið til batnaðar á þeirri hálfu öld, sem þær hafa verið aðaltækið til að fella tré í litlum skógaeiningum, og líka í skógum stórfýrirtækja eða ríkis, þar til skógarhöggsvélamar komu fram á sjónarsviðið eftir 1970. Fyrstu einsmannskeðjusagimar komu til Noregs frá Kanada árið 1947. Þær voru 17-18 kg á þyngd. Höfundur þessarar greinar vann með þeim árin 1947 og 1948 og þær vom óneitanlega þungar að ro- gast með í hné- til klofdjúpum snjó! Nú em þær komnar niður í eða undir 5 kg og með þeim er unnið það, sem áður þurfti fjögur handverkfæri við. Verkþjálfun við skógarhögg er forsenda þess að stunda það á hag- kvæman hátt og hættulausan. Skógrækt ríkisins á Hallormsstað, sem hefir mesta reynslu í þessu efni ásamt Skógræktinni á Vögl- um í Fnjóskadal, hefir haldið nám- skeið í þessari grein, gaf út fýrsta leiðbeiningaritið og hefur þjálfað skógareigendur á Héraði og víðar með mjög góðum árangri. Þannig er nú t.d. innan vébanda Héraðs- skóga a.m.k. 15 manna hópur vel þjálfaðra skógarhöggsmanna, sem flestir eru bændur. Árið 2000 gáfú svo Héraðsskógar út glæsilegt kennsluhefti, Grisjun og skógar- högg. Jólatré. Ræktun þeirra verður hluti af ræktun nytjaskógar, en er þó alls óskyldur ræktun til gagn- viðar. Hér er verið að rækta fýrir sölu á lögun og lit krónu sígræns barrviðar. Það útheimtir mikla umönnun og gott skjól. Nú sem stendur er markaður fyrir jólatré takmarkaður vegna innflutnings frá Danmörku. En blágreni, fjalla- þinur, stafafura og jafhvel rauð- greni í einhverjum mæli eru teg- undimar, sem hér verða ræktaðar. Úrvinnsla viðar. Hér á undan voru nefhdar trjátegundimar, sem til greina koma sem gagnviður, a.m.k. í sjáanlegri framtíð. Skoð- um þær aðeins nánar. Lerki er prýðisgott efni í girð- ingarstaura. Markaður er þó lítill eins og er en gæti átt eftir að vaxa. Lerki er mjög góður borðviður. Hann fæst fýrst að marki eftir 30- 35 ár frá gróðursetningu, en síðan í vaxandi mæli til loka vaxtarlotu, senr tekur 60-100 ár. Við ræktun lerkis til gagnviðar verða bolir að vera þráðbeinir, hlykkjalausir. I því efni er mikill munur á kvæm- um. Sérfræðingar Skógræktar rík- isins vinna hörðum höndum að því að greina og framkalla (með kynbótum) besta hugsanlega erfðaefni í þessu skyni. Grenitegundirnar sitkagreni, hvítgreni, sitkabastarður og rauð- greni eru allar góðar borðviðar- tegundir. Rauðgreni ásarnt hvít- greni henta best í fiskhjallaspírur. Furutegundirnar, sem við get- um ræktað með árangri til borð- viðar, eru stafafúra og lindifúra. Þær þurfa þá auðvitað að vera án hlykkja, en þeim kvæmum af stafafuru, sem við höfum orðið að nota, hættir við að hafa þennan ágalla, auk þess sem hún er völt ef stormur og snjóþyngsli hrjá hana. En ágætis borðviður fæst úr stafa- furu. Lindifura myndi gefa úrvals borðvið, en hún vex hægar en stafafura og enn er óreynt, hve 114 - Freyr 6/2003

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.