Freyr

Volume

Freyr - 01.11.2004, Page 39

Freyr - 01.11.2004, Page 39
ir hefur verið tekið. Byggrækt á Islandi er ung grein sem enn er hliðaratvinnugrein með öðrum landbúnaði. Tækifærin eru hins vegar mörg og upp hafa vaxið spennandi sprotar, s.s. í fram- leiðslu á byggi til manneldis og annarri úrvinnslu á byggafurðum. Við Islendingar eigum langt í land að skapa þá hefð sem víða ríkir í notkun á byggi til matargerðar og til bruggunar á bjór og viský. Þessa hefð áttum við til foma en týndum henni niður á kulda- og hörmungaskeiði miðalda. Það er kominn tími til að endurvekja þessa hefð og skapa nýjar og þar getum við leitað í smiðju vina okkar nær og fjær. Mest reynir þó á okkur sjálf og það stuðningsnet sem við höfum. Maður uppsker sem maður sáir! Rannsóknarstöðin í Kromeriz var gestgjafi ráðstefnunnar. Bærinn Kromeriz er á heimsminjaskrá UNESCO. Moli Réttur fólks til AÐGANGSAÐ LANDI TRYGGÐUR í ENGLANDI Sl. haust voru settar reglur í Englandi um rétt fólks til að fara frjálst um opin svæði, svokallaða “almenninga”. Hérerum153 þúsund hektara lands að ræða I Englandi, nefnt “access to the countryside”. Að auki á fólk fullan rétt á að fara um áður frátekið land til almenningsnota, nefnt “public right of way”. Sams konar svæði verða opnuð fólki I Wales og Skotlandi, en þar verður hlut- fall landsins, sem fellur undir þessa skilgreiningu, enn stærra. Þessi nýi réttur felur í sér rétt til að fara um fótgangandi, skoða náttúruna og stunda fugla- skoðun. Fólk má hafa með sér hund á sumum árstímum sem fylgst er með og hafður í bandi. Aftur á móti er ekki leyfilegt að ferðast um á reiðhjóli eða hest- um, né neins konar mótorknúnu farartæki og ekki má tjalda né elda mat og ekki fjarlægja neitt, svo sem steina, fallin tré eða annan gróður. Þá er ekki leyfilegt að stofna þar til neins konar samkomuhalds né viðskipta af neinu tagi. Umrædd svæði skulu vera afmörkuð á sérstökum landakort- um. Að jafnaði er hér um að ræða fjalllendi og heiðalönd ásamt svokölluðum “registered common land”. Nokkrar undantekningar eru frá þessum umgengnisrétti. Þannig er ekki heimilt að fara um skrúðgarða í einkaeign né rækt- unarlönd. Hið sama gildir um hlöð við íðbúðarhús eða svæði í minna en 20 m fjarlægð frá íbúð- arhúsi eða peningahúsum. Landeigendur eða ábúendur mega einnig loka landi sínu eða takmarka umgang I 28 daga á ári og jafnvel lengur ef nýting landsins þarfnast þess eða eld- hætta er á ferð. Þær nýju reglur sem hér hafa verið raktar um umgang um almenninga hafa mætt hörðum mótmælum landeigenda þó að hér sé um hógværa rýmkun á umgengni að ræða. Þúsundir landeigenda hafa sótt um að hinar nýju reglur gildi ekki um eignarlönd þeirra. Margir telja sér mjög misboðið og menn telja að þessi réttur verði misnotaður. Aðrir telja að þessi ótti sé ástæðulaus. Dæmi er um að á svæði, sem hefur verið opnað almenningi, hafi einungis um 10% göngufólks vikið út af merktum göngustígum. Sá ótti að fólk fari að leggjast á glugga á íbúðarhúsum heimamanna sé ástæðulaus. (Internationella Perspektiv nr. 31/2004). Freyr 9/2004 - 39 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.