Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 4

Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 4
Forréttindi að búa hér - Búnaðarblaðið Freyr sækir heim fjölskylduna á Hranastöðum í Eyjafjarðarsveit Arnar Árnason og Ásta Arnbjörg Pétursdóttir búa myndarlegu kúabúi á Hranastöðum í Eyjafjarðar- sveit ásamt þremur börnum sínum, Kristjönu Líf, sjö ára, Elmari Blæ, 5 ára, og Þórdísi Birtu, 2ja ára. Hranastaðir standa hátt í brekkunum vcstan Eyjafjarðarbrautar, hæst allra bæja í gamla Hrafnagilshreppi. Heimreiðin er hálfur annar kílómetri og á snjóþungum vetrum getur hún verið nokkuð erfið yfirferðar. Hranaá fellur sunnan við bæinn í Eyjafjarð- ará. Nokkra tignarlega fjalls- tinda ber við himinn fyrir ofan bæinn; Kerlingu, Þríklakka, Bónda, Litlakrumma og Stór- akrumma. Botnsland er norðan við Hranastaði en Stokkahlaða- land fyrir sunnan. Á sínum tíma gengu Amar og Ásta í Hrafnagilsskóla og fallast þau á að líklega hafi þá þegar kviknað neisti þeirra í milli, sem síðar varð til þess að þau mgluðu saman reytum. Þau eru jafhaldrar, fædd árið 1974 og standa því á þrítugu. Amar ólst upp í Amarfelli í Eyjafjarðarsveit, þar sem Jón Ei- ríksson, fósturfaðir hans, var með hænsna- og svínabúskap. Móðir hans, Jóhanna Friðfrinnsdóttir, býr nú í Danmörku. Ásta er fædd og uppalinn á Hranastöðum. Hún er dóttir Þór- dísar Ólafsdóttur og Péturs Helga- sonar, sem lengi var í framvarðar- sveit eyfirskra bænda, m.a. for- maður stjómar Búnaðarsambands Eyjaíjarðar. MED BÚSKAPINN í BLÓÐINU Ásta kannast við að hafa átt sér þann draum á yngri áram að taka við búrekstri á Hranastöðum. „Eg held að ég mér hafí þótt spennandi sem krakki að verða bóndi hér á Hranastöðum, en sá draumur fjar- lægðist nokkuð á unglingsámn- um. Við Amar byrjuðum að vera saman sextán ára gömul og átján ára skelltum við okkur í bænda- skólann á Hvanneyri og lukum tveggja ára búfræðinámi," segir Ásta, en hún er næstyngst fjögurra systra. Amar á einn albróður, tvo hálfbræður og tvö fóstursystkin. „Átta ára gamall flutti ég frá Akureyri fram í Amarfell. Á þess- um tíma var fyrst og fremst búið með hænsni í Amarfelli, til bæði eggja- og kjúklingaframleiðslu. Sá búskapur leið síðan undir lok og þá var alfarið farið í svínarækt- ina. Eg gat alveg hugsað mér að takast á við svínabúskapinn, en mál æxluðust þannig að fljótlega eftir að við Ásta byrjuðum að vera saman vantaði vinnumann hér á Hranastöðum og tengdapabbi bauð mér starfíð. Eg var síðan vinnumaður hér meira og minna í tíu sumur. Árið 2000 fór heilsu tengdapabba að hraka, en hann hafði lengi átt við vanheilsu að stríða,“ segir Amar og Ásta bætir við: „Árið 2001 ákváðu pabbi og mamma að selja jörðina og þá var ég sú eina af okkur systrunum sem hafði áhuga á að fara í bú- Hranastaðafjölskyldan ásamt heimilishundinum í fjósinu á Hranastöðum. Frá vinstri: Elmar Blær Arnarsson, Ásta Arnbjörg Pétursdóttir, Þórdís Birta Arnarsdóttir, Arnar Árnason og Kristjana Líf Arnarsdóttir. Mynd: Óskar Þór Halldórsson. 14 - Freyr 10/2004

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.