Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.2004, Side 6

Freyr - 01.12.2004, Side 6
Kristjana Lífog Elmar Blær Arnarsbörn una sér vel hjá kúnum. Mynd: Óskar Þór Halldórsson. upp úr dóttur okkar um daginn að við yrðum að fara að tala um eitt- hvað annað en kýr í kafftíman- um,“ segir Asta og skellir upp úr. „Það er ögrandi og skemmtilegt verkefni að takast á við búskapinn þegar maður ber ábyrgð á honum frá a til ö. Aður en við tókum við höfðum við verið hér öll sumur og töldum okkur því vita nokkuð vel að hverju við værum að ganga. Við höfðum hins vegar ekki sett okkur inn í Qármálahliðina og reksturinn sem slikan. Það var nýtt fyrir okkur og ögrandi að tak- ast á við,“ segir Asta. AÐ BRJÓTA UPP KARLAVELDIÐ í LANDBÚNAÐINUM í langflestum tilfellum er bú- ijárhaldið skráð á karlpeninginn á bænum, en það er ekki uppi á ten- ingnum á Hranastöðum. Þar er Ásta í aðalhlutverki. „Búið er rek- ið á kennitölu Ástu. Við veltum lengi vöngum yfir að skrá búið sem einkahlutafélag, en komumst að því að skattaumhverfið væri þannig að það kæmi ekki vel út. Niðurstaðan var sú að skrá búr- eksturinn á kennitölu annars okk- ar. Hins vegar eru skuldimar skráðar á kennitölur okkar beggja og við eigum þannig búið til helminga. Ég skal viðurkenna að það hváðu margir þegar menn heyrðu að búreksturinn væri skráður á Ástu,“ segir Amar og Ásta bætir við að þeim hafi þótt í lagi „að brjóta upp þetta karla- veldi í landbúnaðinum. Og það virðist ganga illa í hinu opinbera kerfi að koma því inn að búið sé skráð á mig. í sumar fengum við til dæmis vitlausan álagningarseð- il, vegna þess að kerfið gerði ein- hvem veginn ekki ráð fyrir að ég gæti verið skráð fyrir búrekstrin- um.“ Amar bætir við í þessu sam- bandi að margt sé skrýtið í kýr- hausnum þegar kentur að hinu op- inbera. Til dæmis veki það furðu að bamabótum, sem þau hjónin njóta frá ríkinu, sé skuldajafnað á móti búnaðargjaldinu. STEFNT Á 300 ÞÚSUND LÍTRA GREIÐSLUMARK Ásta og Amar em sammála um að búfræðimenntunin frá Hvann- eyri hafi nýst þeim afskaplega vel í búskapnum. Amar nefiiir að þau hafi haft vinnukraft sér til aðstoðar við bústörfm, bæði með og án bú- fræðimenntunar. „Það er mikill munur á því hversu betri starfs- kraftur búfræðimenntaða fólkið er,“ segir Amar. „Allt síðasta ár var vinnumaður hjá okkur og í vetur munum við hafa þriðjung úr manni, ef svo má að orði komast, þ.e. hann inun starfa á þremur búum.“ Sem fyrr segir er 242 þúsund lítra greiðslumark á Hranastöðum. Ásta segir að um margt sé þetta nokkuð hentug bústærð, en stað- reyndin sé þó sú að þessi eining megi ekki vera minni. „Já, búið þyrfti að vera aðeins stærra,“ bæt- ir Amar við, „fjósið ræður við rösklega 300 þúsund lítra fram- leiðslu og við stefnum að því að hafa náð þvi marki innan fárra ára.“ Lítt hrifin af „vélafylleríi“ Þau Hranastaðahjón em sam- mála um nauðsyn þess að reka bú- ið á sem hagkvæmastan hátt, enda sé það lykillinn að því að afrakst- urinn verði viðunandi. Þau em sammála um að ein af helstu for- sendunum fýrir hagkvæmum búr- ekstri sé, eins og Amar orðar það, að bændur fari „ekki á vélafyll- erí“. „Ég held að það sé númer eitt,“ segir Amar og Ásta bætir við að það sé nánast með ólíkindum hversu margar vélar margir bænd- ur eigi. „Við eigum ’97-módel af 95 hestafla fjórhjóladrifnum trak- tor og aðra 70 hestafla vél, árgerð ’90, sláttuvél, snúningsþyrlu og áburðardreifara, auk fjósvélar sem við keyptum strax fyrsta búskap- arárið okkar,“ segir Amar, „og þar með er það upptalið, enda er þessi vélakostur nægilega mikill fyrir 16 - Freyr 10/2004

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.