Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.2004, Side 11

Freyr - 01.12.2004, Side 11
Aðbúnaður kálfa og ung- neyta Um nokkurt skeið hefur vinnuhópur á vegum Bændasamtuku íslands unnið að leiðbeiningabæklingi um aðbúnað kálfa og ungneyta. I hópnum sitja Eiríkur Blöndal, Eiríkur Loftsson, Grétar Hrafn Harðarson, Magnús Sigsteins- son, Runólfur Sigursveinsson, Snorri Sigurðsson og Torfi Jó- hannesson. Hér að neðan er kafli úr þessum bæklingi þar sem fjallað er um aðbúnað smákálfa. Burdarstíur Þrátt fyrir að burðarstíur hafí verið svo til óþekktar hér á landi þar til fyrir nokkrum árum, hafa þær náð mikilli útbreiðslu hin síð- ari ár. Mikil vinnuhagræðing felst í því að koma upp burðarstíum í íjósum og einnig er það næði, sem kúnni er skapað, mjög mikil- vægt þegar kýrin ber. Avallt þarf að hafa hugfast að burðarstíur þarf að þrífa vel og halda hreinum enda geta þar skapast kjöraðstæð- ur fyrir bakteríur. Margar útgáfur af burðarstíum eru til og nokkur atriði er mikilvægt að hafa í huga þegar burðarstíur eru gerðar. Staðsetning Best er að hafa burðarstíuna ná- lægt mjaltaaðstöðu því oft þarf að vera hægt að mjólka í burðarstíu. Rétt staðsetning sparar langar vatns- og soglagnir, en nóg er að hafa soglögn að burðarstíu og nota svo mjaltafötu til verkanna. Þá er mjög gott að hafa burðarstíu og meðhöndlunaraðstöðu hlið við hlið, s.s. vegna sæðinga á kúm. Þessi aðstaða er því best staðsett við útganga frá mjaltabás- um/mjaltaþjónum og má þá auð- veldlega setja upp sjálfvirk flokk- unarhlið sem hleypa kúnum inn í viðkomandi aðstöðu ef þess er óskað. Rými og fjöldi Fjöldi og stærð burðarstía fer al- gerlega eftir bústærð og burðar- dreifingu. Þannig þarf að gera ráð fyrir meira rými í burðarstíum þar sem ekki er um jafnan burðartíma að ræða, enda má þá reikna með að margar kýr beri á sama tíma. Við- miðunarreglan er sú að gera þarf ráð fyrir einni burðarstíu á hverjar 30 kýr þar sem um jafnan burðar- tíma er að ræða. Rými í burðarstíu þarf að lágmarki að vera 8 trf og helst a.m.k. 9 nv ef um einstak- lingsburðarstíu er að ræða, en 7 m2 á kú ef um hópburðarstíu er að ræða. Þá þarf að hafa hugfast að lágmarkslengd eða breidd á burð- arstíu ætti ekki, vera minni en 2,5 metrar. Lengri hlið stíunnar þarf að vera 3,5 - 4 m til þess að auðvelt sé A 4 r*B 1 íQDIŒQDmO // Grunnmynd 5 a A Snið A-A Snið B - B 1. Niðurfall 2. Mannop 3. Hlið 4. Læsanleg jötugrind 5. Brynningarskál Mynd 1. Dæmi um hönnun burðarstia. Freyr 10/2004 -11 1

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.