Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.2004, Qupperneq 12

Freyr - 01.12.2004, Qupperneq 12
Tafla 1. Helstu mál fyrir burðarstíur. Fjöldi Ein stía á 30 kýr Stærð - einstaklingsstía 9,0 m2 Stærð - hópstía 7,0 m2 Hæð á grindum 1,3 m Bil milli rimla í grindum 0,1 m Lýsing 200 lux að veita burðarhjálp. Ef húsrými fyrir burðarstíuna er takmarkað má auðvelda aðgengi við burðarhjálp með því að opna hliðgrind inn í ljósið eða aðra stíu á meðan. Gólf Undirlag í burðarstíum skiptir verulega miklu máli og brýnt að það uppfylli allar helstu kröfur um góðan aðbúnað, s.s. að vera mjúkt, stamt og þurrt. Mikilvægt er að í hverri stíu sé gott niðurfall og/eða flór undir rimlum eða gata- plötum. Góð reynsla hefúr skapast hérlendis varðandi notkun á gúmmímottum í burðarstíum og er óhætt að mæla með slíkum frá- gangi. Jafnframt er brýnt að minna á mikilvægi undirburðar ofan á slíkar gúmmímottur og/eða steypt gólf. Þegar kýr er sett inn í burðarstíu ætti ávallt að vera búið að hreinsa stíuna vel og setja und- irburð. Hálmur hentar best og má reikna með því að þörfin nemi um 2,5 kg af þurrum hálmi á hvem fermetra stíunnar fyrir hvem burð. Innréttingar Hliðargrindur í burðarstíum eiga að vera u.þ.b. 1,3 metrar á hæð, efri hlutinn gerður úr lóðréttum rimlum með 8-10 cm millibili, neðri hlutinn þéttklæddur til að veita skjól í stíunni og auðvelda þrif. Mikilvægt er að geta opnað stíuna vel hvort sem er ffam á fóð- urgang eða inn í fjósið, t.d. ef koma þarf að neyðaraðstoð eða ef draga þarf dauða kú út. Kostur er að geta fest kýmar við fóðurganginn með læsanlegum jötugrindum og jaíh- framt er mikill kostur að hafa 0,4 m breitt mannop frá fóðurgangi inn i burðarstíu til að auðvelda allt að- gengi að stíunni. I mannopinu þarf að vera u.þ.b. 0,5 m hár þröskuldur svo að kálfamir komist ekki út. Annar aðbúnaður Lýsing í burðarstíu þarf að vera góð. Bæði vegna þess að það auð- veldar vinnu við burðarhjálp, en ekki síður vegna þess að oft þarf að mjólka kýmar í stíunni og mik- ilvægt er að sjá vel til. Góð lýsing auðveldar einnig vinnu við þrif og sótthreinsun stíunnar. Miða skal við að lýsingin nemi um 200 lúx- um í burðarstíunni. Gott aðgengi þarf að vera að vatni í burðarstíu. Þegar kýr bera þurfa þær mikið vatn, sérstaklega fyrstu klukkutímana eftir burð. Kýr ættu ávallt að geta valið um að minnsta kosti tvo drykkjarstaði í fjósi og gildir það einnig um burð- arstíur. Jafnframt er ekki síður mikilvægt að geta tengt vatns- slöngu í eða við burðarstíu, t.d. vegna þrifa. I slíku tilfelli er heppi- legt að nota hraðtengi og að hafa vatnslögnina um 25 mm í þvermál. Að siðustu má nefna að hægt er að kaupa ódýrar myndbandsupp- tökuvélar, sem t.d. mætti staðsetja yfír burðarstíu. Oftar en ekki er hægt að leggja lögn frá slíkri myndavél heim í íbúðarhús og tengja inn á sjónvarpskerfið. Með einu handtaki er þá hægt að smella á viðkomandi rás og sjá á sjónvarpsskjá hvort ástæða sé til að fara og aðstoða við burð. Þess- ar myndavélar má einnig fá með hljóði ef þess er óskað. Einstaklingsstíur FYRIR SMÁKÁLFA Gott getur verið að hafa einstak- lingsstíur fyrir smákálfa fyrstu vikumar, að minnsta kosti þangað til þeir em famir að drekka og éta Mynd 2. Dæmi um einstaklingsstiur fyrir smákálfa. 112 - Freyr 10/2004

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.