Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 14
Mynd 4. Kálfastia með rimlagólfi og upphækkuðum legubásum. Lengd og breidd bása má sjá i töflu 3.
að setja rör (X 100 mm) utan um
túttuna og láta rörið ná um 10 cm
inn í stíuna. Slíkur frágangur
tryggir að kálfurinn sýgur túttuna
aldrei frá hlið, en það skemmir
túttumar mjög hratt. Ef kálfinum
er gefín mjólk úr fötu, en ekki
með túttu, er mikilvægt að setja
upp túttu i stíu viðkomandi kálfs
þannig að hann geti svalað sog-
þörf sinni á túttunni.
Einfaldast að gefa kálfum hey í
jötu eða grind á milli tveggja stía,
þannig að tveir kálfar geti étið úr
sömu gjafagrind.
Hópstíur fyrir smákálfa
Almennt er mælt með því að
hýsa smákálfa í hópstíum frá og
með tveggja mánaða aldri þar sem
sú aðferð kemur betur til móts við
náttúrulegar þarfír kálfanna til
samveru. Hópstíur geta verið
tvenns konar, þ.e. með sameigin-
legu legusvæði (t.d. hálmur/riml-
ar) eða með aðskildu legusvæði
(legubásastíur).
Staðsetning
Aðstöðu smákálfa ætti að stað-
setja í nánd við mjólkurhús og/eða
þar sem auðvelt er að veita reglu-
bundið eftirlit og þar sem ekki er
hætta á dragsúg.
Gólf
Kálfar sækja í að liggja á
mjúku undirlagi og þar sem legu-
svæði er sameiginlegt hentar vel
að nota hálm eða gúmmímottur
með góðum undirburði. Mikil-
vægt er að hland og þunn mykja
eigi greiða leið frá legusvæði
kálfsins, enda þarf legusvæðið að
haldast þurrt og mjúkt. Þetta má
gera með því að hafa t.d. rennu
þvert á stíu, sem leiðir burtu
vökva frá gripunum. Hérlendis er
algengast að hafa kálfana í einu
sameiginlegu rými, þ.e. sem nýt-
ist bæði sem átsvæði og hvíldar-
svæði. Þó hefur færst í vöxt að
setja upp sérstakt hvíldarsvæði
með upphækkuðum legubásum
eða legupalli fyrir kálfana. Þetta
hentar mjög vel fyrir unga kálfa
og læra þeir fljótt að nota legu-
Tafla 4. Helstu mál á hópstíum fyrir smákálfa.
Fyrir kálfa að 50 kg lífþunga: .......................................
- rými á kálf ..............................................0,8 m2
- rými við fóöurgang.........................................0,2 m
Fyrir kálfa allt að 100 kg lifþunga: .................................
- rými á kálf ...............................................1,0 m
- rými viö fóðurgang............................................0,3 m
- lengd legubása................................................1,5 m
- breidd legubása..............................................0,55 m
Breidd á rimlum í rimlagólfi..............................100-120 mm
Hámarksbreidd á rifum í rimlagólfi..............................30 mm
Bil milli lóðréttra röra í stíuhlið..............................0,1 m
Lágmarkshæö milligeröa..........................................1,2m
Bil frá aftari brún milligerðar legubása að endakanti legubáss...0,2 m
Hæð legubása/palls yfir gólfi....................................0,15m
Halli á legubásum ..................................................4%
Gangbreidd milli jötugrindar og legubása/palls.....................1,5 m
Gangbreidd milli legubásaraöa ...................................1,1 m
Hæð á brynningarskálum..........................................0,45 m
Halli á legupalli ...............................................5-10%
Breidd (dýpt) legupalls .....................................1,5-1,8 m
Pláss á palli á kálf ....................................Minnst 0,5 m2
114 - Freyr 10/2004