Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.2004, Side 15

Freyr - 01.12.2004, Side 15
Grunnmynd legupallur / rimlagólf Snið A - A Mynd 5. Kálfastia með rimlagólfi og upphækkuðum legupalli. Breidd pallsins er 1,5-2,0 m eftir stærð kálfa. svæðið. Gangsvæðið framan við jötugrindina getur þá jafnt verið með rirnlum eða föstu gólfi. Rimlarnir í rimlastíum smákálfa eiga að vera 100-120 mm breiðir og rifubreidd að hámarki 30 mm. Ekki er mælt með því að kálfar yngri en 6 mánaða séu hafðir í rimlastíum með steyptum rimlum án þess að geta legið á mjúku undirlagi. Innréttingar Til eru fjölmargar útgáfur af innréttingum fyrir smákálfastíur. Algengast er að setja upp grindur úr jámi og skal bil á milli lóðréttra rimla ekki vera meira en 10 cm. Hæð milligerða skal vera að minnsta kosti 1,2 m. Jötugrind þarf að veita gott aðgengi smá- kálfanna að gróffóðri. Rými við jötugrind þarf að vera það mikið að allir kálfar í stíunni komist að jötu samtímis. Hálmur Hálmur er án efa besta undirlag- ið fyrir smákálfa. Ef hálmstíur eru af einhverjum ástæðum ekki mögulegar fyrir smákálfa má nota aðrar gerðir af legusvæði. I smá- kálfastíum er hálmurinn fjarlægð- ur á tveggja til þriggja mánaða fresti. Legubásar og legupallur Reynslan hérlendis af legubás- um lyrir smákálfa nær ekki til margra ára, en er mjög góð. Yfír- leitt gengur vel að venja kálfa á legubásana og með réttri hönnun er auðunnið verk að halda þeim hreinum. Legubásar fyrir kálfa allt að 100 kg þunga eiga að vera að lágmarki 55 cm breiðir og 1,5 m langir (að vegg). Milligerði á milli básanna á hins vegar að vera styttra sem nemur um 20 cm, þannig að það nái ekki út að aftari brún legubáss. Hæð upp í legubásinn frá gangsvæði ætti ekki að vera meiri en 15 cm og halli bássins um 4%. Endabásar sem liggja upp að milligangi þurfa að vera með lok- aðri hlið til að tryggja næði kálf- anna. Jafnframt þarf að reikna með því að endabásinn sé heldur breiðari vegna skertra hreyfi- möguleika kálfa sem liggja í endabásum (+ 5 cm). Básadýnur eða mjúkar mottur henta mjög vel í legubása fyrir smákálfa, en nauðsynlegt er að nota undirburð einnig því að ann- ars skapast hætta á legusárum (s.s. hárlausra bletta). Ef undirburður er af skornum skammti verða gripirnir einnig skítugri og hætta getur skapast á kjörvaxtarskilyrð- um fyrir bakteríur. I stað þess að hólfa legusvæðið með milligerðum í sérstaka bása má láta kálfana liggja saman á upphækkuðum palli. Ungir kálfar vilja reyndar gjaman liggja þétt saman. Svona stía er að öðm leyti áþekk legubásastíu, uppstig frá gólfi átsvæðis á pallinn er haft um 15 cm en halli pallsins heldur meiri en básanna eða 5-8%. Pall- inn má smíða úr timbri eða steypa hann og leggja á hann básadýnu eða mjúkar básamottur. Nauðsyn- legt er að strá hæfílega miklum undirburði á pallinn og hreinsa hann daglega. Annar aðbúnaður Ef kálfmum er gefin mjólk úr fötu, en ekki með túttu, er mikil- vægt að setja upp túttu í stíunni þannig að þeir geti svalað sogþörf sinni á túttunni. Aðgengi smákálfa að brynningarstút/-skál er nauð- synlegt og þurfa að vera tveir staðir í stíunni þar sem kálfamir komast í vatn. Freyr 10/2004 - 15 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.