Freyr - 01.12.2004, Page 18
Einstaklingsmerkingar,
ÍSKÝR og Huppa
Hér á eftir verður gerð
grein fyrir þeim forrit-
um sem í boði eru hjá
Bændasamtökum íslands fyrir
nautgripabændur.
Einstaklingsmerkingar
Hinn 11. júní 2003 gekk í gildi
reglugerð nr. 463/2003 um ein-
staklingsmerkingar búijár sem
felur m.a. í sér að frá og með 1.
september 2003 skulu allir naut-
gripir, sem fæðast og eru settir á,
vera merktir innan 30 daga frá
fæðingu.
Þátttaka í skýrsluhaldi í naut-
griparækt er til verulegs hagræðis
gagnvart einstaklingsmerkingunni
þar sem skýrsluskilin koma í stað
skila á Hjarðbók.
Fyrir þá sem eru nú þegar þátt-
takendur í skýrsluhaldinu þá eru
helstu breytingar þær að öllum
burðum, sem skráðir eru á mjólk-
urskýrslu, verða að fylgja númer
kálfsins sé hann settur á eða seld-
ur til lífs. Ef um sölu er að ræða
þarf að færa upplýsingar um söl-
una á bakhlið mjólkurskýrslunnar
þar sem fram kemur númer kálfs,
flutningsdagsetning og móttöku-
bú (7 stafa búsnúmer). Þessum
upplýsingum þarf kaupandi ein-
staklingsmerkts grips einnig að
skila inn, hvort sem er í formi
mjólkurskýrslu eða hjarðbókar.
Mikilvægt er að allar upplýs-
ingar fylgi öllum burðum vegna
þess að ef að eitthvað vantar í
færsluna þá kemst hún ekki inn í
tölvukerfi einstaklingsmerking-
anna nema með þvi að handfæra
hana sérstaklega siðar.
Önnur afdrif, s.s. ef kálfur
drepst, eru einnig skráð aftan á
mjólkurskýrsluna í svæðið sem
merkt er gripum í uppeldi.
Tölvukerfið sem heldur utan
um upplýsingar vegna einstak-
lingsmerkinga hlaut nafnið
MARK og hefur verið opnað á
Netinu á slóðinni www.bufe.is
Til að fá aðgang að MARK er
best að hafa samband við tölvu-
deild Bændasamtakanna (simi 563-
0300). Einnig má senda tölvupóst á
netfangið mark@bondi.is með
upplýsingum um nafn, kennitölu,
búsnúmer og bæjarheiti. Bændum
er síðan sendur veflykill í pósti sem
er notaður til að nýskrá sig inn í
kerfið. Aðgangur að kerfmu er
gjaldfijáls.
Með aðgangi að MARK geta
bændur m.a. pantað einstaklings-
merki beint á Netinu. Undir val-
liðnum „hjarðbók“ er jafnframt
unnt að nýskrá gripi, skrá burð og
flutningssögu gripa.
Allir gripir, sem eru í fram-
leiðslu, eiga að koma fram i gripa-
lista í MARK. Að auki eiga að
vera inni allir þeir kálfar sem
fæðst hafa síðan 1. september
2003 og hafa fengið númer í sam-
ræmi við þau númer sem pöntuð
voru. Rekist menn á frávik frá
þessu er best að hafa sambandi
við búnaðarsamband viðkomandi
svæðis til að fá fram leiðréttingu.
Þeir skýrsluhaldarar, sem senda
inn handskrifaðar mjólkurskýrsl-
ur, eru hvattir til að skrá allar
breytingar um gripi, sem eru í
uppeldi, beint í MARK ef kostur
er. Hér er átt við t.d. þegar gripur
er seldur, keyptur eða honum
slátrað. Þessar skráningar eiga þó
einungis við gripi, sem fæddir eru
eftir gildistöku reglugerðarinnar,
þ.e. frá og með 1. september
2003, og eru ekki komnir inn í
skýrsluhaldið. Skráning eldri
gripa skal fara fram á innsendum
mjólkurskýrslum eins og áður.
ÍSKÝR
ÍSKÝR er skýrsluhaldsforrit
fyrir nautgripabændur sem fyrst
kom út um mitt ár 2000. Forritið
er einmenningsforrit sem hefur
samskipti við miðlægan miðlara
til að sækja og senda gögn.
ÍSKÝR gerir kúabændum kleift
að halda utan um rekstur búsins
með þægilegum hætti, ásamt því
að taka þátt í skýrsluhaldi í naut-
griparækt. Þeir bændur, sem eru í
skýrsluhaldi, geta sótt og sent
gögn í gegnum netið. Upplýsing-
ar sem bóndinn fær frá BI eru m.a.
upplýsingar um sæðingar, kýr-
sýni, tanksýni o.fl. Bóndinn send-
ir hins vegar upplýsingar sam-
bærilegum þeim sem eru á hinni
hefðbundnu mjólkurskýrslu, þ.e.
upplýsingar um afurðir og ættemi
nýrra gripa í framleiðslu.
Með þessu forriti verður eftirlit
með kúnum auðvelt. Einfalt er að
fylgjast með hvar kýrnar eru
eftir
Hallgrím Sveinsson,
tölvunar-
fræðing,
Bænda-
samtökum
íslands
118 - Freyr 10/2004