Freyr

Volume

Freyr - 01.12.2004, Page 23

Freyr - 01.12.2004, Page 23
Tafla 1. Reiknaðar orku- og próteinþarfir geldstöðunni Viöhaldsþarfir FEm á dag AAT g/dag g AAT / FEm Lífþungi, kg 400 3,8 291 77 450 4,1 318 78 480 4,3 333 77 Fósturvöxtur: 8. mánuður meðgöngu 1,5 106 71 9. mánuður meðgöngu 2,5 159 63 Viðhald + fósturvöxtur Kýr, 450 kg á 8. mán. 5,6 424 Kýr, 450 kg á 9. mán. 6,6 477 hliðstæð aðferð við að meta hold á sauðfé. Holdstigunarskalar eru til- raun til þess að nálgast samræmi í holdamati þannig að samanburður milli einstaklinga verði mögulegur. Hérlendis hefur nú verið þróuð aðferð við holdamat á mjólkur- kúm sem unnt er að styðjast við („Holdstigun íslenskra mjólkur- kúa”, sjá Frey nr. 12/2001). Þarer að fmna haldgóða lýsingu á að- ferðinni og hvemig hagnýta má hana við holdamat á mjólkurkúm. Holdstigun kemur því aðeins að gagni fyrir bóndann að kýmar séu holdstigaðar á mismunandi tímum framleiðsluferilsins. Ef vel á að vera ætti til dæmis að meta holda- far hvers grips í 5.- 6. mánuði á mjaltaskeiðinu. Þessi tímapunkt- ur hentar vel vegna þess að þá er enn nægur tími til stefnu ef aðlaga þarf holdafar kúnna með fóðmn í æskilegt form fyrir næsta burð. Sé kýrin of mögur í lok mjalta- skeiðsins (við upphaf geldstöð- unnar) er með auknum orkustyrk í geldstöðufóðrinu unnt að bæta hold hennar lítillega fram að burði. Samt sem áður er næring- arfræðilega mun áhrifameira og hagkvæmara að bæta holdafarið á meðan kýrin mjólkar, þ.e. í lok mjólkurskeiðsins. Ef kýrin er hins vegar of feit við upphaf geldstöðunnar er alls ekki skynsamlegt að takmarka við hana fóðrið í þeim tilgangi að megra. Það getur einfaldlega leitt til þess að kýrin fari að bijóta niður fituforð- ann af skrokknum, - magn frjálsra fitusýra (fifa) í blóði hækkar og fita sem ekki brennur safhast fyrir i lifr- inni og hindrar eðlilega efhaskipta- starfsemi hennar. Þetta ástand getur valdið óæskilegum áhrifum á melt- ingu, efhaskipti, fóðurát og heilsu- far í upphafi næsta mjólkurskeiðs. Það geta verið margar ástæður fyrir því að kýmar em of feitar í upphafi geldstöðunnar. Það er hins vegar skýr vísbending um að stjóm- un á eldi og fóðmn gripanna er ekki í nógu góðu lagi. Stundum má rekja ofifeiti kúnna til fijósemisvanda- mála, - eins og að kýrin hefur ekki fest fang á eðlilegum tíma og því hefur orka, sem annars hefði farið til fóstuvaxtar og fósturþroska, í staðinn farið til holdsöfhunar. Einnig má rekja ofifeiti mjólkur- kúnna til þess að bóndinn gefur sér ekki nægilegan tíma til þess að igmnda og meta hold kúnna í gegn- um allan framleiðsluferilinn, - og afleiðingin getur orðið sú, - að ekki er á réttum tíma skipt yfir í orku- snauðara fóður jafnhliða því sem líður á mjaltaskeiðið. Omarkviss notkun kjamfóðurs á síðari hluta mjólkurskeiðs getur einnig orsakað óþarflega mikla holdsöfhun. Undirbúningur fyrir burð I geldstöðunni þarf orka og pró- tein í fóðrinu að duga til að mæta viðhaldsþörfum og á síðasta mán- uðinum fyrir burð einnig þörfum til fósturþroska, leg- og legvatnsfram- leiðslu, auk júgurþroska. Fyrir eldri kýr ætti orkustyrkur sem svar- ar 0,8 FEm í kg þe. að nægja og 0,85 FEm fyrir kvígur vegna eigin vaxtar. Samsvarandi próteinþörf eldri gripa er u.þ.b. 75 g AAT/FEm og 12% prótein og fyrir kvígur 85 g AAT/FEm og 14% prótein. Tilraunir með að auka orkustyrk í heildarfóðrinu umfram 0,9 FEm í kg þe. síðustu þrjár vikur fyrir burðinn hafa ekki gefíð jákvæða niðurstöðu. Eitt af þvi sem þarf að varast er að niðurbrot líkamsforða fyrst eftir burðinn verði ekki of mikið, sem getur leitt til vanda- mála einkum varðandi frjósemi. Ymislegt hefur verið prófað í þessu samhengi, m.a. að auka orkustyrkinn í fóðrinu síðustu 14 daga fyrir væntanlegan burð, t.d. með sterkjuríku fóðri. Það hefur ekki skilað teljandi árangri varð- andi ummyndun líkamsforðans, afurðir eða efnasamsetningu mjólkurinnar. Þeir þættir sem mestu skipta til að takmarka eða stýra ummyndun fítuforðans eru; annars vegar rétt holdafar og hins vegar fóðrunin fyrst eftir burð. GeTUM VIÐ ÞJÁLFAD LIFRINA TIL AUKINNAR FITUUMYNDUNAR? Lifrin er mikilvægasta líflfærið í efnaskiptum gripanna. Um og eftir burðinn eykst álag og efnaumsetn- ing i lifur gríðarlega. Hæfni grip- anna til forðaummyndunar er ein- staklingsbundin og erfðafræðilega stjómað. Skýr vísbending um það er að hjá mörgum gripum minnkar fóðurátið 4-5 dögum fyrir burð. Svo virðist sem þýðingarmesta þjálfun eða undirbúningur lifrar- innar til að mæta auknu álagi felist í að eldisstyrkur síðustu tvær vik- umar fyrir burðinn sé hóflegur en vaxi stig af stigi síðustu 14 dagana fyrir burð og að reynt sé að forðast allar öfgar og snöggar breytingar í fóðmn og fóðursamsetningu. Freyr 10/2004 - 23 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.