Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 50
| M | NorFor
■■■■■ Norrænt fóðurmatskerfi
ér verður gerð stutt
grein fyrir nýrri aðferð
við fóðurmat fyrir jórt-
urdýr sem verðið er að þróa í
norrænu samstarfi og ætlunin
er að hefja notkun á frá haust-
inu 2005.
NORFOR - HVAÐ ER ÞAÐ ?
Stofnanir sem sinna ráðgjöf í
nautgriparækt í Danmörku, Is-
landi, Noregi og Svíþjóð vinna
nú að þróun nýrrar fóðurmatsað-
ferðar, sem hlotið hefur nafnið
„NorFor”. A undanförnum árum
hefur mikil ný fóðurfræðiþekk-
ing orðið til á Norðurlöndunum.
Stærstur hluti rannsókna sem að
baki þessari nýju þekkingarsköp-
un liggja hafa verið kringum
þróun á hermilíkaninu „Karo-
línu” sem líkir eftir meltingar-
starfsemi og efnaskiptum hjá
mjólkurkú.
NorFor verkefnið miðar að því
að koma hinni nýju þekkingu sem
fyrst í hagnýta notkun hjá kúa-
bændum. Nýja fóðurmatsaðferð-
in er beint framhald og áframhald-
andi þróun á núverandi fóður-
matsaðferð, - FEm, AAT / PBV
kerfunum sem tekin var í notkun
hér á landi í ársbyrjun 1996 og
flest hinna Norðurlandanna nota i
mismunandi útfærslum.
Nýja fóðurmatsaðferðin byggir
á upplýsingum um eftirfarandi
þætti;
1) efnasamsetningu fóðursins,
2) fóðurát,
3) meltingu í mismunandi hlutum
meltingarvegarins,
4) örveruuppbyggingu lífrænna
næringarefna í vömb og þörm-
um og
5) nýtingu uppsogðara næringar-
efna til viðhalds, fósturþroska
og framleiðslu.
Fóðurefnagreining í NorFor - kerfinu
| Mcltanleiki, %
Upplcysanlcgt
Niðurbrjótanlcgt
Óleysanlcgt
Aska
Fita
Afgangur (ISK)
Gerjunarafurðir
Sterkja
Prótein
NDF
Lcysanlcgt
Niðurbrjótanlcgt
Óniðurbrjótanlegt
Niðurbrjótanlegt
Oniðurkrjótanlcgt
Mynd 1 Þættir fóðurefnagreingar sem nýja aðferðin byggir á.
eftir
Gunnar Guðmundsson,
Bænda-
samtökum
Islands
NÝ OG BREYTT
FÓÐUREFNAGREINING
Lífræn efni fóðurisins eru
greind í: prótein, fitu, gerjunaraf-
urðir (vothey og annað gerjað fóð-
ur), NDF (kolvetni og frumu-
veggjarefni) og „sykrur” ( sem er
reiknuð afgangstærð). Ennfremur
er greint hve stór hluti af köfnun-
arefni (N) fóðursins er bundið í
ammoníaki og úrefni.
Mynd 1. sýnir þá þætti fóður-
efnagreiningar sem nýja aðferðin
byggir á.
Aðal næringarefnin í fóðrinu
(fita, prótein og kolvetni) eru síð-
an greind eftir því hve uppleysan-
leg þau eru i meltingarveginum í;
a) leysanleg, b) niðurbrjótanleg
(með aðstoð örvera eða meltingar-
hvata) og síðan c) óleysanleg.
Þessi nýja aðferð mun þýða veru-
legar breytingar á efnagreininga-
þjónustu fyrir bændur, en ekki þar
með aukinn kostnað vegna þess
að unnt verður að sækja efna-
greiningar um hliðstætt eða líkt
fóður í fóðurtöflur.
NÝ SAMEIGINLEG FÓÐURTAFLA
Á NETINU
Löndin ijögur, sem að verkefn-
| 50 - Freyr 10/2004