Skátablaðið - 01.04.1994, Page 3
Efhisyíirlit
Skátamót í sumar........................4
Ur smiðju gamla skátans................5
Sveitarfundurinn........................6
Eignir sveitarinnar.....................6
Sveitarráðsfundurinn....................7
Af hverju starfsáætlun..................8
Heiðaból, nýr skáli.....................8
Sumarbúðir skáta........................9
Sumargjöfin í ár, friðarpakki..........10
Akademíuverðlaun skáta................11
Fjörkippur í starfi eldri skáta.......12
Félag eldri kvenskáta.................13
Nýtt skátaheimili í Grafarvogi.........14
Heiðursmerki...........................14
Skátasöngbókin........................1 5
Fjallahjólakeppni í Skorradal ........15
Svipmyndir af stjórn og fleirum.......1 6
Islenska fánann í öndvegi............1 7
Jamboree í Hollandi 1995.............. 19
Fjölskylduferð skáta 1995 ........... 23
Starfsmannabúðir á Jamboree............23
Marsbúinn og Hafnarjarðargöngur......24
Skátahandbókin.........................25
Listin að sitja fundi..................26
Frá aðalfundi BÍS......................27
Ur sögu skátahreyfingarinnar..........29
Útilífsmiðstöð að Hömrum..............30
Þjónustusíða..........................32
Allt í hnút............................34
Minjanefnd skáta......................35
Besta mynd sumarsins..................35
Baden Powell..........................36
Úlfljótsvatn..........................37
Arnarsetur og Ægisbúar.................38
Styrktarpinni skáta....................39
Félagsmálafulltrúi BÍS................39
SKÁTAni.Ainn
1. tölublað - apríl 1994
Verð í lausasölu 456 kr.
Útgefandi:
Bandalag íslenskra skáta
Snorrabraut 60
Pósthólf 5111
125 Reykjavík
Sími 91-621390
Fax 91-26377
Abyrgðarmaður:
Þorsteinn Fr. Sigurðsson
Ritstjóri:
Guðni Gíslason
Prófarkalestur:
Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir
Umbrot og útlit:
Hönnunarhúsið/GG
Ljósmynd á forsíðu:
Guðni Gíslason.
Ljósmyndir:
CC, MGP og fleiri skátar
Prentun:
Frjáls fjölmiðlun/DV
Skátablaðið kemur út þrisvar á ári og er sent öllum skátum
og styrktarfélögum hreyfingarinnar.
Skátamál - fréttabréf BÍS kemur út 8 sinnum á ári og er sent
út til sama hóps og Skátablaðið.
Ritskoðun
Nei og aftur nei! Það fer engin ritskoðun fram á ritstjórnar-
skrifstofum Skátablaðsins einfaldlega vegna þess að það er
ekkert til að ritskoða. Eðlilega dreymir ritstjórann þá tíð að geta
valið úr innsendu efni og hent því sem honum persónulega líkar
ekki.
Skátablaðið hefur fengið ágætar viðtökur ef marka má þau
litlu viðbrögð sem komið hafa. En blaðið er alls ekki blað
íslenskra skáta á meðan sjóndeildarhringurinn afmarkast af
Esjunni í norðri og Keili í suðri. Þess vegna er hér lítil bón til
allra félagsforingja á Islandi:
Upplýsingafulltrúi!
Ritstjóri Skátablaðsins óskar eftir því að hver félagsforingi
tilnefni upplýsingafulltrúa í sínu félagi. Þessi fulltrúi verði
tengiliður við Skátablaðið og tryggi að stöðugt streymi verði af
efni frá félögunum til Skátablaðsins og þá eðlilega Skátamála
einnig. Það væri óvitlaust ef viðkomandi væri upplýsinga-
fulltrúi síns félags gagnvart fjölmiðlum og almenningi.
Námskeið!
Skátablaðið mun bjóða upp á hressilegt helgarnámskeið, ef
næg þátttaka fæst, þar sem tekin verða fyrir almannatengsl,
greinarskrif, taka og val Ijósmynda, gerð fréttatilkynninga og
þ.h. Námskeiðið verður auglýst síðar, en þeir sem hafa áhuga láti
vita á skrifstofu BÍS eða beint til ritstjóra.
Hverjirfá blaðið?
Skátablaðið og Skátamál eru send út til allra starfandi skáta á
landinu ásamt þeim eldri skátum sem eru styrktaraðilar BIS.
Sent er út samkvæmt upplýsingum frá skátafélögunum og þess
vegna er áríðandi að skátafélögin tryggi að ávallt sé rétt félagatal
til á skrifstofu BÍS. Blöðin eru send út endurgjaldslaust til þeirra
skáta sem skrifstofa BÍS hefur fengið upplýsingar um og
viðkomandi félag hefur greitt árgjaid til BÍS fyrir. Þetta árgjald
er aðeins 100 kr. sem er ekki nema fyrir brot af sendingar-
kostnaði. Því má segja að BÍS styrki félögin sem nemur mis-
muninum á kostnaðarverði blaðanna með sendi ngarkostnaði og
þessum 100 kr. og er þá ekki meðtalin öll önnur þjónusta BIS.
Skátakveðja,
Guðni.
Skátablaðið