Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 38
Ægisbúar vekja á
sér athygli
Það er ekki hægt að segja að skátastarf fái mikla umfjöllun
í fjölmiðlum. Fjölmiðlaumfjöllun er mjög mikilvæg fyrir
alla starfsemi sem opin er almenningi og því ánægjulegt
þegar skátafélög ná athygli fjölmiðlanna með starfi sínu.
Þetta hafa Ægisbúar í Reykjavík gert.
Tilefni áhuga fjölmiðla á starfi Ægis-
búa hafa verið af ýmsum toga. í vetur
gerðist sá óhugnalegi atburður, að ráðist
var á stelpur úr félaginu á heimleið af
skátafundi. Varð sá atburður tilefni til
skrifa í dagblöðum og umfjöllunar í út-
varpi. Þó ekki væru um að ræða beina
umfjöllun um starf skáta þá vakti fram-
ganga skátaforingjans sem með harðfylgi
gat hrakið árásarmanninn á flótta og komið
þannig í veg fyrir að þessi fólskulega árás
vað ekki verri en raun bar vitni.
Heilsíðuauglýsing íMorgunblaðinu, þar
sem Ægisbúar hvöttu fyrirtæki og
einstaklinga til að hirða betur um um-
hverfi sitt, vakti ekki síður athygli. I kjöl-
farið gengu Ægisbúar fjörur í Vestur-
bænum og tíndu rusl úr þeim. Nokkrum
dögum síðar birtist umfjöllun um þetta
framtak í Mbl.
I sömu viku birtist grein í DV eftir
dróttskáta í félaginu, þar sem þeir greindu
frá ferð sem þeir fóru til að hreinsa upp
rusl sem einhverjir höfðu losað sig við í
grennd við skála félagsins við Sandskeið.
Taka á girðingarstaurum í eigu Ægis-
búa varð svo fjölmiðlum fréttamatur um
mitt sumar. Þannig var málum háttað að
girðingarstaurar sem höfðu verið notaðir
við reyringaræfingar í útilegu við Hafra-
vatn, hurfu þaðan. Þetta vildi sveitar-
foringi Sefmeyja, Björk Thomsen ekki
sætta sig við og sendi símbréf til allra
útvarpsstöðva þar sem hún auglýsti eftir
staurunum. Það að skátar voru að leita að
girðingarstaurum en ekki fólki vakti
forvitni fjölmiðla og fór Björk í tvö út-
varpsviðtöl þar sem störf skáta var til
umræðu. Einnig birti DV grein um þetta
í lesendadálki blaðsins. Staurarnirfundust
og var skilað.
Nú kann ýmsum að finnast að um-
fjöllun sú í fjölmiðlum, sem hér hefur
verið gerð að umtalsefni sé lítil og óm-
erkileg. Má með sanni segja að svo sé
a.m.k. samanborið við umfjöllun þá sem
t.d. keppni meistaraflokka karla fær, en ef
við gerum raunhæfari samanburð og
berum saman athygli sem þessar uppá-
komur hafa vakið og t.d. þá athygli sem
umfjöllun um 6.-1. flokk KR í handbolta
hefur vakið, er ljóst að Ægisbúar mega
vel við una.
Ægisbúar hafa orðið varir við að sú
umfjöllun sem hefur verið um starf þeirra,
hefur vakið athygli og komið þeim til
góðs á ýmsan hátt. Þeir hafa notið vel-
vildar fyrirtækja, skátarnir hafa verið
stoltari af starfi sínu og áhugi á skátastarfi
hefur aukist.
Ljóst er að sú umfjöllun sem skátafélag
fær, kemur ekki einungis félaginu sjálfu
til góða, heldur hreyfingunni almennt.
Það er því synd að félögin leggi ekki
meira kapp á að koma starfi sínu á fram-
færi við fjölmiðla og stuðli þannig að því
að koma starfi sínu á framfæri við fjöl-
miðla og stuðli þannig að því að
almenningur verði var við starf hreyfing-
arinnar. Það er von Ægisbúa að þessi
umfjöllun verði öðrumfélögum hvatning
til að koma starfi sínu á framfæri hvort
heldur er í fjölmiðlum eða með uppá-
komum á sínu starfssvæði. Enn fremur
skora Ægisbúar á formenn og nefndar-
menn hinna ýmsu nefnda og ráða að ganga
á undan með góðu fordog láta ljós sitt
skína opinberlega.
Bragi Björnsson, skáti.
Amarsetur
býður ykkur velkomin
Skátaskálinn Arnarsetur er í eigu skátafélagsins Ægis-
búa. Skálinn er staðsettur undir Vífilsfelli, fyrir ofan
Sandskeið í aðeins 30 mín. akstur frá Reykjavík eða í
um 4 tíma gönguleið frá Árbæ.
Skálinn er á tveimur hæðum. á neðri
hæðinni er forstofa, salerni, hol, lítið
foringjaherbergi, eldhús og salur, sem
þjónar bæði hlutverki samkomusalar
og matsalar. Á efri hæðinni er svo
svefnloft.
Rafmagn er í skálanum og er hann
kyntur og lýstur með rafmagni.
Skálinn rúmar með góðu móti 30
manns og eru mataráhöld fyrir þann
fjölda. Þó hafa allt að 50 gist í skálanum
í einu.
í eldhúsi er er rafmagnseldavél með
fjórum hellum, ísskápur og öll nauð-
synlegustu eldhúsáhöld svo ekkert er
að vanbúnaði að elda góðan mat.
Á svefnlofti eru dýnur fyrir 30 manns.
Ekkert rennandi vatn er í eða við skál ann
svo taka þarf allt vatn með.
Nánari upplýsingar um Arnarsetur
má fá öll mánudags-, þriðjudags-, og
miðvikudagskvöld milli kl. 19:30 og
21 í síma 23565. Einnig er hægt að afla
upplýsingahjáBragaBjörnssyni í síma
616138 eðahjá Júlíusi Aðalsteinssyni í
síma 629897.
Skátastarf— sjálfstæður lífsstíll