Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 14
Það er ávallt stór stund í
starfi hvers félags þegar
það eignast sitt fyrsta eigið
heimili. Skátafélagið Voga-
búar í Grafarvogi fögnuðu
þessum áfanga 5. febrúar
sl. er þeir vígðu skáta-
heimili að Logafold 106 í
Reykjavík.
<
Skátafélagið Vogabúar er aðeins 6 ára
en hefur vaxið fiskur um hrygg í góðu
umhverfi þeirra 9 þús. íbúa sem byggja
Grafarvog. Upphaf starfseminnar hefur
ekki verið neinn dans á rósum því að-
stöðuleysi hefur bagað mjög og því
kærkomið að geta hafið starf í þessu nýja
skátaheimili. Reyndar hafa mörg önnur
skátafélög í Reykjavík þurft að lifa við
slæma aðstöðu en á síðustu árum hefur
e -
Séð niður í glœsilegan sal félagsins og hangir félagsfáninn yfir arninum.
verið tekið vel á málum og húsnæðis-
vandi skátafélaganna í Reykjavík að
hverfa.
Húsið er allt hið veglegasta, timburhús
meðportbyggðum steinveggjum. Góð að-
staða er fyrir flokkana, aðstaða er fyrir
starfsmann, gott geymslurými, glæsilegur
salur og aðstaða fyrir dróttskáta.
Það vekur nokkra athygli að húsið
stendur við opið svæði og því einkar
hentugt fyrir skátastarfsemi.
Skátablaðið óskar Vogabúum til
hamingju með þetta glæsilega hús.
Guðmundur Kristinsson, félagsforingi.
Heiðursmerki
Frá útgáfu síðasta blaðs hafa nokkrir einstaklingar hlotið
Þórshamarinn fyrir vel unnin störf fyrir skátahreyfinguna:
28. nóvember sl. var Jakob Árnason,
skátafélaginu Heiðabúum heiðraður fyrir
mikil og góð störf fyrir skátastarf í
Keflavík.
5. febrúar sl. voru Yngvinn Gunn-
laugsson ogStefán Már Guðmundsson,
báðir í Vogabúum, heiðraðir fyrir
ómetanleg störf fyrir skátahreyfinguna.
12. mars sl. fengu7 aðilarÞórshamarinn
og er þeirra getið í frásögn af aðalfundi
BÍS hér annars staðar í blaðinu.
25. mars sl. fékkÞorsteinn F r. Sigurðs-
son, skátafélaginu Garðbúum og núver-
andi framkvæmdastjóri BIS, Þórshamar-
inn fyrir mikil og góð störf í þágu félagsins.
Öllum þessum aðilum eru færðar
heillaóskir í tilefni heiðursveitinganna.
Skátastarf— sjálfstæður lífsstíll