Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 36

Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 36
Baden Powell upphafsmaður skátahreyfingarinnar Varla hefur Baden-Powell grunað að það starf sem hann hóf fyrir unga drengi ætti eftir að verða að þeirri hreyfingu sem skátastarf varð að. En Baden-Powell þurfti ekki að bíða lengi eftir árangri af starfi sínu. Skátahreyfingin breiddist út um allan heim eins og eldur í sinu og mjög fljótlega var skátahreyfingin orðin stærstu æskulýðssamtök heims. Bandalag íslenskra skáta hefur ákveðið að gefa út í endurskoðaðri útgáfu, Söguna um Baden Powell sem út kom árið 1945. Hér að neðan eru nokkrir punktar úr bókinni frá 1945. Teikningarnar eru eftir Baden-Powell. Af litlum neista Þegar Baden Powell kom heim til Englands eftir Mafekingumsátrið, þá sá hann sér til mikillar undrunar að hin litla hernaðarbók hans „Aids to Scouting" hafði verið notuð af framsýnu fólki sem kennslubók til að skerpa athygli drengja. Þá um leið fékk hann boð um að vera viðstaddur hina árlegu skrúðgöngu „Boy ’ s Brigade" (hreyfing í Englandi). Það, að sjá svo marga drengi hljóta góða líkam- lega æfingu, hafði mikil áhrif á hann, og hann velti því fyrir sér, hvers vegna fleiri drengir væru ekki í þessari hreyfingu. Hann orðaði það við Sir William Smith, stofnanda „Boy’s Brigade“, að væri hreyfingin ferð meira aðlaðandi, til dæmis með skátaleikjum og æfingum, þá myndu fleiri drengir ganga í hana. Sir William geðjaðist vel að hugmyndinni, og B-P gerði stutta áætlun um æfingar í „Boy’s Brigade“. Sumar sveitir tóku þær í notkun, en yfirleitt voru þær ekki notaðar. Þá ákvað B-P að kynna hugmyndina betur. Hann ræddi um hana við vini sína og raunar við sérhvern, sem hafði áhuga á málinu. Þá var það dag nokkurn árið 1907, að hann hitti Arthur Pearson, aðaleiganda útgáfufyrirtækis með því nafni, en hann dvaldi þá ásamt útgáfustjóra sínum, Percy Everett, yfir helgi á bóndabæ, þar sem B-P var einnig gestkomandi. Pearson fékk undir eins áhuga á málefninu, og bauðst til að gefa út bók um skátamálefni. Svo var áætlað, að B-P skyldi skrifa handbók fyrir drengi og fara svo um landið í fyrir- lestraferð og skýra hugmyndina fyrir almenningi. Utilegan frœga á Brownseaeyju var undirbúningur hans að gerð bókarinnar. Þegar fyrsti hluti bókarinnar kom út var einsýnt hvert stefndi — skátahreyfingin var komin til að vera. Síðasta Jamboree B-P íHollandi árið 1937 S&i „Þetta Jamboree okkar hérna er í mörgu tilliti líkt krossferð. Þið hafið safnast hérna saman frá öllum löndum heims eins og sendiherrar góðs vilja, þið hafið verið góðir vinir og brotið á bak aftur sérhverja hindrun, sem stafaði af mismun kynflokka, trúarflokka eða stétta, sem þið voruð af. Þetta er vissulega mikil krossferð. Eg ráðlegg ykkur nú að halda áfram þessu góða starfi, því að brátt munuð þið verða fullorðnir menn, og hefjist deilur milli þjóðanna, þá er það á ykkur, sem ábyrgðin fellur. Séuð þið vinir, þá munuð þið ekki vilja deila, og með því að þroska slíka vináttu, sem hefur ríkt hér á þessu Jamboreei, þá skuluð þið undirbúa það, að lausn alþjóðlegra vandamála verði ráðin með friðsamlegum ummælum. Þetta mun hafa mikil og langvarandi áhrif alls staðar í heiminum til eflingar friðnum og því skuldbinda ykkur alla í þessari hreyfingu til þess að gera ykkar ýtrasta til þess að efla vináttu á milli skáta allra þjóða. Nú er víst kominn tími fyrir mig að kveðja ykkur. Eg vil, að þið lifið hamingjusömu lífi. Þið vitið, að margir okkar munu aldrei hittast aftur í þessum heimi. Eg er á 81. ári lífs míns og er að nálgast ævilok mín. Flestir ykkar eru að hefja lífsskeið sitt og vil ég að það verði gott og árangursríkt. Þið getið gert það þannig með þ ví að gera ykka besta til þess að breyta alltaf eftir skátalögunum, hvert sem þið farið. Verið þið sælir. Guð blessi ykkur alla.“ Skátastarf— sjálfstæður lífsstíll

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.