Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 28
er verið að skipuleggja ferð eldri skáta og
fjölskyldna — Hollensk upplifun 1995
— í sumarhús í Hollandi á sama tíma og
er reiknað með að á annað hundrað manns
fari í þá ferð.
Eitt stærsta þjónustuverkefni sem skáta-
hreyfingin hefur tekist á við „íslenska
fánann í öndvegi“ var kynnt fundar-
mönnum. Um er að ræða umfangsmikið
verkefni sem miðar að því að kynna
almenningi meðferð og notkun íslenska
fánans og hvetja til aukinnar almennrar
notkunar hans, verkefnið er kynnt hér
annars staðar í blaðinu.
Alþjóðaráð kynnti mjög áhugavert verk-
efni er kallast „Friðarpakkinn“. Þetta er
verkefni á vegum alþj óðahreyfingar kven-
skáta þar sem skátafélögin eru hvött til að
útbúa staðlaða gjafapakka sem sendar eru
til barna í flóttamannabúðum í Taj iki stan.
Verkefnið er kynnt ítarlega annars staðar
í blaðinu.
Talsverð umræða varð um samskipti
BIS og skátahreyfingarinnar annars vegar
og Landsbjargar og hjálparsveitanna
hinsvegar. Flestir er tjáðu sig höfðu
áhyggjur af því að þessir aðilar væru að
fjarlægjast og var lagt til og því beint til
stjórnar að farið yrði í viðræður við stjórn
Landsbjargar til að finna leiðir til aukins
samstarfs milli þessara aðila.
Breyting varð á stjórn BIS. Hafdís Ola-
dóttir, meðstjórnandi gaf ekki kost á sér
til endurkjörs en í hennar stað var Guð-
björg Dóra Sverrisdóttirkjörin meðstjóm-
andi, en Guðbjörg hefur starfað í Foss-
búum Selfossi í fjölda ára. Um leið og
Hafdísi er þakkað vel unni störf með
stjórn BIS er Guðbjörg boðin velkomin
til starfa.
Stjórn BIS er nú þannig skipuð:
GunnarH. Eyjólfsson, leikari, skáta-
höfðingi,
Kristín Bjarnadóttir, deildarstjóri, aðst.
skátahöfðingi,
Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður,
aðst. skátahöfðingi,
Asta Agústsdóttir, húsmóðir, ritari,
Guðjón Ríkharðsson, viðskiptafr.,
gjaldkeri,
Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir, háskóla-
nemi, meðstjórnandi og
Guðni Gíslason, innanhússarkitekt,
meðstjórnandi.
Mikill hugur var í fundarmönnum og
með tilkomu nýs félagsmálafulltrúa BÍS,
sem sinna mun innra starfinu og sam-
skiptum við skátafélögin er markið sett á
aukið starf og fjölgun skáta og skáta-
félaga.
Heiðursmerki
Nokkrir skátar voru heiðraðir fyrir störf sín fyrir skáta-
hreyfinguna:
Skátakveðjan:
Kristín Bjarnadóttir, aðst. skátahöfðingi, Vífli.
Þórshamarinn:
Margrét Tómasdóttir, Skf. Vífli,
Lára Arnórsdóttir, fv. aðst. skátahöfðingi, Garðbúum,
Halldóra Gíslasdóttir, Úlfljótsvatnsráði, (KSFR),
Halldór Ingi Guðmundsson, félagsforingi Fossbúa,
Guðmundur Pálsson, Dalbúum,
Grímur Valdimarsson, Úlfljótsvatnsráði, Skjöldungum og
Björn Hilmarsson, Vífli.
Skátahöfðingjar ásamt heiðursmerkjaþegum
Svipmyndar frá aðalfundi Bandalags Islenskra skáta sem haldinn var 12. mars í sal SSR í Skátahásinu við Snorrabraut í Reykjavík.
Skátastarf— sjálfstæður lífsstíll