Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 37
Úlfljótsvatn
dmumastaður islmskra skáia
„-.austur aftur, unaðsland,
unaðsland..", hver þekkir
ekki þessar línur?
Skátahreyfingin hefur haft
afnot af Úlfljótsvatni síðan
1941. Þar hefur verið rek-
inn skátaskóli, skólabúðir,
þar hafa verið haldin skáta-
mót, þar hefur verið aðset-
ur foringjaþjálfunar íslen-
skra skáta og svo mætti
lengi telja. Úlfljótsvatn er
fastgreypt í huga sérhvers
skáta og mun eflaust vera
það áfram því mikill hugur
er í mönnum um áfram-
haldandi uppbyggingu.
Aðstaðan á Úlfljótsvatni getur boðið
upp á mikla og fjölbreytilega möguleika
í framtíðinni, ekki aðeins fyrir skáta,
heludur einnig fyrir fólk á öllum aldri,
bæði heilbrigða og fatlaða.
Gerð hefur verið skipulagstillaga að
landnýtingu og mynd af henni hér að
ofan. Þessa stundina er verið að vinna að
heildarskipulagið fyrir landsvæðið við
Úlfljótsvatn og getur það haft einhver
áhrif á núverandi skipulagstillögu.
Aform eru um að bæta aðstöðu fyrir
almenna gesti og verður í sumar gefinn
möguleiki fyrir almenning að tjalda á
svæðinu. Geta því gamlir skátar og
fjölskyldurkomið og dvalið áÚlfljótsvatni
og um leið rifj að upp gamlar góðar stundir
frá fyrri árum. Einnig verður sú nýbreytini
að kaffisala verður á sunnudögum og er
vonandi að margir nýti sér það, en
Úlfljótsvatn liggur mjög vel við fyrir þá
sem fara Nesjavallaleið, eða Þingvallaleið.
Skógræktarfélag skáta hefur unnið á
áundanförnum árum mikið starf við
skógrækt við Úlfljótsvatn og óhemjumiklu
magni af skógarplöntum verið plantað á
svæðið. Verður spennandi að fylgjast með
árangrinum á komandi árum.
Ráðinn hefur
verið umsjón-
armaður staðar-
ins í fullt starf
og tók Finnbogi
Finnbogason
viðþvístarfium
áramót. Finn-
bogihefurverið
með annan fót-
innástaðnumtil
þessa svo hann veit að hverju þarf að
vinna.
Er hann boðinn velkominn til starfa.
Skátablaðið