Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 6

Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 6
Sveitarfundininn Skátaflokkarnir koma í röðum, fánaberar fremstir í hverj- um flokki og þar á eftir koma skátarnir hressilegir en þó tignarlegir í bláa skátabúningnum sínum. Hópurinn myndar hring eftir bendingum sveitarforingjans sem stendur fyrir framan hópinn hljóður; enda þarf ekkert að segja, skátarnir vita hvað þeir eiga að gera og gera það fumlaust og hratt. Skyndilega hrópa skátarnir sveitar- hrópið þar sem sérhróp flokkanna tvinnast inn í og og hrópinu lýkur með lágu hvísli og síðan eldsnöggu hrópi. Skátarnirsetjast niðureftirbendingu sveitarforingjans sem býður skátana velkomna og segir þeim í örstuttu máli frá því sem taka á fyrir á fundinum. Því næst syngja skátarnir sveitarsönginn en eru síðan á stuttri stundu komnir út og byrjaðir á fyrsta verkefni kvöldsins. Skátarnir hafa fengið verkefnin á blöðum, en fyrirmælin eru torskilin, því þau eru á einhverju myndmáli sem skátarnir þurfa að leysa. Það gengur og hópurinn tvístrast í allar áttir. Einn flokkurinn á að rekja spor persónu sem sást til við skátaheimilið. Eftir 15 mín. eiga þeir að geta lýst persónunni eins nákvæmlega eins og þeir geta og nota til þess þær upplýsingar sem þeir geta fundið. Annar flokkur á að fylgjast með um- ferðinni á næstu gatnamótum í jafnlangan tíma og koma með tillögur um úrbætur ef þarf. Einn flokkur æfir notkun slökkvi- tækis og nýtur aðstoðar eins slökkviliðs- manns sem hefur verið svo vingjarnlegur að koma í frítíma sínum. Svona eru verkefnin hvert af öðru. samanbækur sínar. S veitarforinginn veitir þeim flokki, sem sýndi mest hugmynda- flug við úrlausn verkefna. farandskinnið sem þeir síðan hengja upp á flokks- veggnum sínum. Nokkrir seiðandi skátasöngvar eru sungnir í lokin og þegar sveitarforinginn hefur minnt á hjólaferðina næsta laugar- dag er fundi slitið með leyniathöfn sveitarinnar. Við kertaljós er Bræðralags- söngurinn sunginn og skátarnir hverfa til síns heima, þreyttir en ánægðir eftir skemmtilegt kvöld. Það er öruggt að skátarnir nota nokkrar mínútur af næsta flokksfundi til þess að ræða úrlausn verk- efnanna og ákveða hvað gera skal svo flokkurinn standi sig enn betur næst. Eignir sveitarinnar Það má líkja sveitinni við fjölskyldu, fjölskyldan þarf að hafa þak yfir höfuðið, aðstöðu til þess að elda, þarf að geta veitt fjölskyldumeðlimum hlýju og allir þurfa að hafa eitthvað að gera. Að sama skapi þarf sveitin að hafa ýmislegt til þess að geta starfað sem skildi. Það er mikilvægt að sveitin hafi einhverja aðstöðu. Hún þarf hvorki að vera merkileg né stór en þó þarf sveitin að hafa aðstöðu til þess að hittast og til þess að geyma eignir sveitarinnar. En þarf skátasveit að eiga eitthvað? Með tímanum eignast góð skátasveit ýmsa hluti sem þarf að varðveita vel á milli þess sem þeir eru notaðir: Sveitarfáninn: Sveitarfáninn er nokkuð stærri en flokksfáni, stöngin er sverari og fáninn er vandaðri. Sveitarfáninn er stolt sveit- arinnar og fær virðulegan stað í sveitar- herberginu. Sveitarkistan: I sveitarkistunni, sem er nokkuð stór kista nteð góðum handföngum, geymir sveitin ýmsan sameiginlegan búnað sem sveitin þarf með í lengri ferðum sveit- arinnar. Þar má einnig geyma líflínur, bönd og annað sem oft er notað á sveitar- fundum. Hnútataflan: Eitt af verkefnum sveitarráðsins er að sjá til þess að sveitin eigi vandaða hnúta- töflu. Bókaskápurinn: I bókaskápnum eru geymdar skátahand- bækur sveitarinnar. Það þurfa að vera reglur um notkun þeirra og þær ættu helst ekki að fara út úr sveitarherberginu. Þetta getur verið vísir að litlu bókasafni svo farið vel með. Veggteppið: Ur striga má auðveldlega búa til vegg- teppi til að hengja upp í salnum á sveitar- fundum. A veggteppið er málað eða saumað eitthvað sem minnir á sveitina og að sjálfsögðu er merki sveitarinnar og jafnvel flokkanna á því. Þetta getur breytt salnum í ykkar einkasal. i » Skátastarf— sjálfstæður lífsstíll i

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.