Skátablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 4
Skátamót í sumar
Ekkert skátastarf án útilífs!
SKÁTAR ERU AVALLT VIÐBÚNIR!
ÚLFLJÓTSVATN 22.-26. JÚNÍ 1994
VERTU MEÐ
LYÐVELDI ÍSLANDS 50 ÁRA
22.-26. júní
Stórmót sumarsins verður án efa lýðveldismót Skátasam-
bands Reykjavíkur á Úlfljótsvatni. Mikill metnaður hefur
verið lagður í að gera mótið hið vandaðasta og búist er við
þátttakendum frá öllum landsfjórðungum.
Félagsforingjum hafa verðið sendar allar nauðsynlegar upplýsingar og hafa þeir
jafnframt verið hvattir til að skipa fararstjóra svo undirbúningurinn verði sem bestur.
Lýðveldisleikurinn „Leitin að landvættunum“ er flokkaleikur með þjóðlegu ívafi
sem ætlaður er til að undirbúa flokkana fyrir þátttöku á mótinu en þjóðlegir þættir verða
eðlilega snar þáttur í dagskrá mótsins.
Þátttökugjald er 6.000 kr. og er innifalið
í því heit máltíð á laugardeginum,
kvöldkaffi öll kvöldin, mótsbolur, merki
og mótsbók.
Þátttökugjald í fjölskyldubúðir er Nánari upplýsingar má fá hjá fram-
500 kr. fyrir hvern þátttakenda ásamt kvæmdastjóra mótsins á skrifstofu
500 kr. tjaldgjaldi fyrir hverja nótt. SkátasambandsReykjavíkurísíma 15484.
Innifalið er mótsmerki og mótsbók. Vertu með!
„Fjölskyldan undir fána lýðveldis" er yfirskrift þessa
54. Vormóts Hraunbúa í Hafnarfirði. Mótin eru
löngu landskunn þó ekki væri nema fyrir rigninguna
en þó er víst að „..aldrei í rigningu festir þar snjó."
Hafnfirðingamir hafa ákveðið að tengja
saman áherslurnar vegna árs fjöl-
skyldunnar og lýðveldisafmælisársins og
verður dagskrá mótsins í samræmi við
það.
Krýsuvík er mjög skemmtilegt svæði,
þar var áður blómleg sveit og enn má sjá
merki bæjartófta víða. Gönguleiðir eru
fjölbreyttarog Krýsuvíkurbjarg ekki langt
frá. Hraunbúar eru um þessar mundir að
skipuleggja útivistarsvæði í Krýsuvík og
uppgræðsla er þegar hafin með íslenskum
jurtum og hafa þeir fengið til þess styrk úr
pokasjóði Landverndar.
Mótsgjaldi verður stillt mjög í hóf, enda
Vormótin Hraunbúa meðal þeirra ódýr-
ustu móta sem haldin eru.
Allar nánari upplýsingar um Vormótið
má fá hjá starfsmönnum Hraunbúa í
Hraunbyrgi og í síma 650900 á milli kl.
16 og 20 alla virka daga.
A
Skátastarf— sjálfstæður lífsstíll