Skátablaðið - 01.04.1994, Side 30
Akureyri hefur oft verið talin Mekka í skátastarfi á ís-
landi. Framúrskarandi skátastarf til margra ára hefur ekki
farið fram hjá öðrum skátum og því undraði það engan
þegar skátar á Akureyri veltu fram þeirri hugmynd að
byggja upp útilífsmiðstöð að Hömrum í Kjarnaskógi.
Hugmyndin að útilífsmiðstöðinni
vaknaði fyrst þegar aðalskipulag fyrir
Akureyri 1990-2010 var kynnt, en þar
kom fram að býlin Hamrar I og II myndu
falla innan útivistarsvæðis Akureyrar.
Skátafélagið Klakkur lagði síðan fram
tillögu fyrir fund stjórnar Bandalags
íslenskra skáta sem haldinn var á Akur-
eyri 29. september 1990 og heimilaði þar
stjórn BÍS að Skátafélagið Klakkur hæfi
undirbúning að málinu og ynni að út-
færslu tillagna um málið.
Síðan þá hefur Klakkur unnið hægt og
bítandi að þessu máli og 1991 lagði félagið
fram greinargerð fyrir umhverfisnefnd
Akureyrar sem tókjákvætt í málið. Sama
ár lánaði bæjarstjórn Akureyrar skáta-
félaginuíbúðarhúsiðaðHömrumlIásamt
geymslubragga fram yfir landsmótið
1993. Akureyrarbær og fl. hafa síðan
unnið að uppbyggingu svæðisins svo nú
er Kjarnaskógur vel frambærilegt úti-
vistarsvæði, jafnt að vetri sem sumri.
Landsmótsgestir plöntuðu um 5000
skógarplöntum umhverfis húsin að
Hömrum II en við setningu mótsins hafði
bæjarstjórn Akureyrar gefið út þá yfir-
lýsingu að hún væri reiðubúin að stuðla
að stofnun umhverfis- og útilífsmið-
stöðvar í tengslum við útivistarsvæði
Akureyrar. Jafnframt samþykkti stjórn
BÍS að áfram yrði unnið að rnálinu og sett
yrði á laggirnar sérstök nefnd til að móta
tillögur um framhaldið.
Umhverfisnefnd Akureyrar samþykkti
síðar áframhaldandi afnot Klakks að
íbúðarhúsinu að Hömrum og stjórn BIS
samþykkti að eitt af salernishúsum sem
by ggð voru fy rir Landsmótið og eru í eigu
BIS yrði staðsett á svæðinu.
Kjörland til útivistar
Þeir sem fara um svæðið átta sig fljót-
lega á því að þarna er kjörland fyrir alls
konar útilíf. Hægt er að stunda fjallgöngur,
bæði léttar og erfiðar. Svæðið býður upp
á mikla möguleika fyrir þá sem vilja fara
í tjald- eða skálaútilegur en auk húsa á
staðnum tengjast skálarnir Fálkafell,
Gamli og Valhöll svæðinu svo og Lambi,
skáli Ferðafélags Akureyrar svæðinu.
Stutt er síðan í vatn, trimmbrautir, reið-
stíga og fl.
Fjölbreytt starf
Margar hugmyndir að starfsemi hafa
komið fram. Almennt skátastarf, útilegur,
mót, námskeið og þjónusta við almenning
s.s. rekstur útilífsnámskeiða. Nefnd hefur
verið þjónusta við ferðamenn, fjölsky ldu-
garður og m.fl.
Nú er unnið að því að fullmóta raun-
hæfar tillögur að uppbyggingu og starf-
semi að Hömrum því menn gera sér það
ljóst að sumar tillögur eru meira draumur
en raunveruleiki.
Samstarfsaðilar
Margir þurfa eflaust að koma til ef þessi
útilífsmiðstöð á að verða að veruleika.
Margir hafa verið nefndir til samstarfs
s.s. Akureyrarbær, Skógræktarfélög,
Menntamálaráðuneytið, Umhverfisráðu-
neytið, Hjálparsveit skáta, Hestamanna-
félög, samtök í ferðaþjónustu auk ýmissa
fyrirtækja og stofnana.
Á þessu ári verður unnið að því að
kynna málið öllum þessum aðilum og
reiknað er með fyrstu áætlunum um upp-
byggingu og kostnaðaráætlun árið 1995
og að uppbygging geti hafist árið 1997.
Það er stórhugur í norðanmönnum og
vonandi að þessi umhverfis og útilífsmið-
stöð verði að veruleika.
Skátastarf — sjálfstæður lífsstfll