Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1910, Page 6

Sameiningin - 01.12.1910, Page 6
294 Þá er allt kemr til alls, er jólagjöfin bezta í því fólgin, aÖ lifa einsog jóla-liátíÖinni er samboðið. Jólagjafir. Ekki til að lítilsvirða jólagjafir. Ljósin sá eg loga á ásjónum barnanna. Þau léku sér svo jólaglöð við gjafirnar sínar. Ekki vil eg guðslogann slökkva á and- liti barnsins míns. Sömu Ijósin sé eg brenna á brám öldunganna. Þeir verða svo hugarklökkir, þegar eftir þeim er munað á jólum. 0g allir erum vér mennirnir börn. Bezt líðr oss, þegar vér erum sem barnalegast- ir. Jólagjafirnar klappa á dyr lijá barnslundinni í oss. Það er ekki einskisvert að örva barnslundina. „Hver, sem ekki meðtekr guðs ríki einsog barn — — .“ En það er ])essi gjafa-verzlun. Hann er Ijótr, þessi jóla-markadr. Menn eru að verzla með vinattu sína. Hún gengr kaupum og sölum á jólunum. Hver horfir gjöf til gjalds. Menn vilja ógjarnan láta eiga hjá sér. 1 ár eru menn að borga fyrir gjafirnar frá í fyrra. Margr gefr þeim, sem liann álítr meira háttar mann vera. til þess að ná tilliti hans. Margir gefa ríka mann- inum, en Lazarus mylr mola sína við dyrnar. Verst er, hve vel vinstri liöndin veit það, sem sú hœgri gjörir — um jólin. Einkenni fyrstu jóla var fátœktin. Reifum vafðr lá hann í moðinu í jötunni. Hjarta mannkynsins hefði aldrei liitnað við arin jólanna, hefði sagan, sem þar er sögð, ekki verið svona innilega einföld. Manni sortnar því fyrir augum, þegar maðr lítr frá Betlehem til búð- ar-glugganna í bœjunum hérna um jóla-leytið. Það er einsog allr heimsins hégómi komist fyrst í algleyming, þegar líðr að jólunum. Verzlunar-lífið tryllist. Glvsvara til einskis nýt selst þá með uppsprengdu verði. Margr kaupir þá um efni fram, til þess að geta „verið með‘ ‘ og sýnzt einsog’ hinir. Ös er í hverri búð fram á jólanótt og menn eru á þönum með varninginn, þegar kirkju-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.