Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1910, Blaðsíða 29

Sameiningin - 01.12.1910, Blaðsíða 29
3°5 hann ávallt síðan veriS trúfrœöakennari viö prestaskólann og er nú forstööumaör hans. Dr. Jacobs er nú, einsog dr. Krauth var á sinni tíö, viðrkenndr fremstr allra lúterskra guöfrœöinga í álfunni. Rithöfundr er dr. Jacobs stór-merkr. Auk bóka hans og rita um trúfrœðileg efni hefir hann samið Æfisögu Marteins [Lúters, Sögu lútersku kirkjunnar í Vestrheimi, og Sögu siöbótarinnar á Englandi. Hann hefir staðið fyrir útgáfu á „The Lutheran Commentary“ og „Lutheran Encyclopedia". Enn fremr hefir hann þýtt úr þýzku játningarrit lútersku kirkjunnar og gefið út á ensku „Konkordíubók- ina“ í tveim bindum. B. B. J. Prófessor Rcvcre Franklin JVeidner, D.D., LL.D., er fœddr í Pennsylvania'22. Nóvember 1851. Var frá barnœsku settr til náms. Útskrifaðist frá Muhlenberg College 18 ára gamall, með mesta heiðri. Árið 1873 lauk hann guðfrœöanámi viö Philadelphia- prestaskóla. Nokkur ár gegndi hann prestsembætti í Philipsburg, N. J., og Philadelphia. Þrítugr fluttist hann vestr til Illinois og gjörðist kennari í grískum og hebreskum biblíufrœðum við presta- skóla Ágústana-sýnódunnar sœnsku í Rock Island, Jafnframt ílutti hann fyrirlestra um trúfrœöi og siðfrœði. Á sumrum var liann ýmist með dr. Harper, er varð forstöðumaðr Chicago-háskól- ans mikla, við hebresku-kennslu, eöa með D. L. Moody, prédikaran- um alkunna, og flutti fyrirlestra um biblíufrœði í skólum hans í Northfield og Chicago. Haustið 1891 var dr. Weidner gjörðr for- stöðumaðr prestaskóla þess, er dr. Passavant hafð gengizt fyrir að stofna í Chicago; byrjaði skólinn 1. Okt. það ár. Ávallt síðan hef- ir dr. Weidner veitt skólanum forstöðu og kennt þar trúfrœði. Síðastl. haust var skólinn fluttr frá Lake View í Chicago í aðra undirborg, er Maywood heitir. Hafa þar þegar reistar veriö ekki færri en tíu byggingar, hver annarri veglegri. Þar hefir þá lút- erska kirkjan eignazt skóla, sem einnig að ytra útliti og búningi öllum ber af flestum samskonar skóluin i landinu. Og lang-mest er það allt að þakka dugnaði og skörungsskap dr. Weidner’si, sem þó hefir verið mjög bilaðr að heilsu hin síðari ár. Dr. Weidner hefir ritað fjölda bóka, og ná þær yfir flest svæði guðfrœðinnar. Eru þær margar notaðar við kennslu í guð- frœðaskólum. Siðfrœði hans er kennslubók í mörgum college- skólum. Kennslubœkr í hebreskri og grískri málfrœði, er hann samdi ásamt dr. Harper, eru rnjög útbreiddar. Dr. Weidner er talinn með fjölfróðustu lærdómsmönnum og hefir verið keppt um að fá hann fyrir kennara við sumar stœrstu menntastofnanir lands- ins. En prestaskólanum í Chicago hefir hann helgað alla krafta sína. B. B. J.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.