Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1910, Blaðsíða 34

Sameiningin - 01.12.1910, Blaðsíða 34
3io í GrunnavatnsbyggS kynntist eg því miðr mjög lítið. Þó hitti eg ýmsa eftir guðsþjónusturnar, og voru viðtökurnar þar einnig hinar beztu. Kristilegr félagskapr hefir verið myndaðr á tveim stöðum í þeirri byggð: að Otto og Vestfold. Hann stendr þó enn fyrir utan kirkjufélag vort, en kemr væntanlega inn á sínum tíma. Miss Freemann, dóttir Árna Fremanns, hélt uppi sunnudagsskóla í suðrhluta byggðarinnar—að Vestfold1, og hefi eg frétt, að henni hafi tekizt verkið einkar vel. Byggðirnar liggja saman og eru næsta víðlendar. Eitthvaö um 1,500 landar eru þar búsettir í einum hóp. Flest er fólkið kristilega hugsandi og óskar eftir kirkjulegri starfsemi, þótt lítið hafi enn verið unniö að þeim málum. Þar gæti þrifizt fjórir myndarlegir söfnuðir. | Seinna part sumars, frá 5. Ágúst til 29. Sept., dvaldi eg hjá löndum mínum í Alberta. För mín þangað var einkar skemmtileg, og mun hún lengi verða mér minnisstœð. ÓvíSa hefi eg unaS mér betr en þar vestra hjá fjallabúum, og naumast gat mér veriS sýnd meiri velvild en þar varS reynd á. Eg prédikaöi sex sinnum aS Markerville, fimm sinnum í Red Deer, og þrisvar að Burnt Lake. Allar voru guðsþjónustur þær ágætlega sóktar, aS hinni fyrstu undantekinni. Tvo seinustu sunnudagana var kirkjan troðfull. Sunnudagsskóla stofnaSi eg í Markerville, og er honum haldiS áfram enn. Oftast var hann vel sóktr. Miss Rooney Christianson aSstoðaSi mig við kennslu, þangaS til hún varS að fara úr byggS- inni til næsta bœjar, þar sem hún stundar nám á lýðháskóla. Miss Celía Stephenson tók þá viS af henni og kenndi þaS, sem eftir var af tímanum; hefir hún haldið skólanum við síSan eg fór. BáSar eiga þær heiSr skiliS fyrir þaS, hve myndarlega þær hafa leyst verk þetta af hendi. Á meðan eg dvaldi þar vestra, dó ungr piltr, 14. ára garnall — Skúli aS nafni — fóstrsonr Sigurðar Benediktssonar og Vilborgar konu hans. Hann var gott og efnilegt ungmenni, og fóstrforeldrar hans unnu honum hugástum; var því missirinn þeim mjög átakan- legr. Hann var jarðsunginn 22. Sept. „GuS huggi þá, sem hryggSin slær.“ Eg var til húsa hjá Kristjáni Jóhannessyni og konu hans. Eru þau hjón væn, viSfelldin og gjöröu mér allt til ánœgju. Fremr er byggöin fámenn og all-dreifB. Þó hafa landar reist sér einkar myndarlega kirkju, og er þaS þeim til sóma. Nokkrar fjölskyldur íslenzkar eiga heima í bœjunum Red Deer, Edmonton og Calgary. I hinum síSastnefnda staldraSi eg viS eina tvo daga á austrleiS 0g hafði tvær guSsþjónustur meS löndum mínum — 30. Sept. og 2. Okt. Flestallir komu og var heimsóknin hin skemmti- legasta.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.