Sameiningin - 01.12.1910, Page 12
3oo
og að öllu leyti merkilegast. Nefndir höfðu starfað
undanfarin ár að því að safna sem nákvæmast allri fá-
anlegri þekking á trúboðsmálinu og trúboðsstarfinu, og
gefa bendingar í samrœmi við það. Þær skýrslur, átta
að tölu, liafa verið út gefnar í níu stórum bindum; bend-
ir það til þess, live yfirgripsmikið starf nefnda þessarra
var. — Boðskaprinn, sem út gekk frá þessu þingi til
allra lærisveina frelsarans, er hvöt og áminning um að
gjöra alvöru úr því að flytja öllum heimi fagnaðarer-
indið áðr en sú kynslóð, sem nú er uppi, er undir lok
iiðin. Allar líkur eru til, að slík þing verði framvegis
haldin með nokkui-ra ára fresti — að líkindum svo sem
einu siniii á hverjum áratug. Allt þetta er gleðilegr
vottr þess, að þetta afar-mikilvæga mál er meir og meir
að fá viðrkenning sem aðal-mál kristninnar, einsog það
verðskuldar samkvæmt hugsjón nýja testamentisins.
Fleiri atburðir og hreyfingar benda í sömu átt.
Sjálfboðalið námsmanna — eða einsog á ensku er nefnt
Students’ Volunteers—heldr áfram og vinnr mikið og vel
að því að vekja áhuga ungra menntamanna á kristni-
boðsstarfi. Hreyfing sú miðar að því, að fá sem flesta
„stúdenta4í til að gefa sig sjálfa af fúsum vilja fram til
þessa starfs, og verðr félagskap þeim mikið ágengt.
Menn, sem eru með í hreyfing þeirri, liöfðu með sér sér-
stakan fund í sambandi við þingið í Edinborg. — Að
sama takmarki miðar það einnig, sem nú eykst með ári
hverju, að nemendr í menntaskólum Vestrlieims af eigin
hvöt leggi það á sig fram yfir fyrirskipaðar námsgrein-
ir, að verja ákveðnmn tímum til biblíunáms. Þeim ætti
þá síðr að gleymast þjónsmyndin,—œðsta hugsjón mann-
anna, einsog ritningin svo skýrt kennir.
Þá er enn önnur lireyfing, sem mikið hefir skilað
áfram þetta síðasta ár, og ber liún þess jafnvel enn
greinilegri vott, að kristnin er að læra að meta trúboðs-
málið réttilega. Það er leikmanna-hreyfingin, sem ekki
verulega hófst fyrr en í fyrra, en einkum hefir magnazt
á þessu ári. Frumhugsanin, sem ræðr í hreyfing þess-
arri, er sú, að málefni kristninnar tilheyri ekki eingöngu