Sameiningin - 01.12.1910, Side 30
3oö
Dr. G. H. Gerberding er annar merkasti kennarinn viö presta-
skólann lúterska í Chicago og á sama aldrsskeiði sem forstöðumáðr-
inn. Hann er fœddr í Pittsburg í Pennsylvania 21. Ágúst 1847.
Þykir lærisveinum hans frábærlega vænt um hann — fyrir
þaö einkum, hve gott lag hann hefir á því aö sýna, hvernig kristinn
kennimaðr á að vera. En einnig útí frá meöal læröra guöfrœð-
inga og annarra hefir hann getið sér ágætan orðstír. Hann er og
einn af allra fremstu rithöfundum lútersku kirkjunnar í Vestr-
heimi. Þetta eru helztu bœkr eftir hann The Way of Salvation
in the Lutheran Church þHjálpræðis-vegrinn [einsog hann er
sýndr ] í lútersku kirkjunni); New Testament Conversions fAftr-
hvarfið í ljósi nýja testamentisinsý; The Lutheran Pastor ('Fyrir-
mynd prests í lúterskum anda)]', Life and Letters of W. H. Passa-
vant (Æfisaga Passavants, hins mikla manns, með bréfum henni
til skýringarý,. og The Lutheran Catechist (TJm kristilegan ferm-
ingar-undirbúning barna af hálfu prestaý.
Dr. Gerberding þjónaði lengi prestsembætti á ýmsum stöðum
áör en hann var kvaddr í kennarastööuna við prestaskólann.
„Mörgum kunnugum finnst, sem spáinannskápa dr. Passavant’s
hvili nú helzt á heröum dr. Gerberding’s.“
Dr. Hans Gerhard Stub er fœddr 23. Febr. 1849 (í Muskego,
Wis.ý. Var faðir hans H. A. Stub, einn hinna helztu og bezt
þekktu norsku presta lútersku kirkjunnar í Vestrheimi, og andaðist
hann háaldraðr fyrir skömmu. Stub hinn yngri var útskrifaðr frá
Luther College í Decorah, Iowa, 1866, frá Concordia College í Fort
Wayne, Ind., 1869, og frá Concorclia-prestaskóla í St. Louis, Mo.,
1872. Síðan varð hann prestr í Minneapolis, og var í þeirri stöðu
til 1878. Þá var hann kvaddr í kennarastöðu viö hinn nýstofnaða
prestaskóla Norsku sýnódunnar, sem fyrst var í Madison, Wis., en
er nú í Hamline, Minn., milli stórbœjanna St. Paul og Minneapolis.
Ööru hvoru hefir hann verið forstööumaör þeirrar stofnunar. Um
hríð varö hann hér á árunum sökum bilaðrar heilsu að hverfa burt
frá prestaskólanum, og þjónaði hann þá prestsembætti í Decorah.
Á seinni árum hefir hann í reyndinni haft formennsku í Norsku
sýnódunni í forföllum dr.s Korens, sem er mjög aldrhniginn og
með bilaðri heilsu.
Dr. Stub er ágæturn hœfileikum búinn, lærdómsmaör og frá-
bærlega vel máli farinn. Þrikvæntr er hann, og var önnur húsfreyja
hans merk söngkona, sú er gaf út The Songs from the North. Sjálfr
hefir prófessor Stub einkar gott vit á söng og hljóöfœraslætti, eins-
og öllum, sem viðstaddir voru, mun hafa skilizt, er hann kvöld eitt
á júbíl-hátíð íslenzka kirkjufélagsins síðastliöið sumar talaði um
það efni í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg. Með samskotum