Litli Bergþór - 01.04.1991, Blaðsíða 18
sveitar, t.d. allt grænmeti, kartöflur, blóm o.þ.h. og höfum átt mjög góð samskipti
við sveitungana. Stefna skólans er jú sú, að versla sem mest innan héraðs, helst
að fara ekki lengra til þess en á Selfoss.
L.B: Hvað finnst ykkur um þá starfsemi, sem fram fer innan veggja skólans?
MogR: Þettaeralltalvegyndislegtfólksemkemurhér. Sumirhóparerusvolítið
stífir og stressaðir fyrst, en það er fljótt að fara af þeim. Á endanum koma allir
niður í eldhúskrókinn, og þetta verður eins og ein stór fjölskylda. Sama hvort það
eru prestamir úr fermingamámskeiðunum, viðskiptakonumar úr „Nctinu“,biskup-
inn og fólkið úr kyrrðardögunum, eða aðrir, sem koma aftur og aftur. í fyrra var
haldin hérpáskagleði fyrir fjölskyldur, sem tókst mjög vel. Sérstaklega minnistætt
er líka gamla fólkið sem kemur hér í hópum frá Norðurlöndunum. Það heldur
tryggð við okkur , og skrifar okkur bréf, þessar elskur.
Skemmtilegast er þó að sjá fólkið úr sveitinni. T.d. kom hér fólk úr Skálholtssókn
á fund vegna þorrablótsins, og til að kjósa í nýja þorrablótsnefnd. í leiðinni gerði
það sér dagamun, spilaði félagsvist og drakk kaffi. Vorfundir Kvenfélagsins hafa
líka verið haldnir hér tvisvar.
L.B: Segið mér, hvernig fara kyrrðardagar fram?
MogR: Fólkbaraþegir! Notar tímann til að lesa, skrifa, labba, sofa, íhuga. Tíða-
gjörð er þrisvar á dag og sá sem sér um kyrrðardagana, oft gamli biskupinn (Sigur-
bjöm Einarsson), er með hugvekju. Mjög friðsælt og afslappandi.
L.B: Hvað gerið þið svo í frístundum ykkar?
M og R: (hlæja) í fh'stundum erum við námsmeyjar. Sækjum kennslu í ensku og
mannkynssögu tvisvar íviku niður á Selfoss íFjölbrautarskólann. Síðan em kór-
æfíngar a.m.k. einu sinni í viku, og eitthvað félagslíf í kringum starfsemina hér.
Því miður emm við oftast að vinna meðan á kvöldvökunum stendur, en krakkamir
okkar taka þátt í kvöldvökunum af h'fi og sál og hafa mjög gaman að þessu.
L.B: Hvernig er húsnæðisaðstaða fyrir starfsfólk hér?
M og R: Eins og stendur búum við nokkuð þröngt í kjallara biskupshússins, en
það mun standa til að innrétta aðra íbúð þar í kjallaranum og þá horfir þetta allt
til bóta.
L.B: Þið eruð semsagt ekki á förum héðan?
M og R: Nei, ekki aldeilis. Hættum ekki hér fyrr en við verðum reknar!
- Og eftir ummælum rektorshjóna að dæma em engar líkur á því. -
Magga og Rúna.
Meðan viðtölin fóru fram, var í gangi
norskt gestanámskeið á vegum KFUM
og K, frœðsludeildar þjóðkirkjunnar
o.fl. Þaðan barstsöngurog hljóðfcera-
sláttur, „kirkjupopp", sagði Guð-
mundur Guðmundsson yfirkennari
námskeiðsins, sem kom í hornið til
okkar. Eftir að hafa smellt af nokkrum
myndum af þeim norsku og heima-
fólki,kvaddifréttamaður húsráðendur
og starfsfólk Skálholtsskóla með ósk
um velgengni og þakkaðifyrir góðar
móttökur.
G.S.
íbúðai— og sumarhús af öllum stærðum og gerðum.
Gerum föst verðtilboð að kostnaðarlausu. Ódýr og
hagkvæm lausn. Skammur byggingartími. Hringið
og fáið nánari upplýsingar.
GAGNHEIÐI 1 - 800 SELFOSSI
SÍMI98-22333
SAMTAKrFI
HUSEININGAR LJ