Litli Bergþór - 01.04.1991, Blaðsíða 19
17. janúar var mjög tilfmningaþrunginn dagur fyrir blaðamann Litla-Bergþórs. Þegar landslýður
reisti höfuðiðfrá kodda og kveikti á útvarpi kom í Ijós að úti í heimi varskollið á hroðalegt stríð ogfólki
hraus hugur við tilhugsunina um þær hörmungar sem myndufylgja í kjölfarið, dauðsföll og eyðilegging.
Um kl. fjögur fékk svo Litli-
Bergþór upphringingu um þaö
aö mjög fallegur atburður ætti
sér staö á Brautarhóli, en
þangað haföi Oddný boðiö
börnumfæddum, ÍTungunum,
á árinu 1990, ásamt mæörum
þeirra.
Litli-Bergþór brá sér á þessa
fallegu samkomu og tók nokkrar
myndir, en ýmsar þarfir yngstu
borgaranna töföu þaö aö hægt
væri aö raöa sér upp og fá
myndir af öllum, mæörum og börnum. Þaö tókst þó
aö lokum og eru allir mettir en sumir orðnir nokkuð
þreyttir.
Framtak Oddnýjar er
lof svert og yndislegt og væri
veröldin sannarlega
notalegri ef hennar
sjónarmiö fengi aö ráöa í
samskiptum fólks, en ekki
hernaðarhyggja.
Hekla kórónaöi svo þennan
dag meö því aö hefja gos
rétt fyrir kl. 17 og skartaði
mikilli fegurö í um klukku-
tíma áöur en skyggni tók aö
spillast, en feguröin innan
dyra á Brautarhóli var mikilvægust þessara atburöa
aö mati Litla-Bergþórs, eins og hiö smáa í tilverunni
er reyndar oftast.
D.K.
Mœður og börti: Elínborg og Dýrfinna, Iðu ; Kolbrún og Samúel Birkir, Holtakotum ; Marta og Gísli
Þór, Heiði; Bryndís og Gísli Rúnar, Helgastöðum ; Erla og Helga, Spóastöðum ; Sigríður og Jóna
Sigríður, Vatnsleysu ; Ásrún og Selma, Víðigerði; Hafdís og Guðmundur Hermann, Brú ; Oddný og
Oddur Bjarni, Brautarhóli. (Tekið skal fram að ekki gátu allir nýburar 1990 mætt.)
Litli - Bergþór 19