Litli Bergþór - 01.04.1991, Síða 21
1. gr.
Heiti félaesins.
Félagið heitir Ungmennafélag Biskupstungna, skamm-
stafaðUmf. Bisk. FélagssvæðiðerBiskupstungnahreppur.
2. gr.
Markmið félaesins.
Markmið félagsins er að efla andlegan og líkamlegan
þroska félaganna og stuðla að því að gera þá nýtari þjóð-
félagsþegna. Vemda íslenska tungu og þjóðlega menningar-
erfð og vinna að farsælum notum náttúruauðlindalandsins.
Að vinna að markmiðum og stefnuskrá Ungmennafélags
íslands með kjörorðunum “íslandi allt”.
3. gr.
Markmiðum sínum hyggst félagið ná, meðal annars, með
því að stuðla að fjölþættri félagslegri menningarstarfsemi.
Með iðkun íþrótta og líkamsræktar og eflingu bindindis og
fræðslu um óhollustu vímuefna. Vinna að vemdun og
aukningu gróðurs landsins.
4. gr.
Merki félagsins.
Merkið er glímumaður sem heldur á kyndli. í forgmnn er
opin bók með ártalinu 1908. I bakgmnn er táknmynd af
Geysi. Litir merkisins em blár, grár, hvítur og rauður.
5. gr.
Búningur oe litur.
Aðallitir í keppnis- og æfingabúningum félagsins skulu
vera blár og hvítur. Búningur skal vera auðkenndur
félaginu.
6. gr.
Félagið.
Félagið er myndað af einstaklingum í deildum samkvæmt
sérstakri spjaldskrá, en deildimar hafa sameiginlega aðal-
stjóm, sem er æðsti aðili milli aðalfunda. Allsherjardeild
heyrir undir aðalstjóm.
7. gr.
Félagsaðild.
Félagsmaður getur hver sá orðið sem er 7 ára á árinu og
eldri og leggur fram skriflega beiðni um félagsaðild og er
samþykktur af meirihluta stjómar þeirrar deildar er hann
óskar eftir að vera skráður í. Heimilt er að skrá sig í fleiri
en eina deild gegn greiðslu árgjalds viðkomandi deilda.
8. gr.
Úrsögn.
Úrsögn úr einstökum deildum skal tilkynna skriflega til
aðalstjómar. Aðalstjóm staðfestir úrsögn. Félagar sem
ekki hafa greitt árgjald til félagsins í tvö ár í röð hafa fyrir-
gert öllum réttindum sínum innan félagsins og skulu ekki
taldir félagar eftir þann tíma, en þó skal stjóm félagsins
hafa samráð við viðkomandi aðila.
9. gr.
Keppnisaðild.
Hver sá sem hyggst taka þátt í keppni fyrir hönd félasins
verður að uppfylla ákvæði 7. greinar hér að framan.
10. gr.
Árgiald.
Aðalfundur félagsins ákveður upphæð árgjalds og þau
aldursmörk sem innheimta skal miðast við.
11. gr.
AMstÍáSL
Aðalstjóm félagsins skipa þrír menn, formaður, gjaldkeri
og ritari, kjömir skriflega á aðalfundi félagsins ásamt
tveimur varamönnum. Meginregla skal vera að kjömefnd
komi með uppástungur um stjóm og nefndir. Kjörtímabil
stjómar, varamanna og nefnda er eitt ár. Séu atkvæði jöfn
við kosningu skal kosið að nýju bundinni kosningu um þá
menn. Verði atkvæði enn jöfn skal hlutkesti ráða.
Að auki eiga rétt til setu á stjómarfundum, með málfrelsi
og tillögurétt formenn allra starfandi deilda eða fulltrúar
þeirra, og skulu þeir boðaðir. Þeir aðilar sem kosnir em í
aðalstjóm á aðalfundi félagsins mega ekki gegna formanns-
stöðu í deildum félagsins.
Meirihluti ræður úrslitum mála í aðalstjóm.
12. gr.
Aðalstjóm félagsins ber að efla félagið á allan hátt og gæta
hagsmuna þess í hvívetna.
Aðalstjóm félagsins skal stjóma félaginu og sjá um fram-
kvæmdir fundarsamþykkta. Þá skal stjóm heimilt að fela
nefndum framkvæmd ýmissa mála og skulu fastanefndir
kjömar á aðalfundi. Heimilt er stjóm félagsins að skipa
þærnefndirsem hún telurþörf á. Stjómin hefurumráðarétt
yfir öllum sameiginlegum eignum og ræður starfsemi þess
í aðalatriðum í samráði við deildarstjómimar..
Stjómin skal sjá til þess að allir sjóðir félagsins ávaxtist í
banka eða sparisjóði.
Stjómin hefur heimild til að víkja mönnum úr félaginu álíti
hún framkomu þeirra og gjörðir vítaverðar.
Stjómin fer með yfirstjóm fjáraflana sem framkvæmdar
em í nafni félagsins og veitir einstökum deildum heimild
tii að nýta þær.
Stjómin hefur úrskurðarvald í ágreiningsmálum sem upp
kunna að koma innan félagsins og til hennar er skotið.
Tekur ákvörðun um skiptingu fjármagns sem félagið hefur
aflað og staðið að, að undanskildum styrkjum eða beinum
framlögum til deilda.
Vanræki einhver að halda aðalfund á tilsettum tíma skal
aðalstjóm boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.
Kaup og sala fasteigna félagsins er bundin aðalfunda-
samþykkt með 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Formaður hefur á hendi æðsta framkvæmdavald í félaginu
og skal hann gæta þess að allir starfsmenn félagsins gegni
skyldu sinni. Einnig hefur hann yfimmsjón með eignum
félagsins. Gæta skal hann þess að lög félagsins séu í heiðri
Litli - Bergþór 21