Litli Bergþór - 01.06.1993, Side 5
Hvað segirðu til?
Að þessu sinni verða sagðar fréttir frá þorra og
fram á hörpu.
Tíðarfarið hefur einkennst af umhleypingum,
úrkomu og hita nálægt frostmarki. Snjór hefur ekki
verið samgöngum til verulegs trafala, en hálka olli a.
m. k. einu umferðarslysi, sem lemstraði ökumann og
skemmdi bifreið. [ sumarbyrjun hefur marga morgna
verið hvítt út að líta.
Heilsufar hefur verið dágott þó skarlatsótt hafi
eitthvað stungið sér niður á þorranum.
Söngur hefur verið mest áberandi í
menningarlífinu.
Söngnámskeið var haldið í Aratungu í mars. Þar
kenndu þau Jón Stefánsson og Margrét Bóasdóttir
nokkrum tugum fólks að syngja "Fjárlögin". Við lok
þess var samsöngur.
Bæði Karlkór Selfoss og Söngbræður í Borgarfirði
hafa haldið tónleika í Aratungu. Voru þeir dável
sóttir.
Bergen 26.4. 1993, þar sem
setningarathöfn norrœnu
umhverfisráðstefnunnar fór fram.
Barnakór Biskupstungna hefur starfað með
miklum ágætum undir stjórn Hilmars Arnar
Agnarssonar. Hann hélt sönghátíð í Aratungu í
byrjun maí ásamt gestum sínum sem voru
barnakórar bæði frá Vík í Mýrdal og Kársnesskóla í
Kópavogi. Um eða yfir 100 börn og unglingar sungu
vorið í hjörtu áheyrenda, sem voru nokkrir tugir.
Helsti viðburður á sviði leiklistar var sýning
nemenda 8., 9. og 10. bekkjar Reykholtsskóla á
söngleiknum "Þið munið hann Jörund" eftir Jónas
Árnason. Leikstjóri var Ragnheiður Jónasdóttir í
Reykholti, tónlistarstjóri Hilmar Örn Agnarsson í
Skálholti og Hjörtur Hjartarsson, tónmenntakennari á
Selfossi, aðstoðaði við undirleik. Margir foreldrar
nemendanna tóku þátt í undirbúningi sýningarinnar.
Leikurinn var sýndur fjórum sinnum í Reykholtsskóla
og ávallt fyrir fullu húsi.
Nemendur 10. bekkjar voru í Noregi og Danmörku
síðustu viku apríl í tilefni af sigri þeirra hér á landi í
norrænu umhverfisverkefni.
Listakvöld var í Skálholtsskóla í marslok. Margrét
Bóasdóttir og Kristinn Örn Kristinsson fluttu þar
Ijóðasöngva og Þorgerður Sigurðardóttir opnaði
málverkasýningu.
Kyrrðardagar voru í Skálholtsskóla bæði um
pálmasunnudagshelgi og bænadaga.
Messur voru á öllum kirkjum í Skálholtsprestakalli
um páska. Hins vegar hefur ekki enn tekist að halda
hátíð í tilefni af 100 ára afmæli Torfastaðakirkju á
nýársdag.
Skálholtskórinn æfir af kappi m. a. Skálholts-
kantötu eftir Pál ísólfsson, sem sungin verður á
Skálholtshátíð í sumar bæði í tilefni af aldarafmæli
höfundarins og 30 ára afmæli Skálholtskirkju á
þessu ári.
Bæði Kvenfélagið og Leikdeild Umf. Bisk. hafa
boðað til leikhúsferðar til Reykjavíkur, en ekki hefur
reynst nægur áhugi fyrir þeim til að af gæti orðið.
Búnaðarfélögin í Biskupstungum, Grímsnesi og
Laugardal ásamt atvinnumálanefnd
Biskupstunguanhrepps boðuðu til fundar um
atvinnumál í samkomusalnum í Bergholti í mars.
Framsögumenn voru Arnaldur Bjarnason,
atvinnumálafulltrúi Stéttarsambands bænda, Jón
Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins, Sigríður Jónsdóttir, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Suðurlands og Kristján
Eysteinsson, en hann vinnur að atvinnuþróunar-
verkefni fyrir uppsveitir Árnessýslu. Greindi sá
síðastnefndi frá þeirri hugmynd að gera Haukadal
að útivistarsvæði. 20. mars var þar gönguskíða-
dagur, sem Ferðamálanefnd Biskupstungna og
Skógrækt ríkisins gengust fyrir. Göngubrautir voru
troðnar, merktar og teiknaðar á kort. Gestir voru
nokkrir tugir, og þáðu þeir veitingar á Hótel Geysi
að göngu lokinni. Áformað er að skógræktarlandið í
Haukadal verði framvegis opið þeim, er vilja njóta
þar náttúru og útiveru.
Sögufélag Árnesinga hélt aðalfund
sinn í Skálholtsskóla í apríllok. Þar / Ekki hefégfundið
flutti Gunnar F. Guðmundsson, í tösku með reikningum
sagnfræðingur, erindi um V ^ , Bjsk
minnisvarða Jóns biskups ArasonarN
í Skálholti. Á fundinum var varpað frarrT
spurningu um minnisvarða um Ragnheiði
Brynjólfsdóttur, sem var þar í kirkjugarðinum
áður en núverandi kirkja var byggð. Var henni
ekki svarað þar.
Nýir ábúendur verða í Skálholti frá
fardögum. Þeir eru hjónin Guttormur
Bjarnason frá Stöðulfelli í Gnúpverjahreppi
og Signý Guðmundsdóttir úr Reykjavík.
í apríl andaðist Guðný Aðalbjörg
Guðmundsdóttir fyrrum húsfreyja í
Laugarási. Var hún jarðsett í Skálholti.
A. K
Litli - Bergþór 5