Litli Bergþór - 01.06.1993, Blaðsíða 12
Skyggnst um á Kjalvegi..frh.
Safnið rennur yfir Hvítárbrúna
sem byggð var 1935.
fara og eru stundum ógreiðfær, geta orðið ófær í
rigningum. Þau heita Sniðbjargagil og lllagil. Nefna
má Hallspytt, þar er nokkurt graslendi. Tæpistígur
heitir þar sem farið er nálægt Hvítá á brekkubrún.
Við Lambafellskvísl var lengi leitarmannakofi.
Lambafellsver tekur við norðan við Lambafellskvísl
og svo Lambafellið, sem hefur verið minnst á.
Austast í Fremstaverinu er gamall leitarmannakofi,
sá eini sinnar tegundar á Biskupstunguanafrétti.
Hann er búinn að hýsa marga um dagana enda vel
staðsettur, hagar fyrir hesta, góð skjól og auðvelt að
finna hann þótt dimmviðri sé með því að fylgja
Hvítánni. Fleiri slíkir kofar voru á afréttinum en eru
allir fallnir nema þessi eini. Einnig eru hér leifar af
fjárrétt, sem var notuð í vorsmalamennskum við að
rýja og marka. Þá fóru menn af efstu bæjum í
Eystri-Tungu norður að Hvítá, smöluðu niður í
Fremstaver og ráku féð þar saman. Síðan var
svæðið fyrir sunnan smalað suður að Hólum og
réttað þar. Það er komið kvöld og ekki annað að
gera en koma sér í bílinn. Við förum yfir Grjótá á
vaði. Hún er vatnslítil núna en getur stundum verið
illfær fyrir litla bíla ef mikið rignir. Við förum hér yfir
margar smá bergvatnskvíslar, stutt að runnar,
sumar koma jafnvel upp úr hjólförunum í
veginum.Þetta heita einu nafni Brunnalækir. Hér er
gott drykkjarvatn, kannski það besta í heimi. Hér er
há melbrún á hægri hönd. Uppí hana gengur nokkur
slakki á einum stað, og hefur þar verið allnokkur
jarðvegur. Til þess benda háar torfur, sem eftir
standa, en eru sífellt að eyðast af vatni og vindum.
Þarna eru lítilsháttar leifar af birki og gamlar
kolagrafir hafa sést þarna. Undirbúningur er að því
að varðveita þann gróður sem þarna er eftir.Trúlega
hefur verið þarna talsvert af hvönn. Sá sem punktar
þetta niður minnist þess að hafa heyrt talað um
Hvannarótargil. Nú ertalað um Rótarmannagil.
Áfram er haldið upp úr Brunnalækjum og komið að
vegamótum og erum við þá komin á leiðina sem við
komum neðan úr byggð. Við höldum henni heim á
leið. Úðinn úr Gullfossi bendir okkur á að við séum
að nálgast byggð. Kvenfélagskonurnar, sem stjórna
ferðinni, tilkynna fólkinu að þær bjóði til kaffidrykkju
við Geysi og þar skuli sest að borðum. Rausnarlega
er á borð borið, kaffi og meðlæti gerð góð skil. Svo
er bara að kveðja og þakka fyrir samveru dagsins
og vel heppnaða ferð í von um að eiga sem flestar
slíkar ófarnar.
Ur Kvenfélagsferð í Biskupstungnaafrétt:
Mynd fyrir neðanfrá vinstri:
Helga á Gýgjarhóli, Egill í Múla,
Tómas og Steinar í Helludal.
Áð í Svartárbotnum:
Guðmundur á Lindarbrekku, Þórdís á Króki,
Erlendur frá Dalsmynni,
Kristín og Asbjörn Víðigerði og
Eiríkurfrá Miklaholti.
Litli - Bergþór 12